Víkurfréttir - 27.04.2022, Qupperneq 9
„Alvaro kom til Íslands fyrir u.þ.b.
tíu árum í fyrsta sinn í heimsókn þar
sem frændi hans er búsettur hér á
landi. Hann heillaðist af landinu og
eftir að hafa kynnst Inmu konunni
sinni í einum þekktasta kokkaskóla
á Spáni í Baskalandi eins og í sannri
ástarsögu þá hafa þau farið víða og
starfað saman sem kokkar víðsvegar
um heim, t.d. á Tenerife, í Edinborg
og Póllandi svo eitthvað sé nefnt. Al-
varo langaði alltaf að koma aftur til
Íslands og Inma var mjög spennt að
kynnast Íslandi líka svo þau ákváðu
að koma hingað í leit að vinnu. Degi
eftir komuna til landsins fengu þau
vinnu á Snaps í Reykjavík. Fljótlega
skall Covid-19 á og þau misstu bæði
vinnuna þar.
Þeim bauðst í framhaldinu tæki-
færi á að taka við eldhúsinu á Vagn-
inum á Flateyri tímabundið yfir
sumarið 2021 sem þau gerðu, þar
sem þau heilluðust af Vestfjörðunum
fögru og langaði að kanna
þá vel. Þau hafa mjög
gaman af ferðalögum og
útivist og eiga t.d risa-
stóran bíl sem kemst upp
á hálendi Íslands og þau
geta gist aftur í. Það var
reyndar meira unnið en
ferðast þetta sumarið þar
sem að þau sáu ein síns
liðs um eldhúsvaktina
á Vagninum og stóðu sig eins og
hetjur. Maturinn vakti mikla lukku
og þau tóku mest á móti 110 manns
í mat eitt kvöldið þrátt fyrir að allt
sé eldað frá grunni, t.d. brauð, sósur
og kökur.“
Hugmyndin á Hornströndum
Jenný segir að hún og Viktor hafi
ákváðið að eyða sumrinu fyrir
vestan eftir Lýðskóladvölina og
störfuðum þau m.a. á Vagninum
þetta sumarið.
„Þar kynntumst við öðlingunum
Alvaro og Inmu. Með hverjum
deginum styrktust vináttuböndin
og í lok sumars skelltum við okkur
saman í nokkurra daga gönguferð
með allt á bakinu um náttúrupara-
dísina Hornstrandir. Þar lentum við í
nokkrum áskorunum, t.d. það slæmu
veðri að sterka útivistartjaldið okkar
brotnaði. Við eyddum þessum
dögum saman og sáum enn betur
hversu vel við unnum saman sem
lið. Í ferðinni ræddum við saman um
heima og geima og fæddist þá hug-
myndin um El Faro.
Við komumst að því að fyrir utan
sameiginleg áhugamál áttum við öll
sameiginlegan draum um að opna
veitingastað sem bauð upp á eitt-
hvað öðruvísi heldur en vanalegt er
hér á landi. Að nýta íslenskt hágæða
hráefni og bjóða upp á suðræna mat-
arupplifun, huggulega stemningu og
vinalega þjónustu.“
Hinn fullkomni staður
Jenný og Viktori er það hjartfólgið
að búa eitthvað til í þeirra heimabæ,
Garðinum eða Suðurnesjabæ svo
að það var strax hugmyndin að fá
kokkana, spænsku vinina, í Garðinn.
„Hótelið hjá tengdapabba og
bræðrum var hinn fullkomni staður
fyrir nýjan veitingastað, hlýlegt fjöl-
skyldurekið bjálkahótel með fallegu
útsýni. Þá var hafist handa að byggja
og hefur El Faro teymið og Light-
house Inn teymið unnið hörðum
höndum að opnun þessa nýja veit-
ingastaðar síðustu mánuði. Allt frá
byggingavinnu, byggingu nýs rýmis
í veitingasal og eldhúsi yfir í teikn-
ingar og hönnun iðnaðareldhúss og
veitingastaðar. Þá höfum við lagt
áherslu á að reyna að gera sem mest
sjálf.“
Góð ráð frá góðu fólki
„Við fjórir eigendur El Faro erum
öll nýgræðingar í rekstri svo við
höfum sótt okkur ráð frá góðu fólki,
t.d. Gísla tengdapabba og góðu fólki
í bransanum sem hefur gert þetta
lengi. Til dæmis tóku til hjónin
Sigurður Gíslason, landsliðskokkur
og Berlind Sigmarsdóttir eigendur
GOTT í Vestmannaeyjum afskap-
lega vel á móti okkur og gáfu okkur
fjölmörg góð ráð. Þá hefur Völundur
Snær Völundarsson, kokkur, og Þóra
Sigurðardóttir kona hans en Völli
kenndi okkur á Flateyri og mynd-
uðust vinabönd þar. Öll þessi hjálp
hefur verið algjörlega ómetanleg og
erum við þeim og öllu því góða fólki
í kringum okkur afar þaklát.“
Bros eftir góðan mat
El Faro verður til að byrja með opinn
frá miðvikudegi til sunnudags kl. 18
til 22 en draumur eigendanna er að
geta haft opið alla daga í framtíðinni.
Veitingastaðurinn tekur um rúmlega
60 manns í sæti en svo er einnig bar-
svæði og lounge þar sem hentugt er
að henda sér í Tapas og bjór. Einnig
verður alvöru kaffi í boði og kaffi-
veitingar. Þá verður hamingjustund
(happy hour) kl. 16-18 þar sem í boði
verða líka léttir réttir og um helgar
verður spænskur dögurður kl. 12-
15. Formleg opnun staðarins verður
föstudaginn 29. apríl.
„Við vonum að gestir okkar fari
alltaf heim með góða tilfinningu og
bros á vör eftir að hafa fengið góðan
mat og drykk hjá okkur á El Faro.
Ekki skemmir stórkostlegt umhverfi
Garðskaga,“ segir Jenný María.
Sendum starfsmönnum okkar og öðru
verkafólki okkar bestu kveðjur í tilefni
hátíðardags verkalýðsins 1. maí.
Til hamingju með daginn!
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Demantar – Vortónleikar
Kvennakórs Suðurnesja
Kvennakór Suðurnesja heldur
tónleika í Bíósal Duus safnahúsa
2. og 4. maí næstkomandi. Kórinn
ætlar að flytja frábær lög sem eru
algjörir tónlistardemantar frá
tímabilinu 1940 til 2020.
Nostalgían verður allsráðandi,
flutt verða lög sem gerð voru
ódauðleg af flytjendum eins og
Frank Sinatra, Marilyn Monroe,
Bítlunum, Cindy Lauper, Toto,
Sting, Emilíönu Torrini, Of mon-
sters and men, Mugison og fleirum.
Kórinn fagnar því að geta loksins
haldið tónleika án samkomutak-
markana en síðustu tvö ár hefur
verið mikil áskorun að halda úti
kórstarfi. Má þar nefna að tónleikar
sem upphaflega var áætlað að halda
vorið 2020 voru loksins haldnir í
september 2021 en þá hafði kórinn
nokkrum sinnum þurft að gera hlé
á æfingum og fresta tónleikunum
vegna heimsfaraldursins. Að þeim
tónleikum loknum hófust strax
æfingar á nýju prógrammi sem
eins og áður sagði, samanstendur
af tónlistardemöntum frá 1940 til
dagsins í dag. Æfingar hafa gengið
ótrúlega vel þrátt fyrir samkomu-
takmarkanir stóran hluta vetrarins.
Kórkonur hlakka mikið til að flytja
þessi lög fyrir tónleikagesti og eru
þess fullvissar að þeir eiga eftir að
skemmta sér vel á þessari kvöld-
stund. Stjórnandi Kvennakórs
Suðurnesja er Dagný Þ. Jónsdóttir
og með kórnum verður hljómsveit
sem skipuð er þeim Geirþrúði F.
Bogadóttur á píanó, Þorvaldi Hall-
dórssyni á trommur, Karli S. Einars-
syni á bassa og Sigurði Ólafssyni á
gítar.
elfarorestaurant.is
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 9