Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.04.2022, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 27.04.2022, Blaðsíða 2
 FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS Mun betri niðurstaða en ráð- gert var hjá Reykjanesbæ Leigueignir aftur komnar í eigu Reykjanesbæjar Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs Reykjanesbæjar var jákvæð um 3,6 milljarða króna á síðasta ári í stað 3 milljarða króna halla sem áætlanir gerðu ráð fyrir. Þetta kemur fram í ársreikningi bæjar- sjóðs, en hann ásamt ársreikn- ingum tengdra stofnana var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar þriðjudaginn 19. apríl. Heildarniðurstaða sam- stæðu A og B hluta var jákvæð um 317 milljónir króna en áætlanir gerðu ráð fyrir 2,5 milljarða króna halla, segir í frétt frá Reykjanesbæ. Heildartekjur samstæðu A og B hluta voru 28,1 milljarður króna og rekstrargjöld 23,2 milljarðar króna. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir, fjármagnsliði, skatta og hlutdeild minnihluta nam 4,8 milljörðum. Að teknu tilliti til þeirra liða var niðurstaðan, eins og áður sagði, já- kvæð um 317 milljónir króna í stað áætlaðs 2,5 milljarða króna halla. Heildartekjur A-hluta bæjarsjóðs námu 21,8 milljörðum króna. Þar á meðal er reiknuð tekjufærsla vegna uppgjörs leigusamninga við Eignar- haldsfélagsið Fasteign að fjárhæð 3,5 milljarða króna en á árinu voru allar eignir sem áður voru leigðar af félaginu keyptar til baka og leigu- skuldbinding felld niður. Þar með lauk tveggja áratuga vegferð Fast- eignar. Rekstargjöld bæjarsjóðs námu 18,2 milljörðum króna. Rekstarnið- urstaða fyrir afskriftir og fjármagns- liði var jákvæð um 3,6 milljarða króna en að teknu tilliti til þeirra liða var niðurstaðan jákvæð um 2,1 milljarð króna. Áætlun ársins gerði hins vegar ráð fyrir 3 milljarða halla á bæjar- sjóði og er þetta því mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir. Munar þar mest um áðurnefnda tekjufærslu vegna uppgjörs leigu- samninga. Eignir samstæðu A og B hluta nema 73,6 milljörðum og A-hluta bæjarsjóðs 40 milljörðum. Skuldaviðmið A hluta bæjarsjóðs skv. reglugerð 502/2012 er 102% og samstæðu A og B hluta 120%. Kjartan Már Kjartansson, bæjar- stjóri kynnti ársreikninginn á síð- asta bæjarstjórnarfundi í Reykja- nesbæ og sagði framtíð bæjarins bjarta og full ástæða til bjartsýni, fjárhagsleg staða væri mun betri, íbúum fjölgar hratt, atvinnutæki- færum fjölgar og mannlíf væri í blóma Hætta sáttir eftir fjörutíu ár „Við erum sáttir. Þetta er orðið fínt eftir fjörutíu ár en líka búið að vera skemmtilegt,“ sögðu þeir Björn og Þórður en þeir félagar fagna fjörutíu árum í rekstri hjólbarða- verkstæðis og smurstöðvar með því að segja þetta gott. Eru búnir að selja húsnæðið og reksturinn. Þeir Björn Marteinssson og Þórður Ingimarsson hafa selt Sverri Gunnarssyni í Nýsprautun reksturinn en hann er enginn ný- græðingur í flestum sem kemur að bílum. „Það er gaman að taka við að þeim félögum sem hafa verið lengst í hjólbarða- og smurþjónustu á Suður- nesjum. Þeir seldu að vísu smurþjón- ustuna fyrir nokkru síðan en nú var kominn tími á að hætta í hinu líka. Þeir hófu rekstur á smurstöðinni í Olís húsinu hinum megin við veginn 1. maí 1982. Í viðtali við Víkurfréttir fyrir fimm árum voru þeir farnir að huga að því að leggjast í helgan stein en það hefur tekið fimm ár. Þeir sögðu reyndar þá að þeir væru alveg til í að vera tuttugu árum yngri því reksturinn væri í góðum málum en væru þó til í að hleypa öðrum að. Sverrir tekur við rekstrinum og opnar daginn eftir hátíðisdag verka- lýðsins mánudaginn 2. maí. „Við höfum verið að bæta við okkur í bílaþjónustu á síðustu árum þannig að þetta passar vel inn í þá þróun,“ segir Sverrir sem tók við bílaum- boði Heklu fyrir nokkrum árum og er staðsett á Fitjum í Njarðvík. Þar hefur Sverrir rekið Nýsprautun í langan tíma. Nú taka hann og hans menn við þjónustunni í Básnum í Keflavík þar sem líklega hundruð þúsundir hjólbarða hafa rúllað um gólf og bíla. Sverrir Gunnarsson í Nýsprautun tekur við rekstri hjólbarðaþjónustu Björns og Þórðar í Keflavík Sverrir með þeim Birni og Þórði fyrir framan hjólabarðaþjónustuna við Básveg í Keflavík. Fjörutíu ára gömul mynd af Birni og Þórði taka við af þeim Ingvari og Guðna á smurstöðinni 1. maí 1982. Björn var að skipta yfir á sumardekkin hjá Magnúsi Haraldssyni, einum af mörgum dyggum viðskiptavinum þeirra félaga. Þjónustuaðili fyrir: Volvo - Ford - Mazda - Peugeot Citroen - Suzuki Alhliða bílaverkstæði og dekkjaþjónusta þar sem þjónustan er í fyrirrúmi Iðjustíg 1, 260 Reykjanesbæ 421 4620 bilaverk.thoris@gmail.com facebook.com/Bílaverkstæði-Þóris Alhliða bifreiðaverkstæði sem býður einnig upp á dekkjaþjónustu ÞJÓNUSTAN Í FYRIRRÚMI Á BÍLAVERKSTÆÐI ÞÓRIS 2 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.