Rit Mógilsár - 2022, Page 8

Rit Mógilsár - 2022, Page 8
8 Rit Mógilsár Loftslagsvænn landbúnaður Binding og losun gróðurhúsalofttegunda í fortíð, nútíð og framtíð Loftslagsvænn landbúnaður er samstarfsverkefni Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, Landgræðsl- unnar, Skógræktarinnar, matvælaráðuneytisins og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Það er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslags- málum og hefur að markmiði að draga úr losun gróður húsa lofttegunda og auka kolefnisbindingu. Verk efnið hlaut hvatningarviðurkenningu Festu og Reykjavíkur borgar á árlegum loftslagsfundi þeirra árið 2021. Verkefnið vinnur með grasrótarnálgun en þátt tak- endur gera aðgerðaáætlun sem er endur skoðuð ár lega og vinna markvisst að settum markmiðum í dag legum bústörfum. Ráðgjöf og fræðsla byggist á virku samtali og samstarfi þátttakanda og ráðgjafa eflir þátttakendur til loftslagsvænna aðgerða. Farið er markvisst yfir mögulegar aðgerðir landbúnaðarins til loftslagsvænna landbúnaðarhátta og er skógrækt mikilvægur þáttur aðgerðaáætlana. Hún er mjög aðgengileg með mikla möguleika í bindingu, m.a. með skjólbeltaræktun, ræktun hagaskóga og nytja- skóga ásamt endurheimt skóglendis. Verkefnið skilar fjölda afurða og hefur margþættan ávinning, ekki einungis í tengslum við loftslagsmál, heldur má einnig nefna náttúruvænar lausnir, sjálf- bærni, hringrásarhagkerfið, aukið heilbrigði og vel- ferð búfjár ásamt því að það getur haft hag rænan ávinning fyrir þátttakendur. Verkefnið er því mikil- vægur og áhrifaríkur hvati til þess að hvetja bændur til loftslags vænni búskaparhátta sem henta öllum bú greinum og jafnt stærri sem smærri búum. Berglind Ósk Alfreðsdóttir RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS berglind@rml.is Arnór Snorrason arnor@skogur.is Í erindinu er farið yfir núverandi og sögulega þróun nettóbindingar skóglenda Íslandi. Skilað er inn á hverju ári bókhaldi um bindingu á losun skóglenda frá árinu 1990 og á þessu ári (2022) er skilað gögnum til og með árinu 2020. Á þessum rúmlega þrjátíu árum hefur nettóbinding skóglenda og skógræktar sautjánfaldast og farið úr -30.000 tonnum í -540.000 tonn CO2-ígilda. Farið er yfir hvernig binding og losun skiptist á milli mismunandi skóglenda og kolefnisforðabúra en lífmassi er langáhrifamesta forðabúrið og stendur fyrir 81% af bindingu skóglenda. Ræktaðir skógar standa fyrir um 75% af nettóbindingu skóglenda. Fjallað er um helstu skýringar á aukinni nettóbind- ingu skógræktar og er þar helst að nefna aukið flatarmál ræktaðra skóga auk þess að lífmassa- vöxtur í náttúrulegum birkiskógum hefur tekið kipp. Aldurssamsetning á bæði ræktuðum sem náttúru- legum skógum hefur þarna mikil árhrif en báðar skógartegundir eru með hlutfallslega stóra yngri aldursflokka sem eiga enn eftir að bæta mikið við sig í lífmassavexti og þ.a.l. bindingu. Farið er yfir uppruna og gæði gagna sem eru notuð við gerð bókhaldsins. Gögnin sem mæla forðabúrið sem hefur mest áhrif, þ.e. lífmassann, eru að hæstu gæðum og með óvissu á bilinu 4%-15%. Að lokum er gerð grein fyrir nýrri spá um nettó- bindingu skóglenda fram til 2040. Spáin er hluti af skylduskilum vegna samnings Íslands og Noregs við ESB um sameiginleg loftslagsmarkmið 2021-30. Spáin tekur aðeins til verkefna sem þegar hafa verið samþykkt og í flestum tilvikum eru hafin. Spáin er því í samræmi við samþykkta aðgerðaráætlun stjórn valda frá árinu 2020 sem gerir ráð fyrir að árleg ný skógrækt aukist í 2.500 hektara frá og með árinu 2025. Aðrir þættir taka mið af þróun undan- farinna ára s.s. landnám náttúrulegs birkis sem er áætlað 563 hektarar á ári, hlutfall nýtingar á nýtan-

x

Rit Mógilsár

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.