Morgunblaðið - 01.12.2022, Page 36

Morgunblaðið - 01.12.2022, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022 Krónhjörtur @ Kjötið er tekið út úr kæli um 3-4 tímum fyrir eldun svo það sé ekki kalt þegar það fer á pönnuna. @ Kryddað með salti og pipar. @ Þá er það sett á mjög heita pönnu og steikt þar til góð húð myndast á kjötinu. @ Þá er því snúið við og smjöri bætt á pönnuna ásamt timíangreinum og hvítlauk. @ Sett í eldfast mót og inn í ofn á 180°C í 5 mínútur. @ Þá er kjötið tekið út úr ofninum í 5 mínútur og síðan sett aftur inn í ofn í 5 mínútur. @ Að lokum er kjötið látið hvíla í að minnsta kosti 5 mínútur áður en það er skorið. Gráðaostasósa 150 g sýrður rjómi 150 g majones 100 g gráðaostur safi úr hálfri sítrónu 1 tsk. hunang salt og pipar @ Allt nema salt og pipar sett saman í matvinnsluvél og unnið þar til sósan er kekkjalaus. Smakkað til með salti og pipar. Villisveppaostasósa 1 stk. villisveppaostur ½ stk. piparostur 500 ml matreiðslurjómi 1 tsk. villikraftur vatn @ Rjóminn hitaður í potti. Á meðan eru ostarnir rifnir niður á grófu rifjárni og bætt út í heitan rjómann. @ Hrært þar til ostarnir eru alveg bráðnaðir og smakkað til með villikrafti. Ef sósan er of þykk má þynna hana með vatni. Krónhjartarlund og tartar Kengúrufile 5.499 kr/stk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.