Borgfirðingabók - 01.12.2008, Síða 30
0 Borgfirðingabók 2008
Guðmundar), Ari Guðmundsson vegaverkstjóri Borgarnesi, Benedikt
Sveinsson kaupfélagsstjóri Borgarnesi og Davíð Þorsteinsson bóndi
Arnbjargarlæk. Ekið var alla leið til Búðardals og gist þar.“
Í sömu grein getur Magnús Jónasson þess að líklega hafi Magnús
Gunnlaugsson frá Akranesi farið leiðina nokkru fyrr þetta sama
sumar.
Í sömu bók, bls.126, segir Magnús Gunnlaugsson bifreiðastjóri á
Akranesi að hann hafi ekið yfir Brattabrekku sumarið 1931: ,,Honum
hafði borist sú fregn að Bröttubrekkuvegur væri orðinn bílfær og
hugðist hann fara þá leið. En er til kom reyndist sú fregn röng. Ari
Guðmundsson vegaverkstjóri frá Skálpastöðum var með vinnuflokk á
fjallinu, en þá var enn ógerður nokkur kafli vestanmegin. Þar hallaði
vel undan á vesturleið og því ekki verulega vandkvæðum bundið að
komast leiðar sinnar í þá átt, en allt annað en álitlegt í bakaleið,
þegar sækja þyrfti upp í móti. Ari verkstjóri hét því að láta í té hjálp
sinna manna til þess að koma bílnum til baka yfir hinn óvegaða kafla,
og í trausti þess hélt Magnús för sinni áfram og komst alla leið að
Litla-Vatnshorni eins og ráðgert hafði verið. Eins og við var búist
reyndist það miklum erfiðleikum bundið að koma bílnum til baka yfir
vegleysuna, og í þeim átökum brotnaði í honum fyrsta gangskiptingin.
Samt komst hann yfir með hjálp vegagerðarmanna, og Magnúsi tókst
að aka honum heim til sín þrátt fyrir brotið.“
Móðir mín Ólöf Sigvaldadóttir sagði mér að faðir minn, Ari
Guðmundsson hefði komið akandi yfir Brattabrekku ásamt Friðriki
Þórðarsyni sem var bílstjóri, Guðmundi Björnssyni sýslumanni og
Jóni ,,veiðimanni“ Jónssyni. Komu að Kolsstöðum til Guðlaugs
Magnússsonar og konu hans Jóhönnu og var Ólöf kaupakona þar.
Skálað var í góðum veigum, þar með talinn bílstjórinn, en sýslumaður
skálaði í mysu. Ók síðan hópurinn til baka. Mun þetta hafa verðið
191. Var þetta í fyrsta sinni sem hún sá Ara Guðmundsson, en
þau giftu sig 19 og eyddu brúðkaupsnóttinni í vegavinnutjaldi á
Holtavörðuheiði.
Í Morgunblaðinu 15. september 191 segir: ,,Vegamálastjóri er á
eftirlitsferð norður í land. Fór hann hjeðan á bíl fyrir nokkrum dögum
vestur yfir Brattabrekku, yfir Dali og Laxárdalsheiði til Borðeyrar.
Mun það vera í fyrsta skifti að bíll fer þá leið.“
Í Ársriti Ferðafélags Íslands 1947, bls. 24. segir Þorsteinn Þorsteins-
son, sýslumaður Dalamanna: „Frá landnámstíð hefur meginvegurinn
milli Miðdala og Borgarfjarðar legið um Brattabrekku og Bjarnardal”
– og síðar segir hann: „Fjallhryggur þessi milli Bjarnardalsár og
Suðurár heitir Brattabrekka og skiptir sýslum.“