Rit Mógilsár - 2022, Blaðsíða 34
34 Rit Mógilsár
Tilgátan sem rannsökuð var í þessu verkefni var
hvort mælanlegur munur kæmi fram á lifun og
vexti þriggja birki kvæma frá SA-landi, ef þau væru
ræktuð fyrir miðri sveit í Öræfum þar sem umhverfis-
aðstæður eru um margt ólíkar þeim sem eru þar sem
skógarleifarnar er að finna á SA-landi.
Efni og aðferðir
Fræi var safnað af fallegum birkitrjám í Bæjarstað,
Kví skerjum og Steinadal haustið 2007. Fræið var loft-
þurrkað og geymt í kæli þar til því var sáð í sáð bakka
með rakri sáð mold. Þegar plönturnar höfðu spírað
2. mynd. Tilraunasvæðið á Hofsnesi í Öræfum. Myndin var tekin í ágúst 2019.
vorið 2008 voru þær prikl aðar yfir í 40 gata plöntu-
bakka og ræktaðar áfram utanhúss í heimagarði í
Garða bæ. Hinn 23. maí 2009 voru 50 plöntur af hverju
kvæmi gróður settar með geispu í hefð bundna 5
blokka til raun, með 10 plönt um af hverju kvæmi í
hverri blokk, í rýrt gras lendi á Hofs nesi í Öræfum (1.
mynd). Um 15 g af áburðinum Græði 8 voru borin á
kringum hverja plöntu við gróðursetningu. Upphaf-
lega var sams konar tilraun einnig gróður sett í land
Skóg ræktar félags Garða bæjar (Barbara Stanzeit
& Bjarni Diðrik Sigurðs son, 2012), en hún misfórst
vegna mik illar frost lyftingar og hefur verið afskrifuð.
Niðurstöður
Lifun
Lifun hefur verið mjög góð í þessari tilraun, eða á
bilinu 80%-100% (3. mynd). Kvískerjabirkið hafði mest
afföll í upphafi (metið 20% árið 2009), en af ein hverj-
um ástæðum þá voru ungplönturnar af þessu kvæmi
ekki eins öflugar og af hinum tveimur kvæmunum
eftir forræktun (gögn ekki sýnd). Engin marktæk
afföll urðu eftir fyrsta vaxtarárið í foldu og jafnvel
lifnaði þá hluti plantna við sem áður höfðu verið
metnar sem dauður, og það útskýrir meira en 100%
lifun eftir fyrsta ár á 3. mynd hjá Kvískerjabirkinu.
Vöxtur
Yfirhæðarvöxtur hefur verið svipaður hjá öllum
þremur kvæmunum frá upphafi og árið 2019 var yfir-
hæð í tilrauninni 1,25, 1,16 og 1,15 m fyrir Bæjarstað,
Steinadal og Kvísker (3. mynd). Bæjarstaður hafði
mark tækt meiri meðalhæð en hin kvæmin eftir
fyrsta vaxtarár í foldu (p<0.002), en árið 2019 var ekki
lengur neinn marktækur munur á meðalhæð þeirra
(3. mynd). Meðalhæð var að jafnaði 13 cm haustið
2009 en 59 cm haustið 2019, það gefur 4,6 cm ársvöxt
að jafnaði fyrstu 10 árin í foldu.