Víkurfréttir - 02.03.2022, Qupperneq 11
vikur, hvort honum fyndist vera komið gott
núna. Hvort hann vildi draga úr þjálfuninni?
Það hélt hann nú ekki, „nei, nú hætti ég ekkert,
þetta er rétt að byrja, sagði hann við mig.“
Hann hélt áfram að bæta sinn vöðvamassa,
fitumassinn minnkaði verulega og honum leið
mikið betur. Ekki nóg með það heldur var hann
einnig kominn í góðan félagsskap sem honum
þykir vænt um. Fólkið á þessum aldri er farið
að hittast oftar, meira en það gerði áður. Það
er hin hliðin á þessu verkefni, hinn jákvæði
félagslegi þáttur. Hann er ekki síður mikil-
vægur, sérstaklega á þeim tíma þegar hætta
er á að einangrast og jafnvel þunglyndi blasir
við mörgu eldra fólki vegna einveru. Það er
ekkert síður félagslegi þátturinn sem fær að
blómstra en sá líkamlegi. Það er því aldrei of
seint að byrja. Við getum ennþá bætt á okkur
vöðvamassa og haft jákvæð áhrif á efnaskiptin
með markvissri hreyfingu, bættum lífsstíl og
vel ígrundaðri næringu. Með þessu drögum
við einnig úr áhættuþáttum hjarta- og æða-
sjúkdóma.“
Janus sagðist þekkja vel að fólk á þessum
aldri sé ekki vant heilsuræktarstöðvum. „Um
90% af okkar skjólstæðingum, bæði á Reykja-
nesbæ og víðar, höfðu aldrei komið inn á
heilsuræktarstöð áður en það hóf þátttöku.
Hvað þá að vinna svona markvisst eftir ákveð-
inni æfingaáætlun. En fólkið þarf ekki að hafa
neinar áhyggjur, við erum orðin vön að vinna
með þennan hóp, tökum vel á móti þeim, grín-
umst og glettumst og látum okkur heldur ekki
leiðast. Gerum lóðin að bestu vinum okkar. Ef
þú vilt búa lengur í sjálfstæðri búsetu á þessum
aldri þá þarftu að leggja eitthvað af mörkum. Í
dag er þetta orðið hluti af lífsstíl fólksins allan
ársins hring.“
Ýmis nytsamleg fræðsluerindi
Ferlið sem boðið upp á er til tveggja ára. En
þetta ferli er síbreytilegt. „Þessum tíma er skipt
upp í fjögur sex mánaða tímabil. Við bjóðum
upp á ýmis fræðsluerindi í hverju þrepi. Á
tveimur árum eru þau um 16 erindi sem öll
tengjast þáttum eldri borgara. Fyrir utan nær-
inguna fáum við sérfræðinga til að flytja erindi
um ýmsa heilsutengda þætti. Lyf og öldrunar-
læknir sér til dæmis um lyf- og lyfjanotkun en
stór hluti af okkar þátttakendum eru á blóð-
þrýstings- eða hjartalyfjum. Það er ekki sama
hvenær þú tekur inn lyfin þegar hreyfing er
annars vegar. Margir þeirra sem hafa verið
lengst hjá okkur eru nú að draga úr notkun
þeirra í samvinnu við sína lækna. Það er því
að einhverju að stefna.
Fjárhagslegur sparnaður fylgir því verk-
efninu ekki síður en heilsufarslegur ávinningur.
Við vinnum einnig með hugrækt, slökun og
markmiðasetningu. Eftir að vinnuferli lýkur,
svona í kringum 65 til 70 ára aldurinn, þá
kemur oft tómarúm í lífshlaupið. Hvað tekur
þá við? Til að nýta og njóta efri áranna þarf
maður að vera vel á sig kominn. Þá kemur
heilsueflingin til sögunnar sem hluti af því
ferli,“ sagði Janus og nefndi fleiri fræðsluer-
indi. „Við fáum meðal annars einstaklinga frá
Hjartavernd til að fjalla um hjarta- og æða-
sjúkdóma. Hvað er hægt að gera? Hvernig er
hægt að fyrirbyggja þá? Og sýnum dæmi um
slíkt. Við fáum heimilislækna í heimsókn og
sjúkraþjálfara með jafnvægisæfingar og ýmsar
æfingar fyrir stoðkerfið. Það er oft hættan að
eldra fólk detti og brjóti sig en slíkt er hægt
að fyrirbyggja eða draga úr afleiðingum með
auknum styrk, bæði vöðva og beina.
