Víkurfréttir - 02.03.2022, Side 7
Suðurnesjamenn eiga sína fulltrúa
í Söngvakeppninni 2022. Á fyrra
undanúrslitakvöldinu voru það
systkinin Már Gunnarsson og Ísold
Wilberg. Þeirra lag varð ekki meðal
þeirra tveggja sem náðu inn í úrslit.
Á laugardagskvöld er seinna und-
anúrslitakvöld Söngvakeppninnar
og þá er Sólborg okkar Guðbrands-
dóttir á sviði. Hún keppir undir
listamannsnafninu Suncity og með
henni syngur Sanna Martinez. Þær
munu flytja lagið „Hækkum í botn“
(e. Keep it cool).
„Ég fékk óvænt símtal frá Valla
sport þar sem hann bað mig um að
syngja lagið þeirra ásamt Sönnu sem
er frá Svíþjóð. Ég hoppaði eiginlega
á vagninn um leið og sé ekki eftir
því,“ segir Sólborg í samtali við
Víkurfréttir en höfundar lagsins eru
Sveinn Rúnar Sigurðsson og Valgeir
Magnússon. Valgeir semur einnig
íslenska texta lagsins ásamt Davíð
Guðbrandssyni, bróður Sólborgar.
„Ég kom inn í ferlið eftir að það
varð til en þetta er dans-popplag
sem heitir Hækkum í botn og fjallar í
rauninni bara um það að vera í núinu
og sækjast eftir því sem maður vill.
Hvernig hefur undirbúningur fyrir
undanúrslitakvöldið verið?
„Við höfum verið að æfa alla daga,
bæði söng og dans, passað líka að
hvíla okkur vel inn á milli og slaka á.
Það er mjög margt sem þarf að huga
að fyrir svona atriði og mikilvægt að
hafa flinkt fólk í hverju horni.“
Sólborg segir viðbrögð almennings
við laginu hafa verið góð. „Þetta er
lag sem ég sjálf fékk til dæmis fljótt
á heilann og ég vona að aðrir tengi
við það líka.“
Hvernig var að fylgjast með fyrra
undanúrslitakvöldinu?
„Það var bara yndislegt. Við eigum
magnað listafólk hérna á Íslandi og
það er gott að geta komið öll saman
og notið tónlistar þegar aðstæðurnar
í heiminum eru jafn hryllilegar og
raun ber vitni.“
Er komin spenna fyrir þínu undan-
úrslitakvöldi?
„Já, ég get eiginlega varla beðið.
Þetta verður bara algjört ævintýri,“
segir Sólborg Guðbrandsdóttir.
SÓLBORG GUÐBRANDSDÓTTIR
ER SUNCITY Í SÖNGVAKEPPNINNI
„Þetta verður
algjört ævintýri“
Sólborg keppir undir listamannsnafninu Suncity og
með henni syngur Sanna Martinez.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Leikskólinn Holt – Deildarstjórar
Leikskólinn Holt – Leikskólakennarar
Háaleitisskóli - Kennari í námsver
Velferðarsvið – Dagdvöl aldraðra
Velferðarsvið - Starfsmaður á heimili fatlaðra barna
Ævintýrasmiðja - Sumarstarf
Ævintýrasmiðja - Umsjónarmaður
Vinnuskóli - Yfirflokkstjóri skrifstofu
Vinnuskóli - Flokkstjórar
Vinnuskóli - Sérverkefna flokkstjóri
Vinnuskóli - Skrúðgarða flokkstjóri
Vinnuskóli - Yfirflokkstjóri í virku eftirliti
Duus Safnahús - Upplýsingagjöf og sýningagæsla
Starf við liðveislu
Viðburðir í mars
Í undirbúningi er málþing sem fram fer á
netinu þar sem fjallað verður um tengsl
menningar og lýðheilsu. Málþingið er
samstarfsverkefni menningarfulltrúa
á Suðurnesjum. Nánari tímasetning
verður kynnt fljótlega
MÁLÞING - NETVIÐBURÐUR
Menning og lýðheilsa
Frá Múmínálfum til meistaranema og margt þar
á milli verður á boðstólum í menningunni í mars.
Ný sýning í samstarfi við Listaháskóla Íslands
verður opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar og nú án
takmarkana og því allir boðnir hjartanlega velkomnir
við opnun. Bókasafn Reykjanesbæjar opnar sýningu
um Múmínálfana í Átthagastofunni sem mun
24. MARS - BÓKASAFNIÐ
Múmínálfarnir
Fimmtudaginn 24. mars kl. 17.00
verður opnuð sýning um Múmínálfa
í Átthagasto-
fu bókasafnsins. Sýningin
býður upp á gagnvirka leið til
að kynnast stafrófinu um leið og
farið er í skoðunarferð um hinn
töfrandi Múmíndal.
Fornsögukvöld með Þorvaldi. Farið
verður yfir hetjukvæðin Völundarkviðu
og Helgakviðu Hundingsbana I og II.
kl. 19:30 - 21:30, Þetta eru alls þrjú
þriðjudagskvöld en aðgangseyrir er
3.000 kr. Skráning á heimasíðu eða í
afgreiðslu bókasafnsins.
22. MARS - BÓKASAFNIÐ
Fornsögukvöld
31. MARS - BÓKASAFNIÐ
Erlingskvöld
Fimmtudaginn 31. mars klukkan 20:00
verður hið árlega Erlingskvöld haldið í
Bókasafni Reykjanesbæjar. Viðburðurinn
er haldinn til heiðurs fyrrum bæjarlista-
manni Keflavíkur, Erlingi Jónssyni.
Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.
Allir viðburðir á
Visit Reykjanesbær
Visit Reykjanesbær er nýr og spennandi vefur þar sem má nálgast margvíslegar upplýsingar
um Reykjanesbæ og þá afþreyingu sem þar er í boði fyrir börn og fullorðna.
www.visitreykjanesbaer.is
kæta háa sem lága og ýmsir aðrir viðburðir verða á
boðstólum þar svo sem Erlingskvöld, notaleg sögustund
með Höllu Karen og fornsögukvöld með Þorvaldi. Þá
er í undirbúningi einstaklega áhugavert málþing um
tengsl menningar og lýðheilsu en nákvæm tímasetning
í mars verður kynnt fljótlega. Fylgist endilega með því.
Hlökkum til að vera með ykkur í mars.
Minningar
morgundagsins
Listasafn Reykjanesbæjar býður í annað sinn meistara-
nemum á fyrsta ári í sýningagerð við Listaháskóla
Íslands að stýra sýningu í safninu. Minningar morgun-
dagsins stendur til sunnudagsins 24. apríl nk. Sýningar-
stjórar eru Iona Poldervaart, Sara Blöndal og Sunna
Dagsdóttir. Sex listamenn taka þátt í sýningunni; Elnaz
Mansouri, Hallgerður Hallgrímsdóttir, Sarah Degen-
hardt, Sarah Finkle, Victoria Björk og Vikram Pradhan.
Sýningin er hópsýning sem setur fókusinn á framtíðina
og tengslin við sögur, umhverfi og drauma.
Vilt þú æfa íslenskuna þína með
skemmtilegu samtali? Í Tungumálakaffi
gefst tækifæri til að spjalla saman á
íslensku. // Do you want to practice
your conversational skill in Icelandic?
In the Language café you can speak in
Icelandic and practice.
1, 8, 15, 22, 29 MARS - BÓKASAFNIÐ
Tungumálakaffi
Notaleg sögustund með Höllu Karen
kl. 11.30. Að þessu sinni ætlar
Halla Karen að lesa og syngja nokkur
vel valin lög upp úr Ávaxtakörfunni.
Ókeypis er á viðburðinn og allir
hjartanlega velkomnir.
19. MARS - BÓKASAFNIÐ
Notaleg sögustund
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 7