Víkurfréttir - 18.05.2022, Qupperneq 13
„Skammt norðan Grindavíkur eru merkilegar gos- og náttúruminjar sem ekkert margir hafa gefið gaum
að hingað til. Það breyttist ekki alls fyrir löngu þegar jarðskjálftahrina hófst á svæðinu samhliða land-
risi við bæjarfjall Grindvíkinga, Þorbjarnarfell.“ Þetta ritaði náttúruljósmyndarinn Ellert Grétarsson á
vefsvæði sitt, elg.is, um miðjan apríl árið 2020. Pistill Ellerts er um Suðurnesjaperlur og á vel við í dag
þar sem augu, a.m.k. vísindasamfélagsins, beinast nú að Sundhnúkagígaröðinni.
Á umræddu svæði er að finna Sund-
hnúkagígaröðina, um átta kílómetra
langa en hún er á náttúruminja-
skrá sem einstakt náttúruvætti.
Hraunið frá þessum gígum mun
vera um 2.500 ára gamalt. Stærsti
gígurinn, sjálfur Sundhnúkurinn, er
svo nefndur vegna þess að hann var
notaður sem mið þegar sæfarendur
sigldu inn sundið til Grindavíkur.
Hraunflóðið frá þessum gígum hefur
runnið alla leið til sjávar og myndað
þar um tveggja kílómetra langan
og rúmlega eins kílómetra breiðan
tanga sem við þekkjum sem Þór-
kötlustaðarnes. Einnig hefur mikill
hraunstraumur runnið til norðurs,
vestur með Svartsengisfelli og lang-
leiðina að Eldvörpum.
Við syðri enda gígaraðarinnar
er náttúrufyrirbæri sem vert er að
skoða. Þar rís tignarlegur hamra-
veggur utan í Hagafelli norðvestan-
verðu. Þarna er um að ræða all háan
misgengisstall en misgengi myndast
við brothreyfingar í jarðskorpunni,
þ.e. þegar hún brotnar upp og veggir
hennar ganga á víxl, misháir sitt
hvoru megin brotlínunnar. Undir
hamraveggjunum eru hrikaleg björg
sem hafa brotnað úr stallinum og eru
þau nefnd Gálgaklettar. Nafngiftin
tengist gamalli þjóðsögu um fimmtán
útilegumenn sem höfðust við í Þjó-
fagjá, efst uppi á Þorbjarnarfelli.
Höfðu þeir orðið uppvísir að sauða-
þjófnaði í Grindavík, sem þótti vita-
skuld dauðasök fyrr á öldum. Enda
fór það svo að þegar til þeirra náðist
voru þeir hengdir í Gálgaklettum.
Þetta svæði, Hagafell og Sund-
hnúkagígarnir, er afar áhugavert
og upplagt til gönguferða enda vel
aðgengilegt skammt frá þéttbýlinu.
Gaman er að ganga meðfram gíga-
röðinni og upp á Stóra–Skógfell
þaðan sem gott útsýni gefst yfir gíga-
röðina og hraunin í kring, segir í pistli
Ellerts. Gönguferðir um umrætt
svæði eru kannski varasamar í dag,
þar sem óvissustigi hefur verið lýst
yfir vegna jarðhræringa á svæðinu.
Sundhnúkagígar Á skjálftaslóðum
norðan Grindavíkur
Manneskjan er smá í samanburði við
hrikaleg björgin undir hamraveggnum.
VF-mynd: Jón Steinar Sæmundsson
Horft yfir syðsta hluta gígaraðarinnar í átt að Hagafelli. Grindavík í fjarska. Þorbjarnarfell til hægri. Horft yfir Hagafell í átt til Grindavíkur.
Sundhnúkagígaröðin
Þorbjörn / Þorbjarnarfell
Hagafell
GrindavíkHópsnes
Svartsengi
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 13