Morgunblaðið - 01.12.2022, Síða 11

Morgunblaðið - 01.12.2022, Síða 11
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022MORGUNBLAÐIÐ 11 Sætar fetaosts- kartöflur 600 g sætar kartöflur 1 krukka salatostur 3 greinar rósmarín salt @ Sætu kartöflurnar flysjaðar og skornar í jafna bita og settar í eldfast mót. @ Um það bil helmingnum af olíunni af ostinum hellt yfir kartöflurnar, þær saltaðar og rósmaríngreinarnar settar með. @ Bakað á 200°C í um það bil 30 mínútur, þá er ostinum bætt við, hrært í kartöflunum og bakað í 10 mínútur í viðbót. @ Rósmaríngreinarnar eru síðan teknar upp úr fatinu áður en kartöflurnar eru bornar fram. @ Bökunartíminn getur verið misjafn eftir því hve stórir bitarnir eru. Rósakálmeð brúnuðu smjöri og gúmmelaði 500 g rósakál 2 litlir rauðlaukar olía salt og pipar 80 g smjör 40 g möndluflögur 40 g trönuber sítrónusafi @ Botninn skorinn af rósakálinu og það síðan skorið í helminga, laukurinn skorinn í lauf. @ Rósakáli og rauðlauk blandað saman með olíunni og salti og pipar. @ Síðan bakað í ofni á 200°C í um það bil 20 mínútur. @ Meðan rósakálið er í ofninum er smjörið sett í pott og brætt á miðlungshita þar til það fer að freyða, þá er möndluflögunum bætt út í og hrært vel í um það bil þrjár mínútur þar til möndlur og smjör eru orðin gullinbrún. @ Þá er trönuberjunum bætt út í smjör- blönduna. @ Þegar rósakálið er tilbúið er smjör- blöndunni hellt yfir og blandað vel saman, smakkað til með sítrónusafa og salti. Strengjabauna- og sveppabaka 250 g sveppir 250 g strengjabaunir 1 lítill laukur 2 stk. hvítlauksrif 200 g vegan sýrður rjómi 150 g vegan cheddar ostur 1 tsk. chiliflögur salt og pipar Toppur 60 g vegansmjör 75 g Ritzkex 25 g panko-raspur salt og pipar @ Sveppir, strengjabaunir og laukur steikt í djúpri pönnu, hvítlauknum bætt út á pönnuna þegar um það bil mínúta er eftir af steikingartímanum. @ Kryddað með salti, pipar og chiliflögum. @ Lækkað undir pönnunni í nánast lægsta hita og sýrðum rjóma og cheddarosti bætt saman við. @ Helt í smurt eldfast mót. @ Þá er smjörið brætt, ritzkexið mulið aðeins niður, en þó ekki of mikið, og blandað saman við raspinn og smjörið og dreift yfir fatið. @ Bakað á 175°C í um það bil 25 mín. eða þar til gullinbrúnt og fallegt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.