Víkurfréttir - 16.02.2022, Page 9
þumlunga slöngu um 350 metra
vegalengd niður í sjó. Eldurinn var
þá orðinn svo magnaður að ekki var
viðlit að bjarga húsinu. Tvö næstu
íbúðarhús voru í hættu en þeim
tókst að bjarga. Eftirmálin af brun-
anum í Skildi urðu m.a. þau að síðan
var ekki haldin jólatrésskemmtun
í Keflavík nema slökkvilið væri á
vettvangi með búnað og tvo slökkvi-
liðsmenn sem gættu allra undan-
komuleiða,“ segir m.a. í sögunni um
þennan mannskæða bruna.
Sjúkraflutningar grunnur
að sólarhringvakt
Mikil breyting varð hjá Bruna-
vörnum Suðurnesja árið 1988
þegar gerður var samningur við
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja um
sjúkraflutninga. Stofnunin hafði áður
sjálf annast þá flutninga og verið
með áhafnir á sjúkrabíla.
„Þá urðu hér sólarhringsvaktir
á slökkvistöðinni og tveir á vakt
í upphafi. Í dag eru erum við sex
skráðir á vaktinni. Í upphafi voru
þetta 850–900 verkefni á ári en í
dag eru þetta orðin 4.300 útköll og
að langstærstum hluta sjúkraflutn-
ingar. Hreyfingar slökkviliðs eru um
200 á ári en eldsvoðar miklu færri.
Eldsvoðar eru þó alltaf miklu mann-
frekari en sjúkraflutningar,“ segir Jón.
Í dag eru tuttugu og fjórir sem
ganga vaktir hjá Brunavörnum Suð-
urnesja í Reykjanesbæ og í Grindavík
eru sex starfsmenn sem sinna
sjúkraflutningum á bakvöktum. Þá
eru Brunavarnir Suðurnesja með
útstöð í Vogum þar sem staðsettur
er slökkvibíll og markmiðið er að
þar séu starfandi átta hlutastarf-
andi slökkviliðsmenn til að sinna
útköllum þegar þau verða.
„Það á ekki að skipta máli hvar á
svæði Brunavarna Suðurnesja þú
býrð, þú átt alls staðar að njóta sam-
bærilegrar þjónustu,“ segir Jón
Góð menntun starfsmanna
Menntun starfsmanna Brunavarna
Suðurnesja er orðin mjög góð að
sögn slökkviliðsstjórans og hefur
vaxið á undanförnum árum. Flestir
eru komnir með góða menntun í
sjúkraflutningum og nú eru þrír
menn í Bandaríkjunum í bráða-
tæknanámi. Þegar þeir hafa lokið
sínu námi eru Brunavarnir Suður-
nesja komnar með fjóra bráðatækna
og verður því einn á hverri vakt. Jón
segir að menntunarstig starfsmanna
BS hafi aldrei verið hærra.
Brunavarnir Suðurnesja eru að
takast á við áskoranir alla daga og nú
er það vinnutímastytting. Það þýðir
að bæta þarf við einni vakt og fjölga
þarf starfsmönnum um átta. Þá þarf
að fjölga bráðatæknum til að manna
þessa nýju vakt. „En við erum vel
settir hvað mannskap varðar og það
er í þessari starfsemi eins og öllu
að mannskapurinn skiptir bara öllu
máli. Við erum með góðan mann-
skap.“
Jón segir að starf slökkviliðs- og
sjúkraflutningamannsins sé öðru-
vísi starf en nánast öll önnur vinna.
Starfið sé fjölbreytt. „Ég held að ég
geti fullyrt að launin séu orðin sam-
keppnishæf.“
Gera starfið að ævistarfi
Starfsmannavelta er ekki mikil hjá
Brunavörnum Suðurnesja. Margir
hafa kosið að gera starfið að sínu
ævistarfi og vinna við það út starfs-
ferilinn. Jón segir því að það sé stöð-
ugleiki í mannahaldi. „Það skiptir
máli í þessu samhengi að að það sé
stöðugleiki í mannahaldi vegna þess
að reynslan í þessum geira skiptir
gríðarlega miklu máli, bæði í sjúkra-
flutningum og eins í slökkvistörfum.
Það skiptir gríðarlega miklu máli að
vera með reynslumikið fólk.“
Kostnaðarauki upp á 140
milljónir króna á ári
Þú ert að tala um að þurfa að
manna heila vakt í viðbót út á stytt-
ingu vinnuvikunnar. Þetta hlýtur
að hafa einhver áhrif á reksturinn?
„Auðvitað kemur þetta til með
að hafa áhrif á reksturinn og þetta
verður ekkert auðvelt. Þetta er
rándýrt. Um 80% af kostnaði við
rekstur Brunavarna Suðurnesja
snýr að starfsmannakostnaði.
Kostnaður Brunavarna Suðurnesja
við styttingu vinnuvikunnar er um
140 milljónir króna á ári. Þetta er
hrein viðbót við reksturinn og þýðir
aukinn kostnað fyrir sveitarfélögin
og ríkið. Svo töluðu menn um að
stytting vinnuvikunnar ætti ekki
að kosta neitt. Þetta er gríðarlegur
kostnaðarauki,“ segir Jón
Brunavarnir Suðurnesja standa
núna í samningaviðræðum við
Sjúkratryggingar um þetta og verður
að ná lendingu fyrir 15. maí þegar
vinnutímastytting vaktavinnufólks
tekur gildi.
Reksturinn í jafnvægi
Rekstur Brunavarna Suðurnesja
hefur verið í jafnvægi frá því stofn-
unin var gerð að byggðasamlagi og
verið plúsmegin sem Jón segir skipta
miklu máli. Frá því að rekstrar-
forminu var breytt í byggðasamlag
hafa Brunavarnir Suðurnesja verið
reknar eins og hvert annað fyrirtæki.
Sveitarfélögin þrjú sem standa að
Brunavörnum Suðurnesja, Reykja-
nesbær, Suðurnesjabær og Sveitar-
félagið Vogar, greiða til starfsem-
innar þannig að kostnaðarskipting
er í samræmi við höfðatölu. Sveitar-
félögin greiða um 60% af rekstrar-
kostnaði og samningar við ríkið um
sjúkraflutninga og aðrar tekjur sjá
um 40% af rekstrarkostnaði Bruna-
varna Suðurnesja.
Auðvitað kemur
þetta til með að
hafa áhrif á reksturinn og
þetta verður ekkert auðvelt.
Þetta er rándýrt.
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA
Tækjabúnaður rúmast allur í bílasal stöðvarinnar.
Jón Guðlaugsson með gamla útkallssíma
slökkviliðsins. Takkaborðið var notað til að hringja
hópsímtal heim til allra slökkvilðsmanna.
LAUNAFULLTRÚI 50% STARF
Við leitum eftir áhugasömum einstaklingi í 50% starf sem launafulltrúi hjá Lögreglustjór-
anum á Suðurnesjum (LSS). Launafulltrúi vinnur náið með þeim launafulltrúa sem fyrir
er hjá embættinu. Lögreglan á Suðurnesjum sinnir almennri löggæslu, landamæraeftir-
liti, rannsóknum sakamála auk annarra verkefna. Hjá embættinu starfa um 170 manns á
þremur starfsstöðvum. Launafulltrúi mun hafa starfsstöð á Brekkustíg 39, Reykjanesbæ.
Næsti yfirmaður er fjármálastjóri.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Aðstoð við launavinnslu og frágang launa
• Upplýsingagjöf varðandi
launavinnslu og kjaratengd mál
• Skjölun mannauðs- og launagagna
• Samskipti við aðra starfsmenn embættisins
Hæfniskröfur
• Stúdentspróf eða önnur
menntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af launamálum
og/eða bókhaldi skilyrði
• Góð þekking á excel skilyrði. Önnur
almenn tölvuþekking mikill kostur
• Þekking á launamálum hins opinbera kostur
• Þekking á Oracle kostur
• Skipulagshæfileikar og nákvæm vinnubrögð
• Góð samskiptahæfni, jákvæðni og
hæfni í mannlegum samskiptum
• Metnaður til að ná árangri
• Góð færni í íslensku, bæði töluðu
máli og rituðu máli, nauðsynleg
Frekari upplýsingar um starfið
Ráðið er í stöðuna frá 1. apríl eða eftir nánara
samkomulagi.
Sækja skal um á Starfatorgi (starfatorg.is).
Einungis er tekið við umsóknum með þessum
hætti.
Umsækjendur eru beðnir um að skila með um-
sókn kynningarbréfi ásamt starfsferilskrá. Um-
sóknir skulu vera á íslensku. Eingöngu umsóknir
sem uppfylla þessi atriði eru teknar til greina.
Starfshlutfall 50%
Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2022
Nánari upplýsingar veitir
Pétur Óli Jónsson – poj01@logreglan.is –
4442200
Auglýsingin birtist fyrst á Starfatorgi þann 3. febrúar sl.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Brekkustíg 39 - 260 Reykjanesbæ - Sími 444 2200
Einnig birt á
www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfar-
andi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Súlutjörn 29, Njarðvík, 50% ehl.
gþ., fnr. 228-3669 , þingl. eig.
Fe Amor Parel Guðmundsson,
gerðarbeiðandi SaltPay IIB hf.,
þriðjudaginn 22. febrúar nk. kl.
09:00.
Sýslumaðurinn
á Suðurnesjum
14. febrúar 2022
uPPbOð
vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 9