Víkurfréttir - 02.03.2022, Qupperneq 16
Mundi
Halli Melló að fara að gera
grín að Grindvíkingum.
Það verður eitthvað ...
Grindvíkingar taka afléttingu
Covid-19 með krafti og verða með
kútmagakvöld í íþróttahúsi Grinda-
víkur 11. mars næstkomandi. „Við
erum stoltir af því að hafa haldið
einn af síðustu stórviðburðum
ársins 2020 áður en allt skall í lás.
Við ætlum einnig að vera á meðal
þeirra fyrstu sem halda stórviðburð
nú þegar sér fyrir endan á þessu
dæmalausa ástandi,“ segir Eiríkur
Dagbjartsson í Lionsklúbbi Grinda-
víkur.
Fyrirtækjum er boðið að styrkja
gott málefni með fjárframlögum á
kvöldinu og þá verður einnig lítil
sjávarútvegssýning á undan kl. 18-
20. Eiríkur segir algengt að fyrirtæki
bjóði starfsmönnum og viðskipta-
vinum á þetta frábæra sjávarrétt-
akvöld með ótrúlegum fjölda sjávar-
rétta, en miðaverð er kr. 12.000
kr. Allur ágóði af þessu kvöldi
rennur óskiptur til góðgerðarmála.
Þá verða skemmtiatriði á heims-
mælikvarða en Gísli Einarsson,
sjónvarpsmaður og grínari verður
veislustjóri en auk hans mæta Selma
Björns, Halli Melló og Ari Eldjárn.
„Kútmagakvöldið verður haldið í
nýjum sal í íþróttahúsi Grindavíkur
eins og árið 2020 en það þótti takast
einstaklega vel. Maturinn verður í
höndum grindvískra kokka sem hafa
séð um kútmagakvöldin áður,“ segir
Eiríkur.
Ég hef gaman af pólitík, en finnst
hún vitlaus. Finnst að fólkið sem er
tilbúið að fylgja eigin sannfæringu
nái ekki árangri. Prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjanesbæ fór fram um
síðustu helgi. Svokölluð lýðræðis-
veisla. Alger endurnýjun er á lista
flokksins fyrir komandi bæjarstjórn-
arkosningar. Einungis leiðtoginn
situr áfram. Fékk ekki mótframboð.
Hinum bæjarfulltrúanum sem bauð
sig fram var hafnað. Ellefu mjög
frambærilegir einstaklingar voru í
framboði fyrir flokkinn, sem nú á
þrjá fulltrúa í bæjarstjórn. Kannski
má segja fjóra, þar sem Frjálsa aflið
hefur snúið heim aftur. Að prófkjöri
loknu liggur fyrir að fjórir miðaldra
einstaklingar skipa fjögur efstu
sæti flokksins. Tveir karlar, tvær
konur. Lýðræðisveislan hefur talað.
Frekar einsleitt ef þið spyrjið mig.
Fyrir utan bæjarfulltrúann sem var
hafnað má nánast segja að raðað
hafi verið á listann eftir aldri. Elstu
voru efstir, yngstu neðstir, sem ég
leyfi mér að lesa þannig að ekki sé
óskað eftir ungu fólki til forystu. Það
er það sem prófkjörið segir. Tölurnar
ljúga ekki. Útaf því má alveg deila
um hvort prófkjör séu sú lýðræðis-
veisla sem flokkurinn heldur fram.
Innsta klíkan, oft kölluð Bláa höndin,
ræður úrslitunum. Skilaboðin ef þú
nærð ekki árangri eru einföld. Þú ert
ekki í klíkunni. Skilaboðin til unga
fólksins. Frábært hjá þér. Varst að
reyna í fyrsta skipti. Gengur betur
næst. Lesist: „Ef þú heldur áfram
að reyna, kemstu kannski í klíkuna“.
Sjálfstæðisflokkurinn má þó eiga
það, hann er eini flokkurinn sem
gefur fólki tækifæri á að bjóða sig
fram. Aðrir sleppa þeim millileik og
láta klíkuna bara ráða.
Eitt af því sem þarf að sætta sig
við þegar á sextugsaldurinn er
komið, er að maður er ekki sexý
lengur. Bara sorry. Alveg sama hvað
fólk reynir að halda því fram að
“50´s is the new 40´s og 60´s the
new 50´s” og bla bla bla. Þetta er
kjaftæði. Það er á ábyrgð okkar sem
eldri erum að hvetja unga fólkið til
forystu. Að koma þeim til forystu.
Að byggja upp næstu kynslóð til að
taka við. Maður þarf ekki alltaf að
gera allt sjálfur. Seppa tökunum og
leyfa þeim yngri að taka við er ekki
veikleikamerki, heldur þroska- og
styrkleikamerki.
Ellefu manns mynda bæjarstjórn
Reykjanesbæjar. Yngstu tveir bæjar-
fulltrúarnir eru fæddir 1982 og 1992.
Báðir frá Samfylkingunni. Aðrir
eru í flokki miðaldra og öldunga.
Enginn bæjarfulltrúi er af erlendu
bergi brotinn, þrátt fyrir að allt að
fjórðungur íbúa sveitarfélagins séu
það. Væri ekki rétt að innan bæjar-
stjórnar væru raddir sem skynjuðu
samfélagið eins og það er? Að innan
bæjarstjórnar væri fólk sem þekkir
það að nýta grunnþjónustuna af
eigin raun. Hvar er íþróttamaðurinn
í bæjarstjórn? Er Reykjanesbær ekki
íþróttabær?
Flokkar og framboð eru nú í
dauðafæri að gefa ungu fólki tæki-
færi til forystu í Reykjanesbæ. Fólk
fæðist ekki með reynslu, hún er
áunnin. Ef fólk fær ekki tækifæri,
fær það aldrei reynslu. Það er ljóst
að endurnýjun í bæjarstjórn verður
mikil. Tveir bæjarfulltrúar farnir á
þing og sögurnar segja þann þriðja á
leið í stórt ríkisembætti á svæðinu.
Ef svo fer fram sem horfir verður
framboð fólks þvert á flokka, Ásbrú-
arlistinn, væntanlega kynntur til
leiks undir lok mars. Hann gæti náð
hreinum meirihluta. Flokkapólitík og
sveitastjórnarmál eiga ekki samleið.
Það er tímaskekkja.
Miðaldra
lýðræðisveisla
LO
KAO
RÐ
MARGEIRS VILHJÁLMSSONAR
Grindvíkingar blása
til stórviðburðar
eftir afléttingu
Halli Melló og Selma Björns
halda uppi fjöri í Grindavík.
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Höfn í Hornafirði, 8. mars kl. 8:30–9:30
Nýheimar, boðið verður upp á léttan morgunverð.
Fyrirlesarar
Heiðrún Lind Marteinsdóttir
framkvæmdastjóri SFS
Hildur Hauksdóttir
sérfræðingur í umhverfismálum
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Eskifjörður, 8. mars kl. 16:00–17:00
Randulffssjóhús, kaffiveitingar.
Fyrirlesarar
Heiðrún Lind Marteinsdóttir
framkvæmdastjóri SFS
Hildur Hauksdóttir
sérfræðingur í umhverfismálum
Stefán Ingvarsson
framkvæmdastjóri Egersunds
Vestmannaeyjar, 7. mars kl. 16:00–17:00
Þekkingarsetur Vestmannaeyja, kaffiveitingar.
Fyrirlesarar
Heiðrún Lind Marteinsdóttir
framkvæmdastjóri SFS
Hildur Hauksdóttir
sérfræðingur í umhverfismálum
Alfreð Halldórsson
framkvæmdastjóri Renniverkstæðisins Háin
Grindavík, 7. mars kl. 8:30–9:30
Salthúsið, boðið verður upp á léttan morgunverð.
Fyrirlesarar
Heiðrún Lind Marteinsdóttir
framkvæmdastjóri SFS
Hildur Hauksdóttir
sérfræðingur í umhverfismálum
Erla Ósk Pétursdóttir
framkvæmdastjóri hjá Marine Collagen
Mars 2022
Það veltur
margt á
íslenskum
sjávarútvegi
Opnir fundir víða um land
Íslenskur sjávarútvegur snýst um svo miklu meira en
veiðar, vinnslu og sölu á afurðum og hefur fjölbreytt
starfsemi í tengdum og ótengdum greinum vaxið
mikið. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi standa fyrir
fyrirlestraröð þar sem málefni greinarinnar eru rædd á
breiðum grundvelli.