Víkurfréttir - 12.10.2022, Qupperneq 10
Unnu dag
og nótt við
að byggja
upp veldi
Vinahópur sem varð til við upprisu körfuboltans
í Keflavík hittist enn og gerir margt skemmtilegt
saman. Heldur „Ólympíuleika“ í Kaupmannahöfn
og fer á Volksfest í Þýskalandi.
„Við tókum við rekstri körfuboltans í Keflavík á erfiðum tímum og náðum
með mikilli vinnu að snúa málum við, fyrst fjárhagslega og síðan íþrótta
lega. Þegar við tókum við þessu var erfitt fjárhagslega og við náðum að
laga það og byggðum upp veldi sem vann og vann og vann. Við unnum
dag og nótt við að snúa körfuboltanum í Keflavík aftur við á sínum tíma
eftir hann hafði verið í lægð og urðum Íslands og bikarmeistarar nokkur
ár í röð, bæði karlar og konur. Hápunkturinn var síðan þátttaka í Evrópu
keppni sem var mikið ævintýri, hvernig sem á það er litið,“ segir Hrannar
Hólm en hann sat í stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur (KKDK)
upp úr aldamótum. Stjórnin stóð í ströngu að koma félaginu úr fjárhags
erfiðleikum og árangurinn leyndi sér ekki. Í gegnum þá miklu vinnu sem
stjórnin og körfuknattleiksdeild Keflavíkur lagði á sig myndaðist vin
skapur til framtíðar.
Stjórnarmenn voru þeir Hrannar,
Hermann Helgason, Birgir Már
Bragason, Brynjar Hólm Sigurðsson,
Gunnar Jóhannsson, þjálfarar voru
Sigurður Ingimundarson og Guðjón
Skúlason. „Auðvitað var fleira gott
fólk með okkur, t.d. Guðsveinn
Ólafur Gestsson og Særún Guð
jónsdóttir, en það breytir ekki því
að þessi sjö manna hópur er ótrú
lega lífseigur og hefur gaman af
því að hittast og leika sér,“ segir
Hrannar en hópurinn hefur haldið
góðu vinasambandi allt frá tímum
stjórnarinnar og segir Hrannar
körfuboltann vera undirstöðuna af
vináttu þeirra. „Við erum allir Kefl
víkingar og höfum þekkst, mismikið,
frá örófi alda, ef svo má segja. Sumir
hafa þekkst í fjörutíu, fimmtíu ár
en akkúrat þessi hópur, sem haldið
hefur ótrúlega góðu sambandi árum
saman, varð eiginlega til í stjórn
körfuknattleiksdeildar Keflavíkur
fyrir tuttugu árum. Þetta er í sjálfu
sér ótrúlega skemmtileg saga, þetta
eru rosalega sterk bönd sem tengja
okkur. Jafnvel þótt við búum ekki
allir ennþá í Keflavík, þá hefur það
engin áhrif. Þessi vinskapur sem
byrjaði í gegnum körfuna er rosa
lega sterkur og gerir það að verkum
að við hittumst enn þann dag í
dag og erum við alltaf að gera eitt
hvað saman. Það skiptir engu máli
hvað við erum að gera, það er allt
voðalega einfalt og skemmtilegt,“
segir Hrannar og bætir við: „Það er
rosalega margt sem við erum búin
að upplifa saman í kringum körfu
boltann og flestallt var skemmtilegt
og því fylgdi líka góður árangur. Vin
áttan í kringum sportið hélt áfram
eftir viðveru okkar en það er mikil
vægt að rækta hana.“
Frá Keflavík á „Ólympíuleikana“
Það er ljóst að hópurinn hafi haldið
áfram að rækta vináttuna eftir að
stjórnarstörfum þeirra lauk en fé
lagarnir eru duglegir að hittast þrátt
fyrir að þeir búi ekki allir ennþá í
Keflavík. „Á hverjum vetri höldum
við heimatilbúna „Ólympíuleika“ í
Kaupmannahöfn þar sem við hitt
umst og keppum í allskonar íþrótta
greinum eins og krullu, svindli, keilu
billjardi og fleiru. Það eru algerlega
stórkostleg mót, keppnin og gleðin í
algleymi. Við hittumst alltaf tvisvar
á ári, það er annars vegar á Ólympíu
leikunum í Kaupmannahöfn og hins
vegar á Volksfest í Þýskalandi á
haustin. Þá erum við saman i nokkra
daga, ásamt konunum, og keppumst
aðallega við að skemmta okkur eins
vel og mögulegt er og tekst það yfir
leitt, án vandræða,“ segir Hrannar en
hann er búsettur í Kaupmannahöfn.
Hrannar og kona hans, Halla,
bjuggu í mörg ár Stuttgart í Þýska
landi en þau stunduðu nám þar. Þau
kynntust þar hátíðinni Volksfest en
hátíðin fer fram með sama hætti og
Oktoberfest og er önnur stærsta af
sinni tegund í heiminum. „Eftir að
við fluttum frá Þýskalandi höfum
við alltaf farið öðru hvoru aftur því
við eigum vini þar sem voru með
okkur í námi. Svo stingum upp á
því fyrir nokkrum árum að fara
ásamt vinum mínum og mökum,“
segir Hrannar. Úr varð að hópurinn,
sem er samansettur af gömlum
stjórnarmeðlimum, þjálfurum og
leikmönnum Keflavíkur, hélt til
Stuttgart á hátíðina árið 2019 og
endurtók hann leikinn á dögunum.
„Þau komu frá Íslandi, við frá Dan
mörku og vinir mínir frá Þýskalandi
og við hittumst þarna og eyddum
fimm dögum saman. Þetta er gjör
samlega stórkostlegt fyrirbæri,“
segir Hrannar. Aðspurður hvernig
hátíðarhöld fara fram segir hann:
„Við borðuðum meðal annars svo
kallaðan svebískan mat. Því við
vorum í héraði sem er kallað Swabia
og þar er borðaður svebískur matur
og drukkinn svebískur bjór og það
eru ákveðnar hefðir sem fylgja því.
Á föstudeginum fórum við svo öll
í múnderinguna, klæddum okkur
í „lederhosen“ og konurnar fóru í
sérstaka kjóla, sem þykja víst ekki
þægilegasti fatnaður sem þú getur
fundið en þetta er það sem að til
heyrir þessu. Við gengum í gegnum
allan bæinn og tókum heilan dag í
þessa hátíð. Við fórum í tjöldin þar
sem hátíðin var opnuð formlega og
fór svo í gang að fullum krafti. Þar
voru 6.000 manns í einu tjaldi og
það er hreint magnað. Á hátíðinni
eru allir ánægðir og allir elska hvorn
annan og syngja, dansa og hoppa
saman frá klukkan fjögur til klukkan
ellefu um kvöldið. Þetta er alveg ein
staklega mikil skemmtun og fárán
lega mikið fjör. Bjór er drukkinn og
það gera sér allir mjög glaðan dag.
Við fórum einnig í göngu upp í vín
héruð þar sem Stuttgart er með fjöll
sem liggja allt í kring og fórum á sér
staka veitingastaði sem opna bara
í tvo mánuði á ári. Þar opnar fólk
húsin sín og breytir þeim í veitinga
staði. Það er kallað Besenwirtschaft
en „besen“ þýðir kústur, svo þetta er
í raun kústaveitingahús. Það virkar
þannig að fólk setur kústa fyrir
framan húsin sín og ef það er kústur
fyrir framan húsið þá þýðir það að
þú sért velkominn inn. Þetta er gert
vegna þess að það er ný uppskera og
fólk er að fagna henni. Þá eru menn
Það er rosalega
margt sem við
erum búin að upplifa
saman í kringum
körfuboltann og flestallt
var skemmtilegt og því
fylgdi líka góður árangur.
Vináttan í kringum
sportið hélt áfram
eftir viðveru okkar
en það er mikilvægt
að rækta hana ...
Hrannar og Halla á Volksfest.
Kústar veitingahús.Hrannar og Halla ásamt þýsku
vinum sínum á Volksfest.
Hrannar, Hermann, Guðsveinn, Gunnar og
Birgir á Evrópukeppninni í körfubolta.
10 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM