Morgunblaðið - 01.12.2022, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022MORGUNBLAÐIÐ 11
Sætar fetaosts-
kartöflur
600 g sætar kartöflur
1 krukka salatostur
3 greinar rósmarín
salt
@ Sætu kartöflurnar flysjaðar og skornar í
jafna bita og settar í eldfast mót.
@ Um það bil helmingnum af olíunni af
ostinum hellt yfir kartöflurnar, þær saltaðar
og rósmaríngreinarnar settar með.
@ Bakað á 200°C í um það bil 30 mínútur, þá
er ostinum bætt við, hrært í kartöflunum og
bakað í 10 mínútur í viðbót.
@ Rósmaríngreinarnar eru síðan teknar upp
úr fatinu áður en kartöflurnar eru bornar
fram.
@ Bökunartíminn getur verið misjafn eftir því
hve stórir bitarnir eru.
Rósakálmeð
brúnuðu smjöri
og gúmmelaði
500 g rósakál
2 litlir rauðlaukar
olía
salt og pipar
80 g smjör
40 g möndluflögur
40 g trönuber
sítrónusafi
@ Botninn skorinn af rósakálinu og það
síðan skorið í helminga, laukurinn skorinn
í lauf.
@ Rósakáli og rauðlauk blandað saman með
olíunni og salti og pipar.
@ Síðan bakað í ofni á 200°C í um það bil 20
mínútur.
@ Meðan rósakálið er í ofninum er smjörið
sett í pott og brætt á miðlungshita þar til það
fer að freyða, þá er möndluflögunum bætt út
í og hrært vel í um það bil þrjár mínútur þar
til möndlur og smjör eru orðin gullinbrún.
@ Þá er trönuberjunum bætt út í smjör-
blönduna.
@ Þegar rósakálið er tilbúið er smjör-
blöndunni hellt yfir og blandað vel saman,
smakkað til með sítrónusafa og salti.
Strengjabauna-
og sveppabaka
250 g sveppir
250 g strengjabaunir
1 lítill laukur
2 stk. hvítlauksrif
200 g vegan sýrður rjómi
150 g vegan cheddar ostur
1 tsk. chiliflögur
salt og pipar
Toppur
60 g vegansmjör
75 g Ritzkex
25 g panko-raspur
salt og pipar
@ Sveppir, strengjabaunir og laukur steikt
í djúpri pönnu, hvítlauknum bætt út á
pönnuna þegar um það bil mínúta er eftir af
steikingartímanum.
@ Kryddað með salti, pipar og chiliflögum.
@ Lækkað undir pönnunni í nánast lægsta
hita og sýrðum rjóma og cheddarosti bætt
saman við.
@ Helt í smurt eldfast mót.
@ Þá er smjörið brætt, ritzkexið mulið aðeins
niður, en þó ekki of mikið, og blandað saman
við raspinn og smjörið og dreift yfir fatið.
@ Bakað á 175°C í um það bil 25 mín. eða
þar til gullinbrúnt og fallegt.