Víkurfréttir - 27.04.2022, Qupperneq 1
„Þetta er allt komið í fullan gang og lítur mjög
vel út,“ segir Gísli Heiðarsson, einn eigenda
Lighthouse Inn hótelsins við Garðskaga í
Suðurnesjabæ en ferðaþjónustan hefur heldur
betur verið að taka við sér að undanförnu eftir
lát á heimsfaraldri.
„Það hefur verið mjög vel bókað hjá okkur
síðan um miðjan janúar og sumarið er að verða
fullt. Þetta er bara frábært. Þá verður gaman að
geta boðið nýjum gestum á nýjan veitingastað á hót-
elinu,“ segir Gísli en sonur hans og tengdadóttir ásamt
öðru pari hafa opnað veitingastaðinn El Faro
innan veggja Lighthouse Inn hótelsins við Garð-
skaga. Ítarlega er fjallað um veitingastaðinn sem
er spænsk-íslenskur, í miðopnu blaðsins.
Fleiri aðilar í ferðaþjónustu segja svipaða
sögu. Ásgeir Elvar Garðarsson hjá Bílaleigunni
Geysi segir að bókanir hafi farið upp í byrjun árs
og næstu mánuðir líti mjög vel út. Aðal vandinn
sé að fá nógu marga bíla en nær allar bílaleigur
minnkuðu flotann í heimsfaraldri og bílaumboð hafa ekki
fengið nógu marga bíla til að útvega bílaleigunum.
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VIÐ SÝNUM ALLAR EIGNIR, FÁÐU TILBOÐ Í FERLIÐ.
ÁSTA MARÍA
JÓNASDÓTTIR
A S TA@A L LT.I S | 560-5507
UNNUR SVAVA
SVERRISDÓTTIR
U N N U R@A L LT.I S | 560-5506
SIGRÍÐUR
GUÐBRANDSDÓTTIR
S I G R I D U R@A L LT.I S | 560-5520
JÓHANN INGI
KJÆRNESTED
J O H A N N@A L LT.I S | 560-5508
DÍSA EDWARDS
D I S A E@A L LT.I S | 560-5510
ELÍNBORG ÓSK
JENSDÓTTIR
E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509
PÁLL
ÞOR BJÖRNSSON
PA L L@A L LT.I S | 560-5501
Hjá okkur er allt
innifalið
Ljósleiðari
10.490 kr/mán.
ENGINN AUKAKOSTNAÐUR, FRÍR ROUTER
NET
SÍMI
SJÓNVARP
K a p a l v æ ð i n g • H a f n a r g a t a 2 1 • 4 2 1 4 6 8 8
w w w . k v . i s • k v @ k v . i s
Eydís Eyjólfsdóttir hefur verið skáti í Keflavík í áratugi. Dísa, eins og hún er yfirleitt kölluð, hefur haldið tryggð við skátafélagið Heiðabúa sem fagna 85 ára afmæli á
þessu ári. Það er hefð fyrir skrúðgöngu keflvískra skáta á sumardaginn fyrsta. Þá er gengið fylktu liði frá Skátahúsinu í Keflavík og stóran hring um bæinn. Gangan endar
svo við Keflavíkurkirkju þar sem sóknarpresturinn tekur á móti göngunni og blásið er til skátamessu. Á myndinni hér að ofan má sjá Dísu skáta hnýta fallegan skátaklút
um háls séra Erlu Guðmnudsdóttur sóknarprests Keflavíkurkirkju fyrir skátamessuna sem haldin var á sumardaginn fyrsta, síðasta fimmtudag. VF-mynd: Páll Ketilsson
Loftrýmisgæsla
At l a n t s h a f s -
bandalagsins
v i ð Í s l a n d
hófust í vikunni
með komu flug-
sveitar ítalska
flughersins. Þetta er í sjötta
sinn sem Ítalir leggja Atlants-
hafsbandalaginu til flugsveit
vegna verkefnisins en flugsveit
Ítala var seinast hér á landi fyrir
tveimur árum.
Ítalska flugsveitin er komin
til landsins með fjórar F-35
orrustuþotur og 135 liðsmenn.
Flugsveitin hefur aðsetur á ör-
yggissvæðinu á Keflavíkurflug-
velli en þar dvelja einnig flug-
sveitir bandaríska sjóhersins við
kafbátaeftirlit. Landhelgisgæsla
Íslands annast framkvæmd
verkefnisins í umboði utanríkis-
ráðuneytisins og í samvinnu við
Isavia. Loftrýmisgæslunni lýkur
í lok júní.
Ítalir með þotur á
Keflavíkurflugvelli
Hótelið fullbókað frá í janúar
Nýr viti á Garðskaga
El Faro er nýr spænskur veitingastaður á Lighthouse Inn hótelinu við Garðskaga.
Ung pör frá Garði og Spáni kynntust á Flateyri og í gönguferð um Hornstrandir
varð til hugmynd að nýjum veitingastað í Suðurnesjabæ. Sjá miðopnu.
Ferðaþjónusta í Garðinum komin á fulla ferð:
28. apríl-
1. maí
Miðvikudagur 27. apríl 2022 // 17. tbl. // 43. árg.