Fyrir utan aukinn vöðvamassa sem annars
tapast án styrktarþjálfunar þá þéttast beinin
og styrkjast með slíkri þjálfun og bættri nær-
ingu. Það er því heilmikill ávinningur af heilsu-
eflingu og kostnaðurinn er ekki mikill, ekki síst
þegar bæjaryfirvöld greiða niður stóran hluta
af kostnaði fyrir þátttakendur. Heilsuræktar-
stöðvarnar hafa tekið eldri þátttakendum
vel og gefið afslátt af ársgjaldi svo um munar.
Mjög sanngjarnt og rausnarlegt hjá þeim. Þátt-
tökukostnaður fyrir einstakling með ársgjaldi
í heilsurækt er ekki nema á bilinu sjö til átta
þúsund krónur á mánuði þar sem bærinn
kemur rausnarlega inn í verkefnið eins og áður
sagði og hefur stutt það fjárhagslega. Einnig
hefur sóknaráætlun Suðurnesja stutt fjárhags-
lega við verkefnið.“
Kynningarfundur miðvikudag
Verkefnið verður kynnt fyrir síðasta hópi
sem tekinn verður inn mánudaginn 7. mars
kl. 16:00 í Íþróttaakademíunni. Janus sagði
alla velkomna þangað. „Hvort sem þeir væru
yfir eða undir 65 eða 67 ára aldri. Á kynn-
ingarfundum höfum við farið yfir verkefnið
og í hverju það er fólgið. Einnig sýnt dæmi um
væntanlegan ávinning; niðurstöður þeirra sem
þegar hafa lokið tveggja ára heilsueflingarferli.
Opið er fyrir skráningar á slóðinni: janusheilsu-
efling.is/skraning. Viku eftir kynningarfund
fara fram mælingar og viku síðar hefst svo
fyrsta æfingarvikan.
Við erum með þolæfingar í Reykjaneshöllinni
á föstudögum yfir vetrartímann en utandyra á
vorin og sumrin. Á öðrum dögum er svo styrkt-
arþjálfun í Sporthúsinu við Ásbrú. Þátttakendur
fá æfingaáætlun sem þeir fylgja í tækjasalnum.
Einnig fá þeir með sér heimaáætlun sem auð-
velt er að fylgja aðra daga til að uppfylla al-
þjóðleg viðmið um daglega hreyfingu fyrir
eldri borgara.“ Janus sagði þetta í rauninni sára
einfalt, hreyfa sig daglega í góðum félagsskap
og reyna að ná að meðaltali um 30 mínútum
á dag auk tveggja til þriggja skipta í styrktar-
þjálfun. „Við förum rólega af stað og byggjum
heilsuna upp stig af stigi. Finnum þjálfunarpúls
fyrir hvern og einn. Kennum fólki á hjartað sitt
og hvernig það á að hreyfa sig. Fólk skráir eða
merkir svo við á heimaáætluninni, gerum það
ábyrgt á eigin heilsu. Þátttakendur veita sjálfum
sér, í samvinnu við okkur, ákveðið aðhald með
framangreind markmið að leiðarljósi. Hluti af
þessu getur verið sú hreyfing sem þú stundar
í dag eins og að synda eða hjóla, dansa eða
leika golf. Aðalatriðið er þá að reyna að hækka
áreynsluna þannig að einstaklingurinn finni
fyrir örlítilli mæði en samt ekki þannig að þú
getir ekki haldið hreyfingunni þinni áfram og
gefist upp.“
En verður maður að mæta núna eða er
hægt að byrja hvenær sem er?
„Verkefnið er skipulagt þannig að þú ert
tekinn inn á sex mánaða fresti. Það er meðal
annars gert í tengslum við reglubundnar mæl-
ingar á þessu tímabili, við uppafið og síðan á
6 mánaða fresti. Við leggjum mikla áherslu
á þessar mælingar enda mjög viðamiklar en
um leið leiðbeinandi fyrir hvern og einn. Þær
veita einnig mikið aðhald. Þannig getum við og
hver þátttakendi fylgst með þörfum og árangri
hverju sinni.
Tökum sem dæmi að þú ert með of háan
blóðsykur. Kannski kominn upp í 8 mmol/
ltr eða að þríglýseríðið eða blóðfitan er of há
miðað við viðmiðunarmörk. Þá þurfum við
að bregðast við, sérstaklega með breyttu mat-
aræði og aukinni hreyfingu. Næringin er einn af
stærri þáttunum hjá okkur. Við fáum næringar-
fræðinga til okkar með fræðsluerindi. Í öðru
þrepi höfum við fengið inni í grunnskólunum
og nýtt kennslueldhúsið, elda með hópnum.
Þetta hefur gengið mjög vel. Svo fáum við nær-
ingarfræðing til okkar aftur seinna í ferlinu.
Næringin er mjög stór þáttur í heilsueflingar-
ferlinu fyrir utan þessa daglegu hreyfingu og
styrktarþjálfunina.“
Janus sagði þjálfunina einstaklingsmiða þó
unnið sé í hópum. „Við förum rólega af stað.
Leggjum sérstaka áherslu á að að kenna fólki
að lyfta lóðum og gera það rétt. Hver og einn
er með sína þyngd sem hann ræður vel við.
Þannig öðlast hann hæfni og færni til að bjarga
sér síðar sjálfur. Það er nú lykillinn í þessu öllu.
Að fólk öðlist hæfni í að efla eigin heilsu og að
verða sjálfbær þegar kemur að heilsutengdum
forvörnum. Þar koma fræðsluerindin sterk inn
sem stuðningur við verklegu þjálfunina. Svo
erum við með reynslumikla þjálfara og viljum
skilja þessa þekkingu eftir í Reykjansbæ. Anna
Sigríður Jónasdóttir heilsuþjálfari hefur leitt
þessa vinnu í samvinnu við okkur í Reykja-
nesbæ með mjög góðum árangri. Hún sér um
utanumhald og þjálfunina. Við komum svo
reglulega í heimsókn, aðstoðum við þjálfun,
mælingar og fræðslu.“
Milljarða sparnaður fyrir hið opinbera
Eru fleiri bæjarfélög í burðarliðnum?
„Það eru nokkur bæjarfélög búin að hafa
samband við okkur en vegna Covid-19 höfum
við haldið að okkur höndum. Annars er verk-
efnið nú í gangi í sex sveitarfélögum. Því miður
er stjórnsýslan stundum svolítið seinvirk, fast-
heldin og veltir ekki alltaf fyrir sér langtíma
ávinningi verkefna af þessum toga. Við höfum
verið að vonast til að ríkið komi að málum og
styrkti sveitarfélögin sem vilja fara inn í þetta
ferli. Því miður samþykkti bæjarstjórn endalok
þessa verkefnis fyrir stuttu síðan en ég bind
vonir við að ný sveitarstjórn taki málið upp
aftur og endurskoði þessa áætlun. Ég nefni
einnig ríkið, ekki síður en sveitarfélögin, þar
sem málaflokkurinn eldri borgarara er einnig
hjá ríkinu og bundin í lög á sama hátt og hjá
sveitarfélögum. Þetta er í raun þeirra skylda.
Það eru ákveðnir þættir í málaflokknum sem
eru sveitarfélaganna, en einnig ríkisins. Við
viljum fá ríkið að borðinu, ekki síst þeirra
vegna. „Rekstrarkostnaður í dag fyrir aðeins
einn einstakling á dvalar- og hjúkrunarheimili
er um þrettán til fimmtán milljónir króna á
ári. Fyrir þessa upphæð getum við unnið með
heilsueflingu fyrir 100 til 150 einstaklinga
á ári. Þannig að sparnaðurinn fyrir ríkið er
gríðarlegur ef við náum að seinka innlögn ein-
staklinga inn á dvalar- og hjúkrunarheimilin, þó
ekki væri nema um eitt, tvö eða þrjú ár, hvað
þá fimm til tíu ár.
Nýjar rannsóknir erlendis frá segja að hver
króna sem þú fjárfestir í fyrirbyggjandi þáttum
skili sér að lágmarki fjórtán sinnum til baka.
Þetta passar vel. Við höfum til dæmis frá upp-
hafi 2017 unnið með um 600 Reyknesinga yfir
65 ára aldri. Segjum sem svo að við náum að
seinka þeim öllum um eitt ár inn á dvalar- og
hjúkrunarheimili í Reyknanesbæ. Það þýðir
gríðarlegan sparnað fyrir hið opinbera, ríkið
þá sérstaklega. Sparnaðurinn yrði um um 1,5
milljarð króna. Ef við náum að seinka þessum
sex hundruð einstaklingum sem við höfum
verið með í Reykjanesbæ um aðeins eitt ár inn
á Nesvelli þá þýðir það um 7,8–9,0 milljarða
króna sparnaður fyrir ríkið á hverju ári, aðeins
í tengslum við þetta eina sveitarfélag. Stjórn-
endur bæjarins þurfa einnig að velta fyrir sér
þeim sparnaði sem kæmi til í tengslum við
heimilishjálp og/eða áframhaldandi búsetu
þessa fjölda.
Ég bind enn vonir til þess að ríkið komi inn
í verkefnið svo byggja megi áfram upp gott
heilbrigðiskerfi hér á landi sem sækir grunn
sinn í heilsutengdar forvarnir. Verkefni þetta
er í raun „non-profit verkefni eins og þau eiga
að vera innan heilbrigðiskerfisins.“ Það er ekki
að skila okkur neinum arði í það minnsta ekki
fjárhagslegum,“ sagði Janus sem vildi að lokum
koma á framfæri þakklæti til bæjaryfirvalda í
Reykjanesbæ fyrir einstaka samvinnu undan-
farin ár.
„Ég er afskaplega þakklátur bæjaryfirvöldum
hér að taka þátt í þessu með okkur þó ég sé
um leið sorgmæddur við þá tilhugsun að verk-
efnið leggist af á svæðinu. Hér er svo skemmti-
legt umhverfi, fólkið er einstakt og umhverfið
einnig fyrir svona verkefni. Ég lékk á sínum
tíma knattspyrnu við Guðna Kjartans, Rúna
Júll, Kalla Hermanns, Gísla Torfa, Óla Júll,
Marka-Jón og Einar svo einhverjir séu nefndir.
Við töpuðum yfirleitt fyrir þessu gullaldarliði
en komum ávallt aftur. Ég er því ekki alveg
farin strax með verkefnið þó í það stefni. Þá
á ég einnig sterkar rætur hingað á Suður-
nesin, bæði í móður og föðurætt og það fólk
er þrautseigt eins og ég. Bæjarfélagið er opið
og skemmtilegt og eldri íbúar þess eiga að fá
sömu umönnun og börnin þegar kemur að
heilsueflingu og þjónustu. Eiga ekki að vera
afgangsstærð. Ég hef ekki trúa á því að þeir
séu eftirbátar annarra á landinu einnig í ljósi
þess að tveir af forystusauðum bæjaryfirvalda
sitja nú á þingi og annar þeirra með bakland í
lýðheilsufræðum.“
Þegar við eldumst þá
töpum við vöðvamassa. Við
náum hins vegar að seinka þessari
hægfara vöðvarýrnun með markvissri
styrktarþjálfun.....
Inga María Ingvarsdóttir:
Var ákveðin í að taka
þátt í verkefninu
Hvenær byrjaðir þú í verkefninu?
Ég byrjaði í Janusarverkefninu í febrúar-
byrjun 2020.
Hvað varð til þess að þú byrjaði í verk-
efninu?
Ég hafði fylgst með nokkrum vinum og
kunningjum, sem tóku þátt í verkefninu og
létu vel af því. Var ég því alveg ákveðin í að
taka þátt þegar ég yrði 65 ára.
Hvernig hefur gengið?
Það hefur gengið alveg upp og ofan, þar
sem Coronafaraldurinn skall fljótlega á eftir
að ég byrjaði. Þjálfararnir stóðu sig hins vega
mjög vel við að halda mér við efnið, með
tölvupóstum og símtölum.
Finnur þú einhvern mun á þér og hvernig
líður þér?
Mér hefur aldrei liðið betur, bæði hef ég
styrkst og svo hef ég ekki haft eins gott þol
og núna.
Hvað finnst þér verkefnið hafa gert fyrir
þig?
Ég er meðvitaðri um mikilvægi þess að
hreyfa mig og styrkja. Einnig hefur verk-
efnið hvatt mig til að setja mér markmið hvað
varðar heilbrigðan lífsstíl. Þetta á örugglega
eftir að nýtast mér í framtíðinni.
Gunnar Þór Jónsson:
Meðvitaðri en ég var
Hvenær byrjaðir þú í verkefninu?
Ég byrjaði í Heilsueflingu Janusar í febrúar
2020.
Hvað varð til þess að þú byrjaði í verk-
efninu?
Ég fór á fyrsta kynningarfundinn, sem
haldinn var í Reykjanesbæ, en lét samt ekki
verða af því að taka þátt fyrr en nokkrum
árum síðar, þá aðallega fyrir hvatningu kon-
unnar.
Hvernig hefur gengið?
Það hefur bara gengið mjög vel, þrátt fyrir
alls konar höft vegna Covid. Þá vil ég nefna
að starfsfólkið hans Janusar hefur verið alveg
einstaklega duglegt að hvetja mann áfram við
æfingar og hreyfingu.
Finnur þú einhvern mun á þér og hvernig
líður þér?
Já, ég verð nú að viðurkenna að ég finn
nokkurn mun á mér, sérstaklega hvað varðar
styrk. Ég hafði t.d. aldrei farið að æfa í líkams-
ræktarstöð áður en ég byrjaði í verkefninu.
Líðan mín er bara góð eftir þennan tíma og
er ég nokkuð viss um að ég eigi eftir að halda
áfram í ræktinni eftir þetta.
Hvað finnst þér verkefnið hafa gert fyrir
þig?
Það sem verkefnið hefur gert fyrir mig er að
ég er orðinn miklu meðvitaðri en ég var, um
gildi hreyfingar og styrktaræfinga fyrir and-
lega og líkamlega líðan mína. Takk fyrir mig.
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 11