Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.04.2022, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 27.04.2022, Blaðsíða 13
Höfum fjármálin í lagi! Friðjón Einarsson, 1. sæti S-lista Samfylkingarinnar og óháðra í Reykjanesbæ. Á undanförnum átta árum hefur Sam- fylkingin í samstarfi við Beina leið og Framsókn leitt endurreisn Reykjanes- bæjar með góðum árangri. Staðan var erfið og verkefnið stórt en við gengum í verkið. Við höfum greitt niður skuldir, rekið bæinn á ábyrgan hátt og erum búin að kaupa aftur allar fasteignir bæjarins sem höfðu verið seldar til að fjármagna rekstur. Rekstur bæjarins er í jafnvægi og á réttri leið, bærinn okkar vex jafnt og þétt – og framtíðin er björt. Rekstarárangri skilað inn í sam- félagið Við höfum gætt þess að skila góðum rekstrarárangri Reykjansbæjar til baka inn í samfélagið. Við höfum t.d.: • Hækkað hvatagreiðslur úr 7.000 kr. í 45.000 kr. • Lækkað fasteignaskatta til ein- staklinga að raunvirði um 20%. • Lækkað fasteignaskatta á fyrir- tæki, eitt fárra sveitarfélaga á Ís- landi. • Hækkað niðurgreiðslur verulega til foreldra vegna leikskóla og dagfor- eldra á síðustu árum. Um 40.000 kr. lækkun á mánuði hjá dagfor- eldrum eftir átján mánaða aldur. • Margfaldað framlög til íþróttamála. Gert nýja afrekssamninga sem tryggja rekstur íþróttastjóra félag- anna. Byggt flóðlýstan gervigras- völl og nú rís við Stapaskóla eitt glæsilegasta íþróttahús landsins. • Byggt glæsilegan Stapaskóla á hagkvæman hátt án þess að taka til þess lán. Svona ætlum við vinna hlutina áfram næstu fjögur árin og skila góðum rekstrarárangri til baka til samfélags- ins. Lækka gjöld þegar svigrúm er til þess, bæta hag allra í samfélaginu með góðri þjónustu og fagmennsku. Höfum hlutina í lagi! Kosningaspá í Suðurnesjabæ 2022 Frá unga aldri hefur áhugi minn á pólitík verið til staðar. Fjölskylda mín var Alþýðuflokksfólk og afi minn og nafni, Halldór Friðjónsson frá Sandi í Aðaldal, var meðal annars ritstjóri Alþýðumannsins á Akureyri. Fyrir alþingiskosningar haustið 1959 fór ég með félaga mínum, sem síðar varð alþingismaður fyrir Borgaraflokk Alberts Guðmundssonar, í Valhöll sem þá var við Suðurgötu í Reykjavík. Við fengum kók og prins póló og tókum svo nokkra kosningabæklinga með okkur til að bera út. Við styttum okkur leið í gegnum Hólavallakirkjugarð og þar dreifðum við nokkrum bæklingum en félagi minn sagði að þarna væri mikið af kommum og framsóknarmönnum sem þyrftu að kynna sér stefnu Sjálfstæðisflokksins þó seint væri. Síðar komst ég að því að þessi félagi minn, sem var mikill prakkari, hafði skráð mig í Sjálfstæðisflokkinn. Eftir að ég flutti til Sandgerðis tók ég þátt í vinnu fyrir K – lista óháðra borgara árið 1966 en þá var ég nítján ára gamall og ekki kominn með kosningarétt, sem þá miðaðist við 21 árs aldur. Allar götur síðan vann ég með K-listanum í sveitar- stjórnarkosningum í Sandgerði og var ég í hreppsnefnd frá miðju kjörtímabili 1976 til vorsins 1986. K-listinn, Óháðir borgarar, bauð fram með Alþýðuflokki og síðar Samfylkingu og fagnaði góðu gengi alla tíð og náði þrisvar hreinum meirihluta í bæjarstjórn, þ.e. árin 1994, 1998 og 2010. Enn á ný er komið að því að kjósa til sveitarstjórnar. Fyrsta kjörtímabili í sameinuðu sveitarfélagi Garðs og Sand- gerðis, Suðurnesjabæ, er að ljúka og ný- leg úttekt sem gerð hefur verið sýnir að ýmislegt hefur tekist vel en mörg mikil- væg verkefni bíða úrlausnar fyrir nýja bæjarstjórn. Nú liggur það fyrir að íbúar með kosningarétt í Suðurnesjabæ geta valið á milli fjögurra framboðslista sem eru B-listi Framsóknar, D-listi Sjálfstæð- ismanna og óháðra, O-listi Bæjarlista- fólks og S-listi Samfylkingar og óháðra. Það er nokkuð ljóst að framundan eru spennandi tímar og ýmsir velta því fyrir sér hvernig úrslit geta orðið. Ég hef stundum reynt að spá eða giska og verð að játa að stöku sinnum hafa úrslit farið á annan veg en ég hélt. En hvað um það, nú ætla ég enn og aftur að gerast spámaður um úrslit kosninga í Suður- nesjabæ og svo kemur bara í ljós 14. maí hvernig gekk. B-listi Framsóknar Mikil endurnýjun er á listanum frá kosningunum 2018 og sýnist mér að fjórtán nýir frambjóðendur séu á list- anum núna. Þau sem voru í fimm efstu sætum 2018 eru ekki með núna. Nýtt fólk er í forystu og meðalaldur fram- bjóðenda í efstu sætum er innan við 30 ár. Í fyrsta sæti er Anton Guðmunds- son, í öðru sæti er Úrsúla María Guð- jónsdóttir, Sunneva Ósk Þóroddsdóttir skipar þriðja sætið og í fjórða sæti er Sigfríður Ólafsdóttir. Nokkrir fram- bjóðendur hækka svo meðalaldurinn og þar er elstur meistari Jón bóndi sem prýðir heiðurssætið. Á listanum má sjá nöfn sem mögulega gætu valdið óróa hjá gömlum framliðnum kempum í pólitík frá fyrri tíð eins og einhver orðaði það. Það verður fróðlegt að sjá hvernig gengi þessa framsóknarframboðs verður. Mín spá er að B - listinn fái tvo full- trúa í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar 2022. D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra Fréttatilkynning birtist okkur bæjar- búum í Víkurfréttum um að D-listinn og H-listi Magnúsar Magnússonar hefðu sameinast og nú væri Magnús loksins kominn heim aftur en hann hafði sagt skilið við Sjálfstæðisflokkinn eftir að hafa tapað í prófkjöri árið 2010. Maður átti helst von á því að allir mundu gleðj- ast við þessa sameiningu en gleðin og hamingjan stóðu stutt. Nokkrir sjálf- stæðismenn í Garðinum sættu sig ekki við þessa endurkomu Magnúsar og blésu í sönglúðra með miklum látum og gerðust bæjarlistamenn. Einar Jón og Magnús skiptu efstu sætum listans bróðurlega milli sín og sinna fylgjenda. Einar í fyrsta sæti hefur verið í bæjar- stjórn í Garði og Suðurnesjabæ í tuttugu ár. Magnús er í öðru sæti en hann hefur verið tólf ár í bæjarstjórn í Sandgerði og Suðurnesjabæ. Oddný Kristrún Ás- geirsdóttir skipar þriðja sæti listans og Svavar Grétarsson fjórða sætið. Rætt er um að klofningur D-listans nú muni hafa áhrif á gengið í kosningunum en kannski verður það minna en ætla má miðað við aðstæður. Mín spá er að D-listinn fái þrjá full- trúa í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar 2022. O-listi Bæjarlistafólks Eins og fram hefur komið virðast sjálf- stæðismenn í Garðinum mjög ósáttir með endurkomu Magnúsar Magnús- sonar og er þetta klofningsframboð bæjarlistans sagt tilkomið vegna þess. Á listanum eru fjórtán fulltrúar með lögheimili í Garði en fjórir í Sandgerði. Fjórir efstu menn bæjarlistans eru óá- nægðir sjálfstæðismenn úr Garðinum en kannski spurning hvar Laufey Erlends- dóttir sem skipar annað sæti listans vill flokka sig pólitískt en hún hefur boðið sig fram fyrir fjóra mismunandi flokka frá árinu 2002. Laufey, Jón Ragnar Ástþórsson sem skipar þriðja sætið og Haraldur Helgason sem skipar fjórða sætið eru öll í Hafn- arráði en Magnús gagnrýndi mjög harkalega ráðningu hafnarstjóra sem þau meðal ann- arra stóðu að, sem mögulega skýrir óá- nægju þeirra. Jónína Magnúsdóttir skipar fyrsta sæti listans og var hún í bæjar- stjórn fyrir D-listann í Garði kjörtíma- bilið 2014–2018. Mín spá er að O-listinn fái einn full- trúa í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar 2022. S-listi Samfylkingar og óháðra Framboð S - listans var tilkynnt dag- inn áður en framboðsfrestur rann út. S-listinn er í meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar með D-listanum á því kjörtímabili sem nú er að ljúka. Tals- verðar breytingar hafa orðið á listanum frá kosningunum 2018 og þar er komið nýtt fólk í forystusætin. Árið 2018 bauð Samfylking fram undir merkjum J-lista. Ólafur Þór Ólafsson sem var í forystu listans tók að sér starf sveitarstjóra á Tálknafirði. Sá sem tekur við forystu- sætinu nú er Sigursveinn Bjarni Jónsson en hann átti sæti í bæjarstjórn Sand- gerðisbæjar frá árinu 2010 til 2018. Í öðru sæti er Elín Frímannsdóttir, í þriðja sæti er Önundur Björnsson og fjórða sætið skipar Hlynur Þór Valsson. Mín spá er að S-listinn fái þrjá full- trúa í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar 2022. Það verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu og ef spáin mín rætist, hef ég ákveðnar hugmyndir um hvernig meirihluti bæjarstjórnar Suðurnesja- bæjar 2022–2026 gæti verið skipaður. Það er sannarlega von mín að í bæjar- stjórn veljist fólk sem kann og getur stjórnað bæjarfélaginu vel. Eins og áður er getið, er nýleg úttekt sem sýnir að mörgu þarf að breyta til betri vegar, ekki síst þarf að gæta aðhalds á ýmsum sviðum. Þar má meðal annars nefna að starfsmannakostnaður hefur aukist um- talsvert síðastliðin ár og er nú orðinn yfir 50% af heildartekjum bæjarins. Það er auðvelt að fara óvarlega með fjármuni sem maður á ekki sjálfur. Það er líka auðvelt að taka lán sem maður þarf ekki sjálfur að borga. Að gæta ráð- deildar og hagsýni eru aðalsmerki hvers stjórnanda. Hér er linkur á úttektina: https://www.sudurnesjabaer.is/static/ files/PDF/hlh.skyrsla-220920.lokaein- tak.pdf Góðar kveðjur, Jón Norðfjörð, fyrrverandi sveitarstjórnarfulltrúi. Dropinn holar steininn Róbert Jóhann Guðmundsson, skipar 4. sæti á lista Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí næstkomandi. Nú eru að verða komin fjögur ár síðan ég settist í umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar og hef notið þess tíma og lært mikið. Á fyrsta fundinum var m.a. á dagskrá að farið yrði í endur- skoðun á aðalskipulagi Reykjanesbæjar og nú tæpum fjórum árum síðar er það í kynningu og ég hvet íbúa að kynna sér það vel og koma með athugasemdir. Á þessum fyrsta fundi var einnig tekið fyrir erindi Minjastofnunar Íslands um að Húsafriðunarnefnd taki fyrir varð- veislugildi Sundhallar Keflavíkur við Framnesveg. Niðurstaða þess máls var að sundhöllin skyldi víkja fyrir nýrri byggð. Eins og allir vita stendur húsið þarna enn engum til sóma. Það geta verið margar ástæður fyrir því að hlutirnir gerist ekki nógu hratt. Skipu- lagsmál, frá hugmynd og þangað til að bygging eða hverfi verður að veruleika, taka langan tíma og ótal ástæður geta verið fyrir því. Mín upplifun er sú að starfsmenn Reykjanesbæjar eru allir af vilja gerðir til að leiðbeina og upplýsa íbúa þegar eftir því er óskað. Gríðarleg uppbygging sem er rétt að byrja Fjögur ár er ekki langur tími og þegar ég lít til baka er ótrúlega margt sem við höfum áorkað. Við höfum opnað nýjan og glæsilegan grunnskóla í Dalshverfi (Stapaskóla) og erum að byggja við hann íþróttahús og sundlaug, þar verða Njarðvíkingar með heimavöll í körf- unni. Það er búið að gera glæsilegan gervigrasvöll aftan við Reykjaneshöll, verið er að úthluta lóðum í Dalshverfi 3, Njarðvíkurskógar eru mjög skemmti- legt útivistarsvæði, svo eru heilsu- stígarnir heldur betur góð viðbót og ekki langt þar til við getum gengið eða hjólað alla leið að Seltjörn svo eitthvað sé nefnt. Á næstu árum ætlum við að leggja mikla áherslu á Ásbrú, byggja nýjan grunnskóla og hefja mikla upp- byggingu en þar er landsvæði fyrir um 15.000 manna byggð og alveg ótrúlega flottar þéttingarhugmyndir nú þegar í rammaskipulagi. Það er búið að deili- skipuleggja marga fallega reiti í Kefla- víkurhverfinu með þéttingu byggðar í huga sem ég vona svo sannarlega að verði að veruleika sem fyrst því þetta eru glæsileg og metnaðarfull verkefni. Og svo eru það Fitjarnar. Þar ætlum við að rífa það sem eftir er af gömlu steypustöðinni og þar verður gríðar- lega skemmtilegt útivistarsvæði. Svo er Reykjanesbær er með reiðhjólaáætlun í smíðum sem felst í að fólk geti notað reiðhjólið í daglegum störfum sínum. Með öllum þessum aðgerðum megum við ekki gleyma innviðunum eins og umferðarmálum og við verðum að hefjast handa strax til að bæta úr þeim málum, breikka vegi, bæta við leiðum o.s.frv. Við getum verið stolt af Reykja- nesbæ, bærinn er sífellt að verða fal- legri og hér er gott að búa. Sameinumst um gott velferðarkerfi Helga María Finnbjörnsdóttir, 2. sæti á lista Beinnar leiðar í Reykjanesbæ. Við maðurinn minn fluttum til Reykja- nesbæjar árið 2010 og hér höfum við alið börnin okkar upp. Tveir af þremur strákanna okkar eru fæddir hér á HSS og hér hafa þeir allir notið þjónustu dagforeldra, leikskóla og grunnskóla í Reykjanesbæ. Máltækið sem segir að það taki þorp til að ala upp barn er svo sannarlega satt í okkar lífi. Mér hefur þótt við mjög lánsöm með þá skóla sem þeir hafa sótt og ég er afskaplega þakklát fyrir það mikilvæga starf sem starfsfólk skóla sinnir á hverjum degi. Við höfum líka þurft að leita til vel- ferðarþjónustunnar hjá Reykjanesbæ til að styðja enn betur við börnin okkar. Starfsfólk velferðarþjónust- unnar er líka hluti af okkar þorpi. Mér hefur þótt foreldrahlutverkið óskap- lega krefjandi á stundum, ég upplifi oft að ég viti ekkert hvað ég er að gera og vona svo bara það besta. Ég hef sótt námskeið til að styrkja mig í foreldra- hlutverkinu, börnin mín hafa sótt nám- skeið á vegum bæjarins og við höfum líka fengið aðstoð sálfræðinga og ann- arra sérfræðinga. Alltaf erum við að gera okkar besta í þessu hlutverki með það að markmiði að hjálpa börnunum okkar að takast á við áskoranir lífsins og að þeim líði vel. Þrátt fyrir að alls kyns stuðningur sé til staðar hjá bænum fyrir fjölskyldur þá má alltaf gott bæta. Ég hefði t.d. á tímabili þegið að geta rætt við aðra for- eldra í svipaðri stöðu um þeirra áskor- anir í þeirra hlutverkum og hvernig þau væru að takast á við þær. Eins konar „buddy group“ eða stuðningshópur. Þetta er nú bara lítil hugmynd. En hér er stærri hugmynd, hvernig væri ef við myndum sameinast um að setja á fót styrktarsjóð á velferðarsviði? Sjóð svipaðan og nýsköpunar- og þróunar- sjóð fyrir fræðslumálin, eða menning- arsjóð í menningarmálum, sem hefði það hlutverk að styðja þá sem hefðu hugmyndir um námskeið eða stuðning sem hægt væri að setja á laggirnar fyrir fjölskyldur í sveitarfélaginu? Ég veit að hér býr mikill auður í íbúum bæjarins sem væri tilbúið að koma góðum hug- myndum í framkvæmd með stuðningi bæjarins. Sameinumst í heilsueflingu – bætt aðstaða, aðgengi og staðsetning Jón Ragnar Ástþórsson, skipar 3. sæti Bæjarlistans í Suðurnesjabæ. Suðurnesjabær hefur nú verið til í fjögur ár eftir sameiningu Sandgerðis og Garðs. Framfaraskref sem tekið var með hagsmuni íbúa þessara fyrrum sveitarfélaga í huga til lengri tíma litið. Að mínu mati hefur sú sameining komið vel út og vel stæðu sveitarfélagi hefur verið komið á laggirnar. Við sem íbúar sveitarfélagsins erum líka að læra að lifa í þessum raunveruleika og hugsa um þessa tvo bæjarkjarna sem einn. Það getur reynst okkur áskorun en í því felst að mínu mati leiðin til að samein- ingin takist sem best. Það er skiljanlegt að það geti reynst fólki erfitt þar sem að þónokkuð bil er á milli bæjarkjarnanna tveggja og má því kannski segja að bilið sé huglægt og hlutlægt. Okkar verkefni sem bæjarbúa og bæjaryfirvalda er að minnka þetta bil með þeim ákvörðunum sem teknar eru. Ein sú albesta forvörn sem börn og ungmenni fá er skipulagt íþróttastarf. Margar rannsóknir styðja við þessa full- yrðingu og ég held við getum flest fallist á hana. Til að við sem samfélag getum fullnýtt okkur þessar upplýsingar þá þurfum við að búa svo um hnútana hvar sem því verður við komið að sem flestir getið fundið íþróttagrein við sitt hæfi. Börn og ungmenni þurfa að finna sína grein og aðstæður til að iðka íþróttir þurfa að vera ásættanlegar. Einnig þarf að bjóða upp á æfingatíma sem fellur að dagskrá barna og aðgengi þarf að vera eins og best verður á kosið. Suðurnesjabær er aðili að heilsu- eflandi samfélagi og í slíku samfélagi á heilsa og líðan íbúa að vera í fyrir- rúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Það er því okkar skylda að koma til móts við þessar mikil- vægu þarfir. Ein af stóru lausnunum í þessu máli teljum við í Bæjarlistanum X-O vera að koma á laggirnar fjölnota íþróttahúsi. Notagildi fjölnota íþrótta- húss er mikið og kemur það til með að nýtast mörgum íþróttagreinum og öllum kynslóðum. Um leið opnast fyrir fleiri tíma í íþróttahúsunum sem nú eru til staðar til að stunda þær greinar sem eru best til þess fallnar að stunda í slíkum húsum. Þetta bætir aðstöðu fyrir knatt- spyrnuna, sem fær þá aðstöðu sem er fullkomlega samkeppnishæf við það sem best gerist og einnig fá aðrar greinar eins og t.d. körfubolti fleiri og betri æfingatíma. Í fjölnota íþróttahúsi opnast líka möguleikar á vetraraðstöðu fyrir golfara og flugukast svo dæmi séu tekin. Eins mun slíkt hús nýtast fyrir göngur og heilsueflingu eldri borgara eins og dæmin sýna frá nágrannasveit- arfélögum okkar ásamt því að geta nýst fyrir sýningar, menningarviðburði og bæjarviðburði. Staðsetning fjölnota íþróttahúss er mikilvæg hvað varðar aðgengi allra bæj- arbúa að heilsueflingu. Einnig teljum við að með því að hugsa til framtíðar og byrja strax að byggja upp þjónustu fyrir íbúa Suðurnesjabæjar á milli bæjar- kjarnanna munum við byrja á að loka þessari huglægu gjá sem að er að ein- hverju leyti milli íbúa byggðarkjarnanna. Fjölnota íþróttahús á því að okkar mati að vera staðsett mitt á milli bæjar- kjarnanna, nálægt golfvellinum okkar. Það er frábær upphafspunktur í að tengja kjarnana saman og verða okkar sameiningartákn, auk augljósu kost- anna sem felast í nálægðinni við golf- klúbbinn. Í kjölfarið gætum við haldið áfram að byggja þetta svæði upp með ýmis konar heilsurækt og standa þannig undir því að vera heilsueflandi samfélag með fjölbreyttu framboði af útiveru og heilsueflingu. Göngustígurinn sem opn- aður var nýlega var frábært framfara- skref og hjálpar mikið til í því að gera þessa staðsetningu enn fýsilegri og auð- veldar notendum hallarinnar á öllum aldri aðgengi að henni. Einnig þarf að setja á laggirnar frístundabíl sem auð- veldar aðgengi að íþrótta- og æskulýðs- viðburðum enn meira og minnkar bilið á milli bæjarkjarnanna og gerir íbúum kleift að sækja viðburði bæjarfélagsins óháð staðsetningu og stöðu. Við í Bæjarlistanum í Suðurnesjabæ stöndum fyrir faglega forystu og hug- rekki í ákvarðanatöku. X við O í kosningum 14. maí 2022. víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 13

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.