Rit Mógilsár - 2022, Blaðsíða 23
Rit Mógilsár 23
úr minna að spila til að vaxa ofanjarðar á ber angr-
inum. Plönt urnar á skýldu svæðunum 2 og 3 nýttu
hins vegar hlut falls lega meira af vexti sínum í ljós til-
lífandi og lauf berandi hluta (lauf og greinar; tafla 3).
Það kom líka vel í ljós við samanburð á laufatarmáli
(LA) milli meðferðanna. Það var áhugavert að LA
jókst hlutfalls lega meira í skjóli en sem nam aukn-
ingu í líf massa laufa. LA á berangri á svæði 2 var
82% meiri (t-test:p<0,001) en á berangri á svæði 1, og
129% á svæði 3 (t-test:p<0,001), þ.e. laufatarmál á
mikið skýldu svæði var rúmlega tvöfalt meira en á
berangri (tafla 3).
LA jókst hlutfallslega meira en lífmassi laufs, sem
sést vel á því að hámarktækur munur (t-test:p<0,001)
reynd ist á SLA á berangri á svæði 1 (SLA=141) og á
báðum skýldu svæðunum; hálfskýldu svæði 2 (SLA=
+5%) og svæði 3 með mikið skjól (SLA= +17%) (6.
mynd). Marktækur munur var einnig á LAR (hlutfall
lauf atar af heildarlífmassa) milli viðmiðs á berangri
og plantna á báðum skjólsvæðunum. LAR jókst um
7% (p<0,05) og 34% (p<0,001) á svæði 2 og svæði 3.
Það að LAR hækkaði hlutfallslega minna með auknu
skjóli en hlutfallslega aukningin í heildarlífmassa
(tafla 3), má túlka sem svo að ljóstillífunarhraði (og/
eða tími ljóstillífunar) hafi einnig aukist í skjól inu
til að geta útskýrt alla séðu aukninguna í heildar-
lífmassa.
Svæði 1 Svæði 2 Svæði 3
141
148
165
Sp
ec
i
cL
ea
fA
re
a
(c
m
² l
au
f/
g
la
u
f)
125
130
135
140
145
150
155
160
165
170
6. mynd. SLA (cm² lauf/gr lauf) á mismunandi skýldum meðferðarstöðum. Súlur í endum stöpla sýna staðalskekkju, p<0,05
(1,96*SE).
Samband vindálags og plöntuvaxtar
Skjól var metið í þessari tilraun með mælingu
á vind hraða meðferðarsvæðanna þriggja. Tafla
4 sýnir hlutfalls legt skjól á svæðum í Fljótshlíð.
Skjólhlutfalls stuðull er fenginn með því að finna
hlutfall meðal vinds á skjólsvæði af meðalvindi á
berangri og draga það frá meðaltali óhindraðs vinds
á berangri.
Svæði 1 Svæði 2 Svæði 3
Hlutfall vinds af fullum vindstyrk svæðis 1 100 55 4
Stuðull skjóls eða skjólhlutfall 0 45 96
Tafla 4. Reiknaður stuðull skjólhlutfalls á svæðum 1, 2 og 3 í Fljótshlíð út frá mælingum á meðalvindhraða sumarið 2016.