Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.03.2022, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 30.03.2022, Blaðsíða 6
MOKVEIÐI Í MARS Þar sem ég sit núna í rútunni og horfi útum gluggan sést skrifað þar á hús, Húsafell Activity Center. Já, er sem sagt staddur í Húsafelli að skrifa þennan pistil. Ekki er nú hægt að segja að hægt sé að tengja Húsafell við útgerð eða fiskvinnslu frá Suður- nesjunum og því þurfum við ekkert að eiga meiri orð um það. Aftur á móti er mars mánuðurinn að verða búinn og það er búið að vera mokveiði hjá bátunum frá Suður- nesjum og má segja að hópurinn hafi færst svo til til því í byrjun mars var svo til mest allur línuflotinn að veiðum utan við Sandgerði en um miðjan mars færði hann sig útaf Grindavík á Selvogsbankann sem eru mjög þekkt fiskimið. Reyndar er mjög mikill floti af togurum, bæði 29 metra togurum og stærri skipum búnir að vera á veiðum þarna utan Grindavíkur. Aftur á móti hefur enginn netabátur verið þar að veiðum, en það gæti breyst því Þórsnes SH og Kap II VE voru komnir þarna þegar þessi pistill var skrifaður. Þó svo að mikill fjöldi hafi verið á veiðum utan við Grindavík þá er það bara brotabrot af þeim fjölda sem var á veiðum þarna fyrir um 30 til 40 árum síðan. Þá var mikill floti bæði í Þorlákshöfn og Grindavík á netaveiðum. Í mars árið 1983 var til að mynda 91 bátur á netum frá Þor- lákshöfn og Grindavík og af þeim voru um 55 frá Grindavík á netum. Þetta er all svakalegur fjöldi af bátum og magnið af netum sem voru í sjó. Ef við gefum okkur að hver bátur hafi verið með 6 trossur og hver trossa sé 15 neta þá eru þetta samtals um 8200 net í sjó á dag þegar allir þessir bátar voru á sjó. Ansi mikill munur á 39 árum, úr 91 netabát og yfir í engann. Þeir netabátar sem núna eru á veiðum frá Suðurnesj- unum hafa allir verið með netin sín í Faxaflóanum og reyndar hafa þrír þeirra verið með netin svo til rétt utan við Vatnsnes og því ansi stutt sigling fyrir þá báta þar sem þeir hafa verið að landa í Keflavík. Bergvík GK er með 58 tonn í 18 róðrum og mest 6,4 tonn í einni löndun. Sunna Líf GK 7,3 tonn í 9 og Halldór Afi GK 44 tonn í 17, en þessir þrír bátar hafa verið þarna utan við Vatnsnes. Hinir þrír bátanna hafa verið lengra inn í Faxaflóanum og eru þeir allir komnir með yfir 100 tonna afla núna í mars. Maron GK er með 101 tonn í 15 róðrum og mest 16 tonn. Grímsnes GK 189 tonn í 20 róðrum og mest 20 tonn og Erling KE 289 tonn í 15 róðrum og mest 33 tonn. Að ofan var minnst á mikinn fjölda af togbátum sem hafa verið við veiðar á miðunum út frá Grindavík, þeir voru reyndar líka á veiðum á miðunum út af Sandgerði, en það virðst vera mjög mikið af fiski út af báðum stöðunum og mokveiði á báðum svæðum. Ef við lítum aðeins á togskipin þá er Sturla GK með 535 tonn í 8 löndunum og mest 73 tonn. Vörður ÞH er með 393 tonn í 5 róðrum og mest 95 tonn. Áskell ÞH 365 tonn í 4, Jóhanna Gísladóttir GK 343 tonn í 5 löndunum og Pálína Þórunn GK 340 tonn í 5 túrum og mest 72 tonn. Hérna að ofan eru nefnd fimm togskip. Vörður ÞH og Áskell ÞH eru systurskip bæði smíðuð í Noregi og komu 7 togarar eins og þau til Ís- lands á árunum 2018 til 2019. Þetta voru: Vörður ÞH og Áskell ÞH sem Gjögur ehf. gerir út. Gjögur ehf. er frá Grenivík en er með fiskvinnslu líka í Grindavík og á sér langa sögu í útgerð og vinnslu í Grindavík og Grenivík, Bergey VE og Vestmannaey VE sem Bergur- Huginn í Vestmanna- eyjum gerir út, Þinganes SF og Steinunn SF sem Skinney Þinganes á Hornafirði gerir út og síðan Harð- bakur EA sem Útgerðarfélag Akur- eyrar gerir út. Sturla GK og Pálína Þórunn GK eru svipaðir togarar. Sturla GK var smíðuð 2007 í Póllandi. Pálína Þórunn GK var smíðuð í Kína árið 2001. Báðir eru svipað langir, nema að Sturla GK er metra breiðari en Pálína Þórunn GK. Aftur á móti þá er vélin í Pálínu stærri, hún er 952 hestöfl enn 700 hestöfl í Sturlu GK. aFlaFrÉttir á suðurNEsJuM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Kalla eftir sveigjanleika vegna gleymdra aðgangskorta Umræður voru á síðasta fundi ungmennaráðs Suðurnesjabæjar um óánægju vegna aðgangskorta í kjölfar aðgangshliða í íþrótta- miðstöðvum bæjarins. Börn muna illa eftir að hafa kortin með sér og umræður voru um hvort það væri hægt að hafa möguleikann á hafa þau rafræn. Lagt er til að starfsfólk íþrótta- miðstöðva sýni sveigjanleika þegar fólk gleymir kortunum sínum og fulltrúar ungmennar- áðsins kanni hvort möguleiki á að hafa rafræna útfærslu á að- gangskortunum, segir í afgreiðslu ráðsins. Öldungaráð Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga hvetur til þess að farið verði í það að gera sólpall við Dagdvöl aldraðra á Garðvangi í Garði. Áhersla verði lögð á að pallurinn verði tilbúin í byrjun sumars 2022. Jafnframt verði farið í gerð göngustígs milli Melteigs og Garðvangs til að auðvelda aðgengi. Sólpallur verði settur í forgang Leita leiða til að geta endur- greitt 80% fargjalds í strætó Suðurnesjabær hefur hingað til greitt niður 80% fargjalds í strætó fyrir ungmenni, aldraða og öryrkja með því að selja strætómiða í íþróttamiðstöðvum sveitar- félagsins. Vegna breytinga hjá Strætó þar sem sölu strætómiða hefur verið hætt, hafa starfsmenn sveitar- félagsins lagt sig fram í að finna leiðir til að geta haldið þeim af- slætti sem sveitarfélagið hefur veitt, þó svo miðasala einstakra miða hætti . Suðurnesjabær mun leita eftir samtali við Vega- gerðina og Strætó vegna frekari þróunar strætóapps og þjónustu- leiða. Þangað til verður hægt að fá endurgreitt 80% af keyptum miðum gegn framsali kvittana fyrir greiðslu eða kaupa fargjöld í íþróttamiðstöðvum og fá senda miða í strætóappið í síma kaup- anda. Nánari upplýsingar munu birtast á heimasíðu Suðurnesja- bæjar, segir í fundargögnum frá síðasta fundi bæjarráðs Suður- nesjabæjar. SUMARSTARF Bílanaust leitar að sumarstarfsfólki og námsmönnum í vinnu með skóla í verslun okkar að Hafnargötu 52. Áhugasamir sendi umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið kjartan@bilanaust.is Nánari upplýsingar í síma 6993432 Sturla GK 12. 6 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.