Víkurfréttir - 30.03.2022, Síða 10
Eitt fallegasta og vinsælsta kórverk
sögunnar í Duus Safnahúsum
Sálumessa Mozarts flutt á tvennum tónleikum 8. og 9. apríl. Tuttugu og fimm manna
sinfóníuhljómsveit og 50 manna kór. Hljómburður í bátasalnum hentar vel fyrir Sálumessuna.
„Þetta er eitt fallegasta kórverk sem
skrifað hefur verið og eitt það vin-
sælasta, sálumessa Mozarts. Hann
var að skrifa þetta þegar hann lést
og klárað af öðru tónskáldi. Þetta er
flutt reglulega um allan heim og nú
ætlum við að flytja þetta á tvennum
tónleikum í Duus Safnahúsum í
Reykjanesbæ og verðum með frá-
bæra söngvara og kór,“ segir Jóhann
Smári Sævarsson hjá Óperufé-
laginu Norðurópi sem í samvinnu
við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
er að ráðast í það stórvirki að flytja
Requiem (Sálumessu) eftir Wolfgang
Amadeus Mozart.
Sálumessan er um það bil 50
mínútna langt tónverk fyrir fjóra ein-
söngvara, kór og sinfóníuhljómsveit
og er ein allra þekktasta sálumessa
tónbókmenntanna. Verkið er flutt
árlega um allan heim, en afar sjaldan
hér á landi.
Að sögn Jóhanns Smára verður
verður verkið í þessari tónleikaupp-
færslu flutt af 25 manna sinfóníu-
hljómsveit, tæplega 50 manna kór
einsöngsmenntaðra söngvara, langt
kominna söngnemenda og þjálfaðra
áhugasöngvara, sem skipta svo með
sér einsöngsatriðum. Hljómburð-
urinn í Bátasal Listasafns Reykja-
nesbæjar hentar Sálumessunni mjög
vel og lýsing verður viðeigandi og
glæsileg. Stjórnandi er Jóhann Smári
Sævarsson, konsertmeistari Una
Sveinbjarnardóttir og ljósameistari
Magnús Helgi Kristjánsson.
Norðuróp stofnaði fyrir nokkrum
árum nokkurs konar óperustúdíó í
Reykjanesbæ í samvinnu við Tón-
listarskóla Reykjanesbæjar og
Hljómahöll, með uppfærslu á óper-
unni „Brúðkaup Fígarós“ eftir W.A.
Mozart. Verkefnið var opið öllum
söngvurum og söngnemendum
Tónlistarskólans sem og efnilegum
söngvurum hér á Suðurnesjum og
annars staðar að af landinu. Við
höfum reynsluna og þekkinguna á
svæðinu til að leiða slík spennandi
verkefni, sem gefa ungum lista-
mönnum frábær tækifæri til að auka
þekkingu sína og reynslu á óperu-
sviðinu um leið og við aukum við
menningarflóruna á svæðinu.
„Eftir mjög vel heppnaða og fjöl-
sótta uppfærslu Norðuróps og Tón-
listarskóla Reykjanesbæjar á söng-
leiknum „Fiðlarinn á þakinu“ eftir
J. Bock sem sýndur var í Stapa,
haustið 2019 í tilefni af tuttugu ára
afmælum beggja, og þann mikla
áhuga þeirra sem tóku þátt og ann-
arra söngvara og hljóðfæraleikara af
svæðinu, þá höfum við ákveðið að
nota meðbyrinn og halda þessu já-
kvæða samstarfi Norðuróps og Tón-
listarskóla Reykjanesbæjar áfram
og ráðast í flutning þessa magnaða
verks, Sálumessu eftir W.A. Mozart,
sem við efumst ekki um að muni
falla í góðan jarðveg hjá Suðurnesja-
mönnum,“ segir Jóhann Smári.
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
í rafrænni útgáfu Víkurfrétta frá og með 31. mars
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Stór hluti hópsins á æfingu í Hljómahöllinni undir stjórn Jóhanns Smára. Hluti tónanna verður í Suðurnesjamagasíni vikunnar. VF-mynd/pket
Keflavíkurkirkja í samstarfi við frábært tónlistarfólk frá Suðurnesjum stendur
fyrir styrktartónleikum fyrir flóttafólk frá Úkraínu fimmtudaginn 31. mars kl. 20:00.
Alexandra Chernyshova, Fríða Dís Guðmundsdóttir, Sigurður Guðmundsson og Valdimar Guðmundsson
koma fram ásamt Regnbogaröddum Keflavíkurkirkju, Kór Keflavíkurkirkju og Vox Felix.
Aðgangseyrir er 2.500 kr. sem rennur óskiptur í neyðarsöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar
svo hægt sé að veita íbúum frá Úkraínu neyðaraðstoð og sálfélagslegan stuðning.
STYRKTAR
TÓNLEIKAR
FYRIR FLÓTTAFÓLK FRÁ ÚKRAÍNU
í Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 31. mars kl. 20:00
TÓNLEIKUNUM VERÐUR STREYMT Á FACEBOOK-SÍÐUM KEFLAVÍKURKIRKJU OG VÍKURFRÉTTA
10 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM