Víkurfréttir - 30.03.2022, Blaðsíða 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Guðbjörg Kristmundsdóttir formaður Verkalýðs-
og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis er
nýr varaformaður Starfsgreinasambandsins,
SGS. Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðs-
félags Akraness var kosinn nýr formaður sam-
bandsins á 8. þingi sambandsins á Akureyri sem
fram fór fyrir síðustu helgi.
Vilhjálmur Birgisson hlaut sjötíu atkvæði (53,85
prósent) og Þórarinn G. Sverrisson sextíu atkvæði
(46,15 prósent). Alls greiddu 130 manns atkvæði
í formannskjörinu. Nýr varaformaður var kjörin
Guðbjörg Kristmundsdóttir formaður Verkalýðs-
og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis.
Aðalfundur Félags eldri borgara
á Suðurnesjum hefur samþykkt
áskorun til ríkisstjórnar og Al-
þingis sem Sigurgeir Jónsson úr
Sandgerði lagði fram á fundinum.
Áskorunina og greinargerð má lesa
hér að neðan.
Áskorun.
Aðalfundur Félags eldri borgara
á Suðurnesjum, haldinn í Reykja-
nesbæ 4. mars 2022, skorar á ríkis-
stjórn og Alþingi að framfylgja 69.
grein laga nr. 100/2007, um að
hækkanir á bótum til aldraðra og
öryrkja skuli fylgja launaþróun og
ef ágiskuð hækkun í fjárlögum, sem
greidd er úr 1. jan. hvert ár, fyrir við-
komandi ár, reynist lægri en meðal-
launaþróun ársins, samkvæmt útgef-
inni meðallaunaþróun af Hagstofu
Íslands fyrir það ár, skuli Trygginga-
stofnun ríkisins greiða mismuninn til
bótaþega 1. júlí.
Greinargerð.
Á síðustu árum hefur sú ágiskaða
launaþróun, sem hefur verið til-
greind í fjárlögum þegar kemur að
hækkun bóta til aldraðra og öryrkja,
reynst lægri en sú meðallaunaþróun
útgefin af Hagstofu Íslands, hefur
reynst fyrir hvert ár. Í fjárlögum
fyrir árið 2020, samþykktum af Al-
þingi 2019, var ágiskuð launaþróun
ársins 2020, 3,6%. Á vef Hagstofu
Íslands um meðallaunaþróun ársins
2020, kemur fram að meðallauna-
þróun ársins 2020 reyndist 7,0%.
Mismunur á launaþróun 3,4%. Ág-
iskuð launaþróun í fjárlögum fyrir
árið 2021, samþykktum af Alþingi
2020 var 3,6%. Meðallaunaþróun
fyrir árið 2021, samkvæmt Hagstofu
Íslands reyndist 7,5%. Mismunur
3,9%. Eðlilegt hlýtur að teljast sam-
kvæmt 69. gr. laga nr. 100/2007,
að Tryggingastofnun verði gert að
greiða mismuninn og sambærilegan
mismun í framtíðinni, sem upp kann
að koma.
Umboðsmaður Alþingis sendi bréf
til ráðherra og Velferðarnefndar Al-
þingis, dags. 1. október 2019, þar
sem hann gerði athugasemd við af-
greiðslu stjórnvalda á því ákvæði í
lögum almannatrygginga er varðar
viðmið um launaþróun og bendir
hann á að bæta verði úr því.
Við því hafa stjórnvöld og Alþingi
ekki orðið.
Eldri borgarar á Suðurnesjum
skora á ríkisstjórn og Alþingi
Guðbjörg Kristmundsdóttir
kjörin varaformaður SGS
Reykjanesbær og bandaríska fyrir-
tækið Almex USA Inc., í gegnum
íslenskt dótturfélag, hafa náð sam-
komulagi um að skoða möguleika
þess að setja upp umhverfisvæna
endurvinnslu á áli í Helguvík.
Almex USA Inc sérhæfir sig í fram-
leiðslu á búnaði fyrir úrvinnslu og
endurvinnslu á hágæða áli ásamt
fjárfestingum í skyldum iðnaði,
er leiðandi á sviði endurvinnslu
léttmálma og með sérstöðu hvað
varðar framleiðslu á áli fyrir geim-
ferða- og flugvélaiðnaðinn. Telur
fyrirtækið Ísland vera hentuga
staðsetningu fyrir þessa starfsemi.
Samkomulagið var samþykkt sam-
hljóða á fundi bæjarráðs Reykja-
nesbæjar í morgun. Bæjarráð hefur
heimilað Kjartani Má Kjartanssyni
bæjarstjóra að undirrita viljayfir-
lýsingu þess efnis.
Um er að ræða umhverfisvæna
starfsemi sem yrði hluti af sjálfbæru
hringrásarhagkerfi og er áætluð
ársframleiðsla 45.000 tonn í fyrri
áfanga. Reiknað er með að starfs-
menn verði um 60 þegar fullum af-
köstum er náð. Reykjanesbær horfir
jafnframt til þess að afleidd tæki-
færi af slíkri starfsemi geti styrkt
atvinnuþróun á svæðinu.
Verkefnið er í samræmi við þá
stefnu Reykjanesbæjar að í Helguvík
byggist upp iðnaður sem hafi jákvæð
áhrif á umhverfið og samfélagið.
Markmið Reykjanesbæjar er að efla
Helguvík sem iðnaðarsvæði sem
styður við þá stefnu og hringrásar-
hagkerfið.
Skoða umhverfisvæna
endurvinnslu á áli í Helguvík
• Jón og Margeir
• Grindavíkurdætur
• Sálumessa Mozarts
Leiklistarval unglinga í Heiðarskóla frumsýndi á árshátíð skólans söng-
leikinn Grís í leikstjórn þeirra Daníellu, Estherar og Guðnýjar sem allar
eru kennarar við skólann. Að venju voru haldnar almennar sýningar á
mánudag og þriðjudag. Vegna góðrar aðsóknar var ákveðið að skella í
aukasýningu miðvikudag kl. 20:00. Sýnt er á sal skólans og er miða-
verð 1.000 krónur. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Aukasýning á GRÍS
í Heiðarskóla
Prinsinn og Moses ætla að fagna
sjálfum sér og hvor öðrum, sem
og glóðvolgri músík sem þeir
eru að þrykkja út í kosmósið.
Tónleikarnir fara fram fimmtu-
daginn 12. maí í Stapa í Hljóma-
höll. Húsið opnar kl. 19:00 og
tónleikar hefjast kl. 20:00.
Miðasala hefst kl 11:00 föstu-
daginn 25. mars á hljomaholl.is.
Prins Póló & Moses
Hightower
í Hljómahöll
Hafnarstjóri kynnti drög að samn-
ingi við Endurvinnsluna hf. varð-
andi útskipun á gleri um Helgu-
víkurhöfn til endurvinnslu erlendis
á síðasta fundi hafnarstjórnar
Reykjaneshafnar.
Stjórn Reykjaneshafnar sam-
þykkti fyrirliggjandi drög samhljóða
og fól hafnarstjóra að undirrita þau.
Endurvinnslan hf.
skipar út gleri frá
Helguvík
2 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM