Fréttablaðið - 10.02.2023, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 10.02.2023, Blaðsíða 6
kristinnhaukur@frettabladid.is hafnarfjörður Aðeins níu félags- legar íbúðir hafa verið keyptar inn í félagslega kerfið í Hafnarfjarðarbæ undanfarin þrjú ár, það er þrjár á ári. Til samanburðar voru fjórtán íbúðir keyptar árið 2018. Þetta kemur fram í minnisblaði bæjarins sem lagt var fyrir fjölskylduráð í vikunni. „Það hefur gengið mjög hægt að fjölga félagslegum íbúðum hérna í bænum,“ segir Árni Rúnar Þorvalds- son, fulltrúi Samfylkingar sem gagn- rýnir meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. „Þetta heldur engan veginn í við þörfina.“ Alls 190 eru á biðlista eftir félags- legu húsnæði, þar af 74 í brýnni þörf. 35 bíða eftir húsnæði fyrir fólk með fötlun, þar af fjórtán í brýnni þörf. Samfylkingin lagði til að Hafn- arfjörður myndi fylgja fordæmi Reykjavíkur um húsnæðissáttmála við ríkið, sem byggður var á ramma- samkomulagi Sambands íslenskra sveitarfélaga og ríkisins frá því í sumar. Samkvæmt sáttmálanum verða 30 prósent nýs húsnæðis byggð af óhagnaðardrifnum leigufélögum og 5 prósent félagslegar íbúðir. Í minnisblaði Hafnarf jarðar kemur fram að aðeins 116 íbúðir af 1.000 íbúðum á framkvæmdastigi séu byggðar af óhagnaðardrifnum leigufélögum, eða 12 prósent. Ekki eru sérstakar íbúðir fyrir náms- menn eða eldri borgara. „Af leiðingarnar eru einsleitur húsnæðismarkaður í Hafnarfirði og þeir sem standa höllum fæti eru í enn þá meiri vanda,“ segir Árni og bendir á afar hæga uppbyggingu húsnæðis á síðasta kjörtímabili, þegar var íbúafækkun í bænum um tíma. Biðtíminn eftir húsnæði verði langur. n Þeir sem standa höll- um fæti eru í enn þá meiri vanda. Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar Fyrstu dagana er þetta mikil ringulreið en það kemst mynd á þetta þegar á líður. Hrafnhildur Sverrisdóttir, verkefnisstjóri hjá alþjóðasviði Rauða krossins á Íslandi Fólkið í flokknum, grasrótin, ræður nú stefnunni til næstu missera. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, formaður Viðreisnar ser@frettabladid.is STjÓrnSÝSLa Á árabilinu 2015 til 2021 fjölgaði opinberum starfs- mönnum um 11.400. Samkvæmt þessum tölum jókst fjöldi opinberra starfsmanna um ríflega 21,4 prósent á þessum sex árum. Á sama tíma fjölgaði starfsfólki á almenna markaðnum um 4.200 sem er um þriggja prósenta aukning. Fjölgunin er mest í opinberri stjórn- sýslu en þar hefur starfsmönnum fjölgað um 4.600 frá árinu 2015. Það er um 60 prósenta aukning á sex árum. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Félags atvinnurekenda sem kynnt var á ráðstefnu í gær undir heitinu Er ekki bara best að vinna hjá rík- inu? Star fsmönnum sveitar félaga fjölgaði einnig á þessum tíma, sam- tals um hálft fimmta þúsund frá 2015. Samkvæmt tölum Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, er stærð hins opinbera á vinnumark- aði einungis meiri í Noregi, Svíþjóð og Danmörku en hér á landi. Hlut- fall þetta mældist rétt tæp 25 pró- sent hér á landi árið 2019 en hæst í Noregi, tæplega 31 prósent. Það sem vekur sérstaka athygli, eins og segir í skýrslunni, er að í mörgum löndum OECD lækkaði þetta hlutfall milli áranna 2007 og 2019, þvert á það sem gerðist hér. n Fimmtungi fleiri ríkisstarfsmenn Hrafnhildur Sverrisdóttir hjá Rauða krossinum segir afar vel ganga að safna fé til að hjálpa Sýrlendingum og Tyrkjum eftir jarðskjálftana. benediktarnar@frettabladid.is hjáLparSTarf„Þetta er gríðarlega erfitt ástand því það eru fæstir vanir að takast á við neyðaraðgerðir af þessum toga og svona hamfarir,“ segir Hrafnhildur Sverrisdóttir, verkefnisstjóri hjá alþjóðasviði Rauða krossins á Íslandi, um ástandið í Tyrklandi og Sýrlandi. Staðan í löndunum tveimur er afar erfið í kjölfar jarðskjálfta sem ollu gríðarlegu tjóni og mannfalli. Hrafnhildur segir að alþjóða- samfélagið reyni að aðstoða eftir bestu getu með fjármagni, neyðar- birgðum og mannskap. „Það þarf alltaf að skipuleggja aðgerðir gríðarlega vel og það tekur tíma. Fyrstu dagana er þetta mikil ringulreið en það kemst mynd á þetta þegar á líður. Þá verður meira skipulag hjá hjálparsamtökum sem eru að vinna saman og hægt er að samhæfa aðgerðir,“ segir Hrafn- hildur. Að sögn Hrafnhildar er mikil- vægt að hlúa að innviðum lands sem verður fyrir slíkum hamförum. „Fólk verður oft án rafmagns, síma og heilbrigðisþjónustu og hefur það gríðarleg áhrif á líf fólks í framhaldinu.“ Nýjustu tölur um fjölda látinna nálgast samkvæmt erlendum miðl- um 16 þúsund, en margt fólk er enn fast undir rústum bygginga. Hrafn- hildur segir að það sé mikilvægt að hlúa bæði að þolendum ham- faranna og sjálf boðaliðum sem aðstoða við björgunaraðgerðirnar. „Þetta er gríðarlega erfitt ástand því það eru fæstir vanir að takast á við neyðaraðgerðir af þessum toga,“ segir Hrafnhildur. Rauði krossinn hóf neyðarsöfnun í kjölfar hamfaranna í Tyrklandi og Sýrlandi, en að sögn Hrafnhildar hafa tