Rökkur - 01.01.1940, Blaðsíða 1
ROKKUR
ALÞÍÐLEGT MÁNAÐARRIT
STOFNAÐ í WINNIPEG 1922
XVH. árg. Reykjavík 1940. 1. hefti.
STEINGRÍMUR THORSTEINSSON:
ÚRVALSLJÓÐ. — Axel Thorsteinson
valdi ljóðin. — Útgefandi: ísafoldar-
prentsmiðja h/f. — 1939.
Sum ljúfustu og bestu kvæði Stgr. Tli. hafa
nú verið sungin um land alt í tvo mannsaldra
eða lengur. Þau lifa enn á vörum þjóðarinnar
og munu lifa, meðan fslendingar skemta sér við
söng — í lieimahúsum, á gleðimótum og góðra
vina fundum. Eru mörg þeirra kveðin undir
fögrum og kunnum lögum og urðu brátt land-
fleyg, er skáldið lét þau frá sér fara. Hafa ætt-
jarðarljóð Steingríms og eggjunarkvæði lengí
veriðd mildum metum höfð, enda eiga þau það
skilið. Þótti þar kenna þess elds, sem ekki má
kulna, ef vel á að fara, og þess metnaðar, sem
þjóðin má með engu móti án vera. Þar er og
margt spaklega hugsað og prýðilega orðað. Hinn
Ijúfi kveðskapur höfundarins ei’ og þjóðkunnur
og mikils metinn. Ber hann — ekki síður en
ættjarðarljóðin — órækt vitni um heitar tilfinn-
ingar og viðkvæma sál. Og enn má nefna stökur
hans af ýmsu tæi, sumar yndislegar, aðrar kald-