Morgunblaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Smjörsprautað
kalkúnaskip
1 stk. smjörsprautað kalkúnaskip Hagkaups
olía
smjör
salt
@ Kalkúnaskipið tekið úr pakkningunum og þerrað.
@ Sett í ofnskúffu og kryddað með salti. Þá er það bakað á
180°C í um það bil 45 mínútur á hvert kg sem kalkúnaskipið er.
Dijon- og salvíukalkúnasósa
100 g gulrætur
1 stór laukur
3 hvítlauksgeirar
1 msk. piparkorn
3 greinar rósmarín
30 g salvía
350 ml hvítvín
500 ml rjómi
2 msk. gróftkorna dijonsinnep
1-2 msk. kalkúnakraftur
@ Gulrætur, laukur og hvítlaukur skorin gróft og steikt í potti á meðalhita
með piparkornum og rósmaríngreinum.
@ Þegar laukurinn er orðinn glær er salvíu og hvítvíni bætt út í og látið
sjóða niður um rúmlega helming.
@ Þá er rjóma hellt saman við og soðið aftur niður þar til sósan fer að
þykkna aðeins, þá er hún sigtuð. Eftir það er sinnepi og krafti bætt út í.
@ Sósan er svo smökkuð til og þá hægt að bæta út í meiri krafti eða sinnepi
ef fólk vill.
Gljáðar gulrætur og rauðlaukur
6 msk. púðursykur
150 ml appelsínusafi
3 litlir rauðlaukar
500 g gulrætur
750 ml grænmetissoð (vatn og 2 grænmetisteningar)
@ Gulrætur flysjaðar og skornar í tvennt til fernt á lengdina.
@ Rauðlaukurinn skorinn í fernt.
@ Grænmetið er soðið í grænmetissoðinu, gulræturnar í um það bil sex
mínútur og laukurinn þrjár mínútur.
@ Á meðan er appelsínusafa og púðursykri blandað saman og hrært.
@ Grænmetið sigtað frá soðinu og sett á plötu, þá er púðursykurs-
blöndunni hellt yfir og grænmetið bakað í ofni á 200°C í 15 mínútur, velt
vel upp úr púðursykursblöndunni 1-2 sinnum á bökunartímanum.
Kalkúnasósa og kalkúnafyllingar
Við einföldum
jólin fyrir þig