Rit Mógilsár - 2022, Blaðsíða 40
40 Rit Mógilsár
segja til um hvers konar inngrip þarf þar sem líkur á
sjálf græðslu eru takmarkaðar (1B). Skilgreind verða
við miðunar vistkerfi (1C) og stöðu- og tilfærslulíkön
(1D) fyrir endur heimt birki skóga sem gera skipu lag
og inn leiðingu endurheimtar verkefna mark vissari
og stuðla að skil virku árangurs mati og aðlögun
þeirra.
Vinnupakki 2:
Samfélagslegar áskoranir, tækifæri og leiðir
Meginmarkmið vinnupakka 2 er að greina kerfislæga
og samfélagslega þætti sem hafa jákvæð og/eða
nei kvæð áhrif á vernd og endurheimt birkivistkerfa.
Niður stöðurnar verða nýttar til að þróa verkferla
sem bæta sam setningu og virkni stjórnkerfisins (e.
gover nance system) sem hefur með vernd og nýt-
ingu vist kerfa á landi að gera (2A), efla flæði og
miðl un þekk ingar og auka samstarf á milli haghafa
(2B). Í verkþætti 2C verður viðhorf almennings til
birki vistkerfa rannsakað ásamt fagurferðilegu gildi
og upplifunar gildi þeirra, auk þess sem fjallað
verður um mikil vægi birkisins í menningu og listum
og möguleika á notkun þess í hönnun. Niðurstöður
vinnu pakkans munu nýtast stjórnvöldum og öðrum
hag höfum til að styrkja og efla stjórnarhætti (e.
governance) fyrir stefnumörkun, ákvarðanatöku og
þátt tökuaðferðir við endurheimt birkivistkerfa.
Vinnupakki 3:
Umhverfisáhrif og ávinningur endurheimtar
Vinnupakka 3 er ætlað að skýra umhverfislegan
ávinn ing af endurheimt birkivistkerfa með áherslu
á kol efnis forða vistkerfa (3A), vatnsbúskap (3B), líf-
fræðilega fjölbreytni botngróðurs og jarðvegslífs
(3C), sem og sjónræn landslagsáhrif (3D). Hann
mun því auka þekkingu á þýðingu endurheimtar
birki vistkerfa fyrir stærð kolefnisgeyma og þróun
upp söfnunar eða losunar, vatnsheldni og -miðlun,
líff ræðilega fjölbreytni ofan- og neðanjarðar (æð-
plöntur og jarðvegslífverur), ásamt sjónrænum
lands lags einkennum birkiskóga og stöðu þeirra
meðal helstu lands lags gerða á Íslandi. Gert verður
líkan til að skýra kolefnisjöfnuð endurheimtra birki-
vistkerfa (3E), sem mun nýtast til að skipuleggja
endurheimt og forgangsraða svæðum.
Vinnupakki 4:
Samþætting og stjórnun
Samþætting, fræðsla og kynning á þverfræðilegum
niður stöðum verkefnisins og þróun leiðbeininga um
verk ferla við endurheimt er meginmarkmið vinnu-
pakka 4, auk þess að tryggja aðgengi að afurðum
verkefnisins á sameiginlegri vefsíðu. Þess utan snýr
þessi vinnupakki að stjórn verkefnisins.
Lokaorð
Árangursrík endurheimt vistkerfa byggist á skýrri
sýn á hvers konar vistkerfum stefnt skuli að, skilningi
á eiginleikum þeirra, virkni og þeim vistfræðilegu
ferlum sem að baki liggja. Árangurinn ræðst einnig
af áhuga og þekkingu haghafa og að stjórnarhættir
styðji við vernd og endurheimt vistkerfa, hvort sem
það er í gegnum lög, reglugerðir eða aðra hvata.
BirkiVist mun skila fjölbreyttum, þverfræðilegum
rann sóknaniðurstöðum sem bæta þekkingu á birki-
vistkerfum og samfélagslegri umgjörð fyrir vernd og
endur heimt þeirra. Einnig gefur það yfirsýn yfir áhrif
endur heimtar á ólíka þætti, frá örverum til upp lifunar.
Niður stöður verkefnisins munu efla fræði legan
grunn fyrir þróun aðferða, verklags og forgangs-
röðunar við endur heimt birki vistkerfa byggt á bestu
fáanlegu þekkingu og kerfisbundinni greiningu.
Afurðir verkefnisins felast einnig í leiðbeiningum og
margs konar verkfærum er verða m.a. aðgengileg á
opinni vefsíðu.
Heimildir
Aradottir, A. L., & G. Halldorsson. 2018. Colonization of
woodland species during restoration: seed or safe
site limitation? Restoration Ecology 26: S73-S83.
https://doi.org/10.1111/rec.12645
Arnalds, O. 2015. The Soils of Iceland. Springer, Dordrecht,
Holland.
Arnór Snorrason, Björn Traustason, Bjarki Þór Kjartansson,
Lárus Heiðarsson, Rúnar Ísleifsson & Ólafur Eggerts-
son, 2016. Náttúrulegt birki á Íslandi – Ný úttekt á
útbreiðslu þess og ástandi. Náttúrufræðingurinn
86: 97-111.
Crofts, R. 2011. Healing the Land. The Story of Land Reclama
tion and Soil Conservation in Iceland. Soil Conserva-
tion Service of Iceland.
Danfríður Skarphéðinsdóttir, Ása. L. Aradóttir, Bjarni D.
Sigurðsson, Þröstur Eysteinsson, Skúli Björnsson,
Jón G. Pétursson, Borgþór Magnússon & Trausti
Baldursson, 2007. Vernd og endurheimt ís lenskra
birki skóga. Skýrsla og tillögur nefndar. Umhverfis-
ráðuneytið. https://www.stjornarradid.is/media/
umhverfisraduneyti-media/media/PDF_skrar/
Birkiskogar.pdf
Forsætisráðuneytið 2020. Vísinda og tæknistefna 2020
2022. https://www.stjornarradid.is/library/03-
Verkefni/Visindi/V%c3%adsinda-%20og%20
t%c3%a6knistefna%202020-2022.pdf
Gann, G.D., T. McDonald, B. Walder, o.fl., 2019. Interna-
tional principles and standards for the practice of
eco logical restora tion. Second edition. Restora tion
Ecology 27: S1–S46. https://doi.org/10.1111/rec.13035
IPBES, 2018. The IPBES assessment report on land degrada
tion and restoration. Montanarella, L., R. Scholes, &
A. Brainich (ritstj.). Secretariat of the Intergovern-
mental Science-Policy Platform on Biodiversity and
Ecosystem Services, Bonn. https://doi.org/10.5281/
zenodo.3237392
IPBES, 2019. Summary for policymakers of the global assess
ment report on biodiversity and ecosystem services
of the Intergovernmental SciencePolicy Platform on
Biodiversity and Ecosystem Services. S. Díaz, et al.
(eds.). IPBES secretariat, Bonn. https://ipbes.net/
global-assessment