Rit Mógilsár - 2022, Blaðsíða 6

Rit Mógilsár - 2022, Blaðsíða 6
6 Rit Mógilsár Gildis taka nýrrar landsáætlunar í skógrækt liggur saman með upphafi nýs kjörtímabils. Það skiptir máli að nýjar sveitarstjórnir átti sig á hvað felst í þessari landsáætlun, því sveitarfélögin eru hér mjög stór hag aðili og tengjast öllum meginmarkmiðunum fimm. Ef landsáætlunin á í raun að koma til fram- kvæmda, eins og stefnt er að, og ef við ætlum að ná þeim markmiðum sem þar koma fram, verður að takast að gera sveitarfélögin að virkum aðilum áætlunar innar. Hlutverk sveitarstjórnarfólks er að móta stefnu og áætlanir, sem sveitarfélögin starfa eftir. Þar verður til ákveðinn rammi sem embættis fólk sveitar félag- anna fylgir. Til að ná sveitar félögunum virkum verð- ur landsáætlunin að tengj ast loftslagsáætlunum sveitar félaganna, svæðis skipulagi, votlendis áætlun- um og jafnvel niður á hverfaskipulag. En það verður líka að tengja landsáætlunina við önnur verkefni sveitarfélaga, svo sem lýðheilsumarkmið og vellíðan íbúa, atvinnuáætlanir, ferðaþjónustu og nýsköpun. Það þarf því að vera virkt samtal á milli skógræktar og sveitarfélaganna, til að sveitarfélögin séu skýr með sitt hlutverk. Þetta er samtal sem þarf að hefjast strax í upphafi nýs kjörtímabils. Sveitarfélögin þurfa líka að opna augun varðandi möguleika þeirra til uppbyggingar í gegnum skógrækt. Ekki bara með því að fá grænna umhverfi í kringum sig, held ur sér- stak lega hvað varðar atvinnuuppbyggingu tengda skógrækt. Ég mun hér á eftir fara stuttlega yfir fimm megin- markmið landsáætlunar og hvernig þau tengjast helstu verkefnum sveitarfélaganna. Upptalningin verð ur þó ekki tæmandi. Sjálfbær þróun Fyrsta meginmarkmiðið er að skógrækt stuðli að sjálfbærri þróun samfélagsins. Í þessu felst að tryggja þurfi jafnan aðgang núverandi og komandi kyn slóða að þeim gæðum sem skógrækt skapar. Þetta getur falist í aukinni útbreiðslu skóga, ræktun nýrra skóga án þess þó að gengið sé á önnur umhverfisgæði eða með því að vernda þá skóga sem fyrir eru. Í Reykjavík birtist þessi sýn m.a. í samstarfsverkefni borgarinnar við Skógræktarfélag Reykjavíkur um loftslagsskóga, sem tengir saman öll viðmið þessa fyrsta markmiðs. Sveitarfélögin þurfa, hvert á sínu svæði, að vinna út frá umhverfis- og loftslagsmarkmiðum þeirra, sem finna má í umhverfis-, votlendis- og loftslagsstefnum Samstarf við sveitarfélög um skógrækt Þórdís Lóa Þórhallsdóttir REYKJAVÍKURBORG OG SAMBAND ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA loa@reykjavik.is sveitarfélaganna. Þar þarf hlutur skógræktar að vera skýr hvað það varðar að tryggja líffræðilega fjöl- breytni innan sveitarfélagsins, að vera mótvægi við lofts lags vandann og til að tryggja vatns- og jarð- vegs vernd. Auk þess þarf að huga að skógrækt til viðarnytja og þá í samhengi við atvinnustefnu sveitarfélaganna. Í skógrækt eru mikil tækifæri til nytja en ekki bara til yndis og að njóta. Að sjálfsögðu þarf að huga að þeirri samfélagslegu sátt sem þarf að ríkja um skóga. Á hana var lögð mjög rík áhersla í vinnu verkefnisstjórnar lands- áætlunar í skógrækt. Þessi sátt þarf að birtast í félags legum ágóða íbúanna, sem geta nýtt skóga til heilsu eflingar og almennrar útiveru. Uppbygging skóga sem útivistarsvæða ætti því að vera mikilvægt innlegg í lýðheilsustefnu sveitarfélaganna, auk þess sem skógar skapa mikilvæg græn samfélagssvæði, þar sem íbúar og aðrir gestir geta komið saman og notið útiverunnar í rjóðrum og á skipulögðum leik- eða grillsvæðum. Aðalskipulag sveitarfélaganna þarf svo að endur- spegla þessar áherslur sem birtast í öðrum stefnum, til þess að þær komist raunverulega til framkvæmda og að íbúar geti notið hliðaráhrifa af skógrækt, svo sem aukins skjóls í sveitarfélaginu. Loftslagshlutleysi Stærsti vandi sem við stöndum frammi fyrir — fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir — eru loftslags- breytingar og hvernig við munum fást við þær. Annað meginmarkmiðið er að skógar og skógrækt verði lykilatriði í að fást við þessar breytingar og draga úr kolefni í andrúmsloftinu. Við vitum að til verður töluverð binding kolefnis í trjám og er skógrækt því mikilvægur liður í loftslagsbókhaldi ríkis og sveitar- félaga. Til að mæta loftslagsmarkmiðum sínum er lykilatriði að sveitarfélögin komi til sam starfs við skógræktarfélög og skógarbændur. Undanfarin ár höfum við séð að sveitarfélög eru í vaxandi mæli viljug til að vera með þessa loftslagssýn og skilja mikilvægi þess að sveitarfélögin séu hluti af baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Án sveitarfélaganna og slagkrafts þeirra munum við ekki ná þeim umskiptum sem þurfa að eiga sér stað til að ná Parísarmarkmiðunum um kolefnishlutleysi árið 2040. Þá er það líka orðið lögbundin skylda sveitar félaga, með lögum um breytingu á lögum um

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.