Morgunblaðið - 01.12.2022, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 01.12.2022, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022MORGUNBLAÐIÐ 37 Kramdar parmesan- kartöflur 500 g kartöflur 50 g smjör 2 hvítlauksgeirar 1 msk. steinselja 50 g rifinn parmesanostur @ Kartöflurnar soðnar í saltvatni þar til þær eru orðnar mjúkar í gegn. Passa þarf að ofsjóða þær ekki. @ Á meðan er smjörið brætt, hvít- laukurinn rifinn út í og steinseljan skorin smátt og bætt saman við. @ Kartöflunum er raðað á bök- unarplötu og þær kramdar aðeins með þykkbotna glasi. @ Þá er smjörblöndunni penslað yfir kartöflurnar og parmesanostinum stráð yfir þær að lokum. @ Þá eru þær bakaðar á 200°C í 10-15 mínútur eða þar til þær eru stökkar og flottar. Bátasalat 1 haus jöklasalat 200 g beikon 1 lítill rauðlaukur kirsuberjatómatar gráðaostur gráðaostssósa @ Jöklasalatshausinn er skorinn í fernt og hver fjórðungur skolaður vel. Stöngullinn er þá skorinn úr hverjum bát fyrir sig. @ Beikonið er steikt þar til stökkt og þá skorið smátt. @ Rauðlaukurinn skorinn í þunn- ar sneiðar og tómatarnir skornir í tvennt. @ Þá er gráðaostssósunni hellt yfir og beikoni, rauðlauk, tómöt- um og gráðaostsbitum raðað ofan á sósuna. Krónhjartar- tartar 300 g krónhjartarfilet 1 stór skalottlaukur 1 lítill rauður chili ¼ grænt epli 1 msk. graslaukur börkur af hálfri sítrónu 3 msk. góð ólífuolía salt og pipar @ Krónhjörtur, skalottlaukur, chilipipar, epli og graslaukur allt skorið mjög smátt og blandað saman í skál. @ Sitrónan þvegin og börkurinn rifinn fínt yfir blönduna. @ Olíunni hrært saman við. Smakkað til með salti og pipar. @ Borið fram á laufabrauði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.