Morgunblaðið - 01.12.2022, Page 39
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022MORGUNBLAÐIÐ 39
Síríuslí
30 ml Hvítserkur romm
15 ml Rökkvi
heitt súkkulaði
Ofan á: Þeyttur rjómi og saltkara-
mellusúkkulaðispænir
Ílát: Kaffibolli
Skraut: Súkkulaðispænir
@ Síríuslí er „byggður“ drykkur og
því fljótlegt að búa hann til ef mað-
ur er með öll hráefnin við höndina.
Við byrjum á að setja rommið í
bolla og hellum svo yfir rjúkandi
heitu súkkulaði.
@ Að lokum léttþeytum við
rjómann og hellum honum varlega
yfir heita súkkulaðið í bollanum og
skreytum með súkkulaðispæni.
Rúdólf
40 ml Angelica-gin
20 ml krækiberjalíkjör frá 64 Reykjavík Distillery
20 ml límónusafi
15 ml sykursíróp
Ílát: Lágt glas (e. old fashioned)
Skraut: Hreindýramosi
@ Við setjum öll hráefnin í hristara, fyllum hann alveg upp að brún með klaka og hristum
hressilega í 10-15 sekúndur eða þar til hristarinn er orðinn vel kaldur.
@ Að lokum er drykknum hellt í gegnum sigti ofan í kælt lágt glas með klaka. Hann er svo
skreyttur með hreindýramosa.
Skyrgámur
30 ml Kötlu-vodki
20 ml bláberjalíkjör frá 64 Reykjavík Distillery
20 ml vanillusíróp
30 ml rjómi
1 barskeið skyr
Ílát: Kokteilglas
Skraut: Múskat
@ Við setjum öll hráefnin í hristara, fyllum hann alveg upp að brún með klaka og hristum
hressilega í 10-15 sekúndur eða þar til hristarinn er orðinn vel kaldur.
@ Að lokum er drykknum hellt í gegnum sigti ofan i kælt kokteilglas og múskat rifið yfir drykk-
inn.
@ Vanillusírópið er útbúið þannig að blandað er saman vatni og sykri í jöfnum hlutföllum,
vanillustöng skorin í tvennt og látin liggja í sírópinu yfir nótt.