Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.10.2022, Síða 11

Víkurfréttir - 12.10.2022, Síða 11
með mat og vín og það er alveg sér­ lega skemmtilegt. Við gerðum þetta allt saman sem hópur og nutum þess að kynnast nýjum hlutum. Þetta er náttúrlega mjög sérstakt fyrir þá sem eru ekki vanir þessu umhverfi, það er ákveðinn „kúltúr“ sem fylgir þessu.“ Hátíðin Oktoberfest er flestum Íslendingum kunnug en Hrannar segir helsta muninn á Oktoberfest og Volksfest vera ferðamanninn. „Októ­ berfest er frægara, þar eru sex millj­ ónir gesta og flestir ferðamenn fara þangað en það eru fjórar milljónir gesta á Volksfest og þar eru eigin­ lega bara Þjóðverjar. Það er engin spurning um það að þú ferð beint inn í hjartað á menningunni í Þýska­ landi á Volksfest. Ég og Halla erum bara svo heppin að hafa búið þarna og þekkja þetta, annars hefðum við aldrei farið þangað,“ segir hann. Að­ spurður hvort Volksfest verði fastur liður á ári hverju hjá hópnum segir Hrannar: „Ég hugsa það, þetta er náttúrlega fáránlega skemmtilegt. Ég myndi halda að við höldum okkar striki og mætum þarna á hverjum ári þar til að við erum orðin of gömul til að ganga eða drekka bjór. Þá kannski förum við að hægja á okkur en það eru allavega nokkur ár eftir.“ Óendanleg verðmæti að eiga sterk vinasambönd Hópurinn hefur skapað margar skemmtilegar minningar saman í gegnum árin en þegar Hrannar horfir til baka á tímana sem þeir voru í stjórn KKDK segir hann Evr­ ópukeppnina standa upp úr. „Við eigum milljón sögur í kringum öll tímabilin en margar af okkar skemmtilegu minningum tengjast því þegar við vorum í Evrópu­ keppninni. Í kringum hana styrktust vinabönd okkar enn betur því við þurftum að vinna svo mikið til að láta það verða að veruleika. Við þurftum meðal annars að pirra hálfa Keflavík og gera ýmislegt til að safna peningum. Við byggðum upp alveg óttúlega skemmtilega stemmningu í kringum þetta og það var gaman að vera í stjórn á þeim tíma þó svo að vinnan í kringum þetta hafi verið óendanlega mikil. Stemmningin var líka góð því okkur leið vel saman, við unnum vel saman og vorum dugleg, það má ekki gleymast að það voru konur þarna líka. Evrópumótið er rosalega eftirminnilegt,“ segir Hrannar. Eftir að hafa horft til baka til tíma stjórnarinnar segir Hrannar að lokum: „Það eru óendanleg verð­ mæti í því að eiga svona marga góða vini sem hafa gaman af því að vera saman eftir allan þennan tíma.“ ORGÓBER 16. Sálmadjass Gunnar Gunnarsson organisti við Fríkirkjuna og Sigurður Flosason, saxófónn 23. Rafgítar og orgel Arnór Vilbergsson organisti við Keflavíkurkirkju og Sigurgeir Sigmundsson, rafmagnsgítar 30. Orgeltónleikar Guðmundur Sigurðsson organisti við Hafnarfjarðarkirkju leikur valin orgelverk kl. 20:00 kl. 20:00 kl. 17:00 O RGELMÁNUÐUR Í OKTÓBER 2022 DAGSKRÁ Í OKTÓBER Gunnar Gunnarsson og Sigurður Flosason Sigurgeir Sigmundsson Arnór VilbergssonGuðmundur Sigurðsson keflavikurkirkja.is Við eigum milljón sögur í kringum öll tímabilin en margar af okkar skemmtilegu minningum tengjast því þegar við vorum í Evrópukeppninni. Í kringum hana styrktust vinabönd okkar enn betur ... Félagarnir að keppa í krullu á „Ólympíuleikunum“ í Kaupmannahöfn, á myndina vantar Hermann Helgason. Hópurinn rifjaði upp gamla takta á Volksfest. Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma@vf.is vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM // 11 Hermann, Gunnar, Guðjón, Hrannar, Birgir og Brynjar á Volksfest, á myndina vantar Sigurð Ingimundarson. Betri helmingarnir voru einnig með á Volksfest í Stuttgart.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.