Morgunblaðið - 01.12.2022, Síða 9
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022MORGUNBLAÐIÐ 9
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kremaður
maísmeð
spínati
500 g frosin maískorn – affryst
250 g spínat
80 g smjör
40 g hveiti
250 ml rjómi
salt
hvítlaukspipar
olía
@ Maískornin steikt á pönnu upp
úr smá olíu í u.þ.b. 3 mínútur, þá
er spínatinu bætt út á pönnuna og
kryddað með salti og hvítlaukspipar.
@ Í öðrum potti er smjörið brætt við
meðalhita og síðan hveiti bætt út í
hrært vel.
@ Þá er rjómanum bætt út í smá
saman þar til blandan þykknar vel,
passa þarf að hræra mjög reglulega
þar sem þetta brennur mjög auð-
veldlega við.
@ Síðast er maís og spínati hrært
saman við sósuna og borið fram
heitt.
Karamellu
kartöflur
sem aldrei
klikka
500 g kartöflur
200 g rjómaatöggur frá Nóa
1,5 dl mjólk
50 g smjör
@ Kartöflur annað hvort soðn-
ar eða skolaðar ef notað er
forsoðnar kartöflur.
@ Í potti á vægum hita eru
karamellurnar og mjólk-
in brædd saman, þegar
blandan er orðin kekkjalaus
er smjörinu bætt út í og hrært
þar til blandast saman.
@ Að lokum eru kartöflunum
bætt út í og leyft að draga
aðeins í sig karamellusósuna
áður en þær eru bornar fram.
Jólasalat
2 græn epli
1 pera
2 klementínur
sítrónusafi
50 g suðusúkkulaði
1,5 dl sýrður rjómi
3 msk. Egils-appelsínuþykkni
50 g hnetutoppskurl
2 dl rjómi, þeyttur
@ Eplin, peran og mandarínurnar
flysjuð og skorin í litla bita og
örlitlum sítrónusafa hellt yfir.
@ Suðusúkkulaði, sýrðum rjóma,
appelsínuþykkni og hnetutopps-
kurli hrært saman og blandað
saman við ávextina.
@ Síðan er rjómanum hrært var-
lega saman við.