Víkurfréttir - 30.03.2022, Síða 14
„Það þarf líka að ala upp næstu kynslóðir. Þjálfun gengur út á það að skila leikmönnum upp í
meistaraflokkana og hér eru margir áhugasamir og efnilegir strákar. Körfuboltinn er klárlega
búinn að vera á uppleið í mörg ár. Iðkendur eru alltaf að verða betri, íþróttin að verða vin-
sælli og fær meira áhorf og fleiri styrktaraðila með hverju árinu. Kakan er alltaf að stækka og
körfuboltaíþróttin er orðin fjandi myndarleg kaka í dag,“ segir Benedikt Rúnar Guðmundsson,
þjálfari meistaraflokks karla hjá Njarðvík, þegar Víkurfréttir hittu á hann í Ljónagryfjunni
þar sem hann var að þjálfa stráka í sjöunda og áttunda flokki.
Nú lýkur deildarkeppninni í
þessari viku og úrslitakeppnin í
Subway-deildunum er rétt handan
við hornið. Í lokaumferð Subway-
deildar karla mætast nágrannafé-
lögin og erkióvinirnir Njarðvík og
Keflavík sem hafa bæði að miklu
að keppa. Keflavík er í þriðja sæti
og Njarðvíkingar eru í kjörstöðu
til að vinna deildina eftir að Þórs-
arar frá Þorlákshöfn töpuðu fyrir
Tindastóli í næstsíðustu umferð
en þeir höfðu tveggja stiga forskot
fyrir þann leik.
„Þessi deild er nú bara svona – hvaða leikur
sem er getur farið hvernig sem er. Það er
ekkert í hendi,“ segir Benedikt.
Nú er þetta í ykkar höndum.
„Já, þetta flakkar á milli handa. Fyrst var
þetta í okkar höndum, svo í þeirra höndum
[Þórs Þorlákshöfn] – og núna er þetta aftur í
okkar höndum.“
Það má reikna með hörkuleik á fimmtu-
daginn þegar Njarðvík og Keflavík mætast.
„Burtséð frá þessari stöðu þá má alltaf
reikna með hörkuleik þegar þessi lið mætast
en ég held að deildarleikur milli þessara tveggja
félaga hafi aldrei verið eins stór og leikurinn á
fimmtudaginn verður. Þetta er gríðarlega þýð-
ingarmikill leikur fyrir bæði lið, við erum að
berjast um fyrsta sætið og þeir eru að berjast
um þriðja sæti og heimavallaréttinn. Þannig
að það er svo miklu meira undir núna en bara
montrétturinn og stigin tvö.“
Það hefur orðið gríðarlegur viðsnúningur á
gengi Njarðvíkinga á einu ári en í fyrra voru
þeir í bullandi fallbaráttu. Síðan þá hefur
bikarmeistaratitill bæst í safnið og þeir eru
efstir í deildinni. Þið eru ekki orðnir saddir
núna, eða hvað?
„Nei, alls ekki. Mikið hungur í hópnum og
vonandi getum við stillt fljótlega upp okkar
sterkasta liði. Það er möguleiki á öðrum titli
hérna og í meistaraflokki snýst þetta um að
ná í titla. Við ætlum klárlega að leggja allt í
sölurnar til að fá þennan bikar. Ef það tekst
ekki, „so be it“, en við munum gera allt sem
við getum.“
Að lokum, hverjum spáir þú Íslandsmeistara-
titlum karla og kvenna í ár?
„Ég get nú ekki annað en spáð okkur sigri,
kannski er það bara óskhyggja en ég vona að
Njarðvík vinni báða titlana,“ segir Benedikt að
lokum.
JPK
Þróttarar leika til úrslita í 2. deild karla
Þróttur Vogum mætti Leikni
Reykjavík um helgina í undanúr-
slitum 2. deildar karla í körfu-
knattleik. Leikurinn fór fram í
Ljónagryfjunni í Njarðvík þar sem
íþróttahúsið í Vogum er óleikhæft
eftir að hafa orðið fyrir vatnstjóni
fyrir skemmstu.
Þróttarar sýndu mikla yfirburði í
leiknum og höfðu að lokum 34 stiga
sigur (92:58). Þróttur mætir Ár-
manni í úrslitum um sæti í 1. deild
eftir að Ármann hafði betur í sínum
leik gegn Snæfelli. Fyrra liðið til að
vinna tvo leiki stendur uppi sem
sigurvegari 2. deildar karla og teku
sæti ÍA í næstefstu deild að ári.
Birkir Alfons Rúnarsson, for-
maður meistaraflokks Þróttar, segist
spenntur fyrir úrslitaviðureignunum
gegn Ármanni og hann hvetur
Þróttara og aðra Suðurnesjamenn til
að mæta á leikina og styðja við bakið
á sínu liði. Stutt er síðan Þróttur
stofnaði meistaraflokk í körfuknatt-
leik og er þetta annað tímabilið sem
liðið tekur þátt í á Íslandsmóti.
Guðmundur Ólafsson hér að komast fram hjá leikmanni
Leiknis og setja niður tvö stig. VF-myndir: JPK
Auglýsing vegna sveitarstjórnarkosninga 2022
Skil á framboðslistum
Almennar sveitarstjórnarkosningar fara fram þann 14. maí 2022.
Frestur til að skila framboðslistum er til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn
8. apríl 2022. Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar veitir framboðslistum móttöku á
bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, frá kl. 11:00 til 12:00 á hádegi
föstudaginn 8. apríl 2022.
Mikilvægt er að skila framboðsgögnum einnig á tölvutæku formi til yfirkjörstjórnar.
Jafnframt er vísað til upplýsinga og leiðbeininga á kosningavef
dómsmálaráðuneytisins, www.kosning.is, undir sveitarstjórnarkosningar 2022.
Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar,
Jóna H Bergsteinsdóttir, Magnea H Björnsdóttir og Valur Á Gunnarsson
REYKJANES BÆR
REYKJANES BÆR
það er svo miklu meira undir núna en bara montrétturinn
Njarðvíkingar fögnuðu innilega
löngu tímabærum titli í fyrra
– hvað gera þeir nú?
Benedikt Guðmundsson, þjálfari
Njarðvíkinga, spáir UMFN Íslands-
meistaratitli í karla- og kvennaflokki.
sport