Morgunblaðið - 01.12.2022, Page 17
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022MORGUNBLAÐIÐ 17
Opin
nýársloka
„Í desember fæ ég piparrót-
arsósu á heilann sem aldrei
fyrr. Hún er unaðsleg með
flestu kjöti og fullkomin á
kalkúnasamloku. Lucas Keller
vinur okkar og matreiðslu-
maður á The Coocoo's Nest
kenndi okkur að jólakalkúnn-
inn sómir sér ekki síður vel í
eggjaköku, salati eða þessari
samloku. Við smellum (les.
Tobba konan mín smellir)
yfirleitt í þessa samloku
á nýársdag og horfum á
góða mynd,” segir Kalli um
þessa dýrindissamloku sem
smellpassar daginn eftir að
kalkúnn hefur verið fram-
reiddur á veisluborðinu.
200 g elduð kalkúnabringa
gott súrdeigsbrauð
piparrótarsósa (Horserad-
ish Alioli), t.d. frá StoneWall
Kitchen
tómatur
salat
súrar gúrkur
rauðlaukur
1 tsk. olía
1 tsk. balsamedik
@ Skerið kalkúninn í sneiðar.
@ Skerið laukinn í sneiðar og
steikið við miðlungshita upp úr
ediki og olíu uns hann er farinn
að karamellast.
@ Skerið væna sneið af brauði,
smyrjið með piparrótarsósu.
@ Raðið salati, tómat, rauðlauk
og súrum gúrkum á brauðið og
loks vænni sneið af kalkún.
@ Yndislegt!
Vegan er
ekkert vesen