Víkurfréttir - 16.02.2022, Side 12
Samkeppnishæfur
fjölskyldubær
Gígja Sigríður Guðjónsdóttir,
frambjóðandi í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Reykjanesbæ.
Í Reykjanesbæ líkt og í öðrum sveita-
félögum ber okkur skylda að sinna
lögbundinni lágmarksþjónustu við
íbúa. Forgangsröðun verkefna í þágu
grunnþjónustunnar er því eitt mikil-
vægasta verkefni sveitafélaga og upp-
bygging nýrra leikskóla á að vera ofar-
lega á þeim lista. Það þarf að tryggja
börnum öruggt leikskólapláss, ekki
bara börnum sem náð hafa tveggja ára
aldri, heldur þarf að tryggja börnum
dagvistun strax að loknu fæðingaror-
lofi foreldra.
Þetta er því miður ekki staðan í
okkar góða bæjarfélagi. Samkvæmt
skýrslu fræðsluráðs Reykjanesbæjar
í júní 2021 var hlutfall átján mánaða
barna með leikskólapláss aðeins 19%.
Þetta eru sláandi tölur og það þarf að
gera betur. Miklu betur.
Það þarf sýn og það þarf plan. Nýr
leikskóli er áformaður í Hlíðarhverfinu
og þar þarf að vinna hratt og örugg-
lega. Þar vil ég líka sjá nýjungar í fram-
kvæmd og ungbarnadeild til að mæta
þeirri gríðarlegu þörf sem er fyrir dag-
vistunarpláss fyrir yngstu börnin. Það
er þó ekki nóg eitt og sér, og miðað við
vöxtinn í bæjarfélaginu þarf að taka
rösklega til hendinni í þessum málum
og leggja drög að fleiri leikskólum og/
eða stækkun þeirra leikskóla sem eru
starfandi í dag.
Hugum að ímynd bæjarins – verum
stolt af bænum okkar
Nýlega var Stapaskóli tekinn í notkun
í Innri-Njarðvík og kórónar hann hið
glæsilega hverfi sem hefur risið hratt
síðustu árin. Skólinn er framúrskar-
andi, leiðandi á sínu sviði og fyrirmynd
fyrir aðra skóla sem eiga eftir að rísa á
Íslandi. Lítið hefur hinsvegar heyrst af
þessum glæsilega skóla þegar rýnt er í
aðra miðla en bæjarmiðilinn. Með ein-
faldri Google-leit að „Stapaskóli“ er til
að mynda ekki að finna eina einustu
frétt í neinum af stærstu fréttamiðlum
landsins.
Reykjanesbær er í samkeppni. Sam-
keppni við önnur sveitarfélög um íbúa,
fyrirtæki og athygli frá hinu opinbera.
Við eigum að vera stolt af bænum
okkar, tala hann upp og láta alla vita
af því að hér er gott að búa. Nýtum
styrkleikana okkar og byggjum upp
samfélag sem fólk sækist í, þar sem fólk
vill starfa, ala upp börnin sín og verja
frítíma sínum.
Ég flutti til Reykjanesbæjar fyrir
rúmum áratug. Sem aðfluttur íbúi
hef ég í ófá skipti þurft að svara fyrir
það hvernig mér hefði eiginlega getað
dottið það í hug að koma hingað úr
Reykjavík. Og þá er ég fljót að nefna
alla þá fjölmörgu kosti við það að búa
í Reykjanesbæ.
Við megum ekki láta slæmar fréttir
um bæinn okkar kaffæra þær góðu –
hér er ótrúlega gott að búa. Verum
stolt, höfum hátt og gerum bæinn
okkar ennþá betri. Mig langar að taka
þátt í því og þess vegna bið ég um
stuðning ykkar í 4. sætið í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins þann 26. febrúar.
Nokkrir punktar varðandi atvinnumál
Steinþór Jón Gunnarsson Aspelund,
frambjóðandi í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.
Ég tel að undirstaða samfélagsins
vera trygg atvinna. Covid-ástandið
hefur komið hvað mest niður á íbúum
Reykjanesbæjar og verðum við að
treysta á fleiri stoðir atvinnulífsins. Ef-
laust eru engar töfralausnir í þessum
málum, við þurfum að markaðsetja
Reykjanesbæ sem vænlegan kost fyrir
fyrirtæki til að setjast hér að og skapa
verðmæti. Við verðum að skapa aðlað-
andi miðbæ með fjölbreytta þjónustu,
verslanir og afþreyingu sem laðar að
mannlíf og bætir ásýnd bæjarins.
