Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.04.2022, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 27.04.2022, Blaðsíða 1
„Þetta er allt komið í fullan gang og lítur mjög vel út,“ segir Gísli Heiðarsson, einn eigenda Lighthouse Inn hótelsins við Garðskaga í Suðurnesjabæ en ferðaþjónustan hefur heldur betur verið að taka við sér að undanförnu eftir lát á heimsfaraldri. „Það hefur verið mjög vel bókað hjá okkur síðan um miðjan janúar og sumarið er að verða fullt. Þetta er bara frábært. Þá verður gaman að geta boðið nýjum gestum á nýjan veitingastað á hót- elinu,“ segir Gísli en sonur hans og tengdadóttir ásamt öðru pari hafa opnað veitingastaðinn El Faro innan veggja Lighthouse Inn hótelsins við Garð- skaga. Ítarlega er fjallað um veitingastaðinn sem er spænsk-íslenskur, í miðopnu blaðsins. Fleiri aðilar í ferðaþjónustu segja svipaða sögu. Ásgeir Elvar Garðarsson hjá Bílaleigunni Geysi segir að bókanir hafi farið upp í byrjun árs og næstu mánuðir líti mjög vel út. Aðal vandinn sé að fá nógu marga bíla en nær allar bílaleigur minnkuðu flotann í heimsfaraldri og bílaumboð hafa ekki fengið nógu marga bíla til að útvega bílaleigunum. 16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM VIÐ SÝNUM ALLAR EIGNIR, FÁÐU TILBOÐ Í FERLIÐ. ÁSTA MARÍA JÓNASDÓTTIR A S TA@A L LT.I S | 560-5507 UNNUR SVAVA SVERRISDÓTTIR U N N U R@A L LT.I S | 560-5506 SIGRÍÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR S I G R I D U R@A L LT.I S | 560-5520 JÓHANN INGI KJÆRNESTED J O H A N N@A L LT.I S | 560-5508 DÍSA EDWARDS D I S A E@A L LT.I S | 560-5510 ELÍNBORG ÓSK JENSDÓTTIR E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509 PÁLL ÞOR BJÖRNSSON PA L L@A L LT.I S | 560-5501 Hjá okkur er allt innifalið Ljósleiðari 10.490 kr/mán. ENGINN AUKAKOSTNAÐUR, FRÍR ROUTER NET SÍMI SJÓNVARP K a p a l v æ ð i n g • H a f n a r g a t a 2 1 • 4 2 1 4 6 8 8 w w w . k v . i s • k v @ k v . i s Eydís Eyjólfsdóttir hefur verið skáti í Keflavík í áratugi. Dísa, eins og hún er yfirleitt kölluð, hefur haldið tryggð við skátafélagið Heiðabúa sem fagna 85 ára afmæli á þessu ári. Það er hefð fyrir skrúðgöngu keflvískra skáta á sumardaginn fyrsta. Þá er gengið fylktu liði frá Skátahúsinu í Keflavík og stóran hring um bæinn. Gangan endar svo við Keflavíkurkirkju þar sem sóknarpresturinn tekur á móti göngunni og blásið er til skátamessu. Á myndinni hér að ofan má sjá Dísu skáta hnýta fallegan skátaklút um háls séra Erlu Guðmnudsdóttur sóknarprests Keflavíkurkirkju fyrir skátamessuna sem haldin var á sumardaginn fyrsta, síðasta fimmtudag. VF-mynd: Páll Ketilsson Loftrýmisgæsla At l a n t s h a f s - bandalagsins v i ð Í s l a n d hófust í vikunni með komu flug- sveitar ítalska flughersins. Þetta er í sjötta sinn sem Ítalir leggja Atlants- hafsbandalaginu til flugsveit vegna verkefnisins en flugsveit Ítala var seinast hér á landi fyrir tveimur árum. Ítalska flugsveitin er komin til landsins með fjórar F-35 orrustuþotur og 135 liðsmenn. Flugsveitin hefur aðsetur á ör- yggissvæðinu á Keflavíkurflug- velli en þar dvelja einnig flug- sveitir bandaríska sjóhersins við kafbátaeftirlit. Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði utanríkis- ráðuneytisins og í samvinnu við Isavia. Loftrýmisgæslunni lýkur í lok júní. Ítalir með þotur á Keflavíkurflugvelli Hótelið fullbókað frá í janúar Nýr viti á Garðskaga El Faro er nýr spænskur veitingastaður á Lighthouse Inn hótelinu við Garðskaga. Ung pör frá Garði og Spáni kynntust á Flateyri og í gönguferð um Hornstrandir varð til hugmynd að nýjum veitingastað í Suðurnesjabæ. Sjá miðopnu. Ferðaþjónusta í Garðinum komin á fulla ferð: 28. apríl- 1. maí Miðvikudagur 27. apríl 2022 // 17. tbl. // 43. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.