Hugmyndir:
• Eigum samtal við þau fyrirtæki
sem fyrir er í bænum, um hvað við
getum gert til að laða að viðskipta-
vini, skapa verðmæti og fjölga
störfum.
• Eflum miðbæinn en frekar.
• Aðstoðum örfyrirtæki að koma sér
fyrir og tökum þátt í frumkvöðla-
starfsemi.
• Leitum aðila sem kunna að hafa
áhuga á að reisa umhverfisvæna
iðn- og tæknifyrirtæki og t.d. boðið
þeim lóðir á viðráðanlegu verði
með tilheyrandi verðmætasköpun
í sátt við samfélagið og umhverfið.
• Fáum skemmtiferðaskip til að heim-
sækja bæinn með tilheyrandi ávinn-
ingi fyrir verslun og þjónustu ásamt
tekjum í hafnarsjóð. Reynslan sýnir
að þetta hefur verið góð búbót fyrir
bæjarfélögin í kringum landið.
• Verum fyrsti valkostur ferðamanna
þegar þeir lenda á flugvellinum með
tilheyrandi ávinningi fyrir verslun
og þjónustu.
• Tryggjum lagningu Suðurnesjalínu
2.
• Listinn er langt frá því að vera
tæmandi en vonandi skapar um-
ræðu og fleiri hugmyndir sem við
getum unnið með. Ég vil gjarnan
heyra ykkar álit, hugmyndir eða
hvað það er sem við getum gert til
að gera góðan bæ betri!
„Grípum tækifærin“
Fjölbreytt atvinna og skipulagsmál
Anna Sigríður Jóhannesdóttir,
BA sálfræði og MBA, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.
Við viljum fjölga atvinnutækifærum
í Reykjanesbæ og fögnum því þegar
við sjáum ný fyrirtæki hefja starfsemi
í okkar samfélagi. Þegar fyrirtæki
sýna áhuga og frumkvæði á að koma
til Reykjanesbæjar með starfsemi sína
er mikilvægt að bjóða þau velkomin en
huga þarf að mörgum þáttum er varðar
staðsetningu þess. Skipuleggja þarf
aðkomu að fyrirtækinu og umhverfi
þess með umferðaröryggi í huga. Það
er hlutverk Reykjanesbæjar að tryggja
þessa þætti áður en staðsetning er
ákveðin og uppbygging fyrirtækis
hefst. Íbúar geta haft áhrif á aðalskipu-
lag og gert athugasemdir þegar deili-
skipulag er kynnt en stundum er það
of seint og framkvæmd er þegar hafin.
Mörg hverfi eru að byggjast hratt
upp núna og nýjasta hverfið verður
Dalshverfi þrjú í Innri-Njarðvík. Íbúar
hafa látið í sér heyra þegar þeir sjá að
fyrirtæki eða stofnanir eru að hefja
starfsemi í þeirra hverfi og það er gott
að sjá að íbúar fylgjast vel með. Eitt
það mikilvægasta sem þarf að vera
sem næst öllum hverfum eru leik- og
grunnskólar og viljum við hvetja börn
til þess að ganga eða hjóla í skólann en
eins og kemur fram í stefnu Reykjanes-
bæjar þá eru börnin mikilvægust. Ör-
yggismál þurfa að vera í forgangi þegar
við skipuleggjum skóla og aðra starf-
semi í bænum en það er ekki á höndum
þeirra sem eru að byggja heldur eiga
þeir sem stjórna bænum að sjá til þess
að íbúar séu öruggir í umferðinni alla
daga. Fögnum og bjóðum fyrirtæki
og stofnanir velkomin í okkar bæ og
þannig aukum við atvinnutækifæri en
verum ávallt fagleg þegar kemur að
vinnubrögðum er varðar skipulag og
umhverfi.
Framtíðin sem eldri borgari
Eiður Ævarsson,
frambjóðandi í fjórða sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.
https://www.eiduraevarss.is/
Það er réttlætismál að eldra fólk fái að
miða starfslok sín við áhuga, færni og
getu en þurfi ekki að hætta virkri þátt-
töku í atvinnulífinu eingöngu vegna
aldurs. Aldurstengdar uppsagnir eiga
ekki að geta átt sér stað, við eigum
þess í stað að leggja áherslu á þekk-
ingu, reynslu, hæfni og menntun fólks
óháð aldri.
Lifa með reisn
Til að eftirlaunafólk geti lifað mann-
sæmandi lífi heima hjá sér og það
með reisn, þurfa ríki og sveitarfélög
að stórauka samvinnu sína. Þar þarf
heilsugæslan að vera vagga öldrunar-
þjónustunnar. Heilsugæslan þarf að
nálgast eldra fólk fyrr á lífsleiðinni
með samhæfðri teymisvinnu lækna,
hjúkrunarfræðinga og félagsþjónustu
sveitarfélaga. Mikið af þessu er á hendi
ríkisins en Reykjanesbær þarf að ýta á
eftir aukinni þjónustu og sú þjónusta
sé í lagi, að á hana geti fólk treyst og
þjónustan henti þeim sem hana þurfa.
Í eigin húsnæði
Einnig skal eftir fremsta megni reynt
að aðstoða eldra fólk í að dvelja í eigin
húsnæði eins lengi og það vill með
aðstoð heimaþjónustu. Ég hef þegar
fjallað um heilbrigðisþjónustu í fyrri
skrifum mínum og hægt er að nálgast
þá grein á heima síðu minni www.eid-
uraevarss.is.
Ljóst er að búseta á eigin heimili
hentar ekki öllum, þó að dvöl á hjúkr-
unarheimilum sé ekki þörf. Búsetu
úrræði fyrir eldra fólk eru hins vegar
allt of fábreytt og þar vantar í Reykja-
nesbæ millistigsbúsetu á milli eigin
heimilis og hjúkrunarheimilis. Þegar
ég tala um millistigsbúsetu þar er hug-
myndin sú að byggja íbúðakjarna þar
sem eldra fólk er aðstoðað af heima-
þjónustu með daglegar þarfir. Brýnt
er að byggja upp þannig búsetuform
til hagsbóta fyrir eldra fólk og þá ekki
síður fyrir velferðarkerfið, sem er eins
og fyrr kom fram á forræði ríkis og
sveitarfélaga.
Aukin uppbygging
Reykjanesbær þarf að ýta á að stór-
aukið verði við uppbyggingu öldrun-
arrýma.
Þó uppbygging sé við Nesvelli þá
stefnir í lokun Hlévangs þegar viðbygg-
ing Nesvalla verður tilbúin, það þýðir
að einungis verður aukið rými fyrir 30
manns sem uppfyllir ekki þá þörf sem
er í samfélaginu.
Einnig þarf að líta á hvernig hægt er
að auka aðstöðu til félagsstarfs á Nes-
völlum, en með aukningu íbúða á Nes-
völlum mun núverandi aðstaða ekki
ná að þjónusta alla þá íbúa þegar upp-
byggingunni er lokið.
Nú er svo komið að skoða þarf upp-
byggingu Nesvalla frá öllum hliðum
svo að starfið verði til fyrirmyndar,
aðstaðan næg og allt starf unnið undir
einu þaki þar sem félagsstarf, mötu-
neyti og skemmtanir fara saman og
nóg pláss er fyrir alla.
Góðar samgöngur
Guðbergur Reynisson,
2. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna 26. febrúar.
Til þess að góður bær verði betri
er nauðsynlegt að hafa góðar sam-
gönguæðar til og frá bænum.
Reykjanesbær býr yfir þeirri sér-
stöðu að vera með bæði stórskipa-
höfn og alþjóðaflugvöll í næsta ná-
grenni. Þar tel ég að liggi mörg fjöl-
breytt tækifæri.
Til dæmis fara í eðlilegu ár-
ferði um tíu milljónir ferðamanna
í gegnum Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar og um þrjár milljónir þeirra
koma út úr flugstöðinni og heim-
sækja landið. Allir þessir ferðamenn
þurfa að byrja heimsókn sína á því
að keyra Reykjanesbraut til höfuð-
borgarinnar. Samt getum við ekki
enn haft veginn boðlegan!
Reykjanesbrautin er einföld á
tveimur köflum og það eru hættu-
legustu kaflarnir í samgöngukerfi
Íslands.
Við fengum samt í gegn eftir
mikla vinnu bæði að Reykjanes-
braut kæmist á samgönguáætlun
og að hringtorgin væru sett fyrir
ofan Reykjanesbæ. Við höfum með
endalausu tuði náð að færa kaflann
frá Hvassahrauni að Krísuvíkuraf-
leggjara fram og verður þessi kafli
loksins boðinn út í vor.
Þar með verður hættulegasti
kaflinn loksins frá og ættum við
að geta keyrt tvöfalda Reykjanes-
braut frá Fitjum til Hafnarfjarðar
árið 2024.
En verkinu er ekki lokið, enn
er eftir kaflinn frá flugstöðinni
til Fitja og það verður að fara að
byrja að undir-
búa þann kafla.
Þar verður Reykjanesbær að vera
með í ráðum. Ekki má leyfa Isavia,
Kadeco og Vegagerðinni að ráða al-
gjörlega ferðinni þar. Þetta eru allt
of mikil ríkisfyrirtæki sem eru föst í
sínum ferlum og hugsa mikla meira
um höfuðborgarsvæðið heldur en
hagsmuni okkar hér í Reykjanesbæ.
Reykjanesbær verður að hafa
bæjarbúa með í ráðum og hanna
brautina með þarfir bæjarins að
leiðarljósi, t.d. með tilliti til hvernig
væri hægt að tengja Ásbrú betur
við Reykjanesbæ svo sá bæjarhluti
sé ekki alltaf eins og annað sveitar-
félag.
Einnig þarf að vera hægt að tappa
af allri þessarri umferð svo ferða-
menn komi við í fallega bænum
okkar til þess að styrkja verslun og
þjónustu.
Svo á innanlandsflugið auð-
vitað að vera á Keflavíkurflugvelli.
Þannig að fólk geti flogið hingað og
svo beint áfram í tengiflugi til Vest-
mannaeyja, Egilsstaða, Akureyrar,
Ísafjarðar o.s.frv. Þetta gerir Ísland
að betra ferðamannalandi, minkar
álagið á vegina og er bara skynsam-
legt í alla staði.
Góðar samgöngur eru ein af for-
sendum velferðar allra fjölskyldna
í bænum svo ég tali nú ekki um ör-
yggistilfinningu. Við eigum öll ást-
vini sem eru mikið í umferðinni og
við viljum geta verið örugg og róleg
yfir því.
Skil á aðSeNdu efNi
Greinar og annað aðsent efni sem óskað er
að birtist í Víkurfréttum þarf að hafa borist
ritstjórn fyrir hádegi mánudags á netfangið
vf@vf.is
Skynsamleg skref í umhverfismálum
Ríkharður Ibsen,
varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Í umhverfis- og loftslagsstefnu Reykja-
nesbæjar sem samþykkt var í lok apríl
á síðasta ári eru útlistuð skýr mark-
mið um hámörkun orkunýtni, t.d. með
aukningu á LED-lýsingu. Þar kemur
einnig fram að Reykjanesbær muni
skuldbinda sig til að nota 100% end-
urnýjanlega orku í samgöngum innan
bæjarmarka fyrir árið 2030. Ég beitti
mér mikið í vinnu við þessa skýrslu
Reykjanesbæjar sem fulltrúi stýrihóps
bæði framtíðarnefndar og umhverfis-
og skipulagsráðs sem hafði umsjón
með mótun tillögu stefnunnar sem er
metnaðarfull og nær til ársins 2035.
Á síðasta fundi í framtíðarnefnd
Reykjanesbæjar undir liðnum aðgerð-
aráætlun í umhverfis- og loftslags-
málum skrifaði ég bókun sem allir í
nefndinni tóku undir: „Framtíðarnefnd
samþykkir aðgerðaráætlun fyrir sitt
leyti og telur brýnt að LED-væðingu í
sveitarfélaginu verði flýtt. LED-lamp-
arnir bjóða upp á mun betri stýringu,
betri endingu, langtum minni viðhalds-
þörf, vinnusparnað og orkusparnað
upp á um 70%. Talið er að rekstrar-
kostnaður muni lækka um helming
og fjárfestingin borgi sig upp á fimm,
sex árum. Skilyrt verði að einungis
grænir orkukostir komi til greina þegar
kemur að næsta útboði almennings-
samgangna í Reykjanesbæ í samræmi
við stefnu sveitarfélagsins. Skýr mark-
mið og aðgerðir auðvelda öllum aðilum
undirbúning fyrir breyttar áherslur
þegar samningar verða lausir.“
Við sjálfstæðismenn höfum beitt
okkur fyrir því allt kjörtímabilið að
ráðast í LED-væðingu í sveitarfélag-
inu í samræmi við okkar stefnuskrá
og erum ekki ein um það að hafa bent
á þessa einföldu og skynsömu leið.
Umhverfissvið hefur að vísu aðeins
hafið þessa vinnu en er langt frá tak-
markinu og gengið hefur treglega að
fá stuðning meirihlutans til að halda
verkinu áfram. Nú hafa nokkur önnur
sveitarfélög klárað LED-væðingu þar á
meðal nágrannar okkar í Grindavík og
þar hefur rekstrarkostnaður götulýs-
ingar lækkað um helming. Hér er verið
að leggja til leiðir sem eru einfaldar,
liggja beint við og spara sveitarfélag-
inu hundruð milljóna til lengri tíma.
Það er með öllu óskiljanlegt að ekki sé
búið að klára þetta fyrir löngu síðan.
Við þurfum að stíga þessi skref bæði
fast og ákveðið – þau eru hagkvæm,
græn, skynsöm og löngu tímabær.
12 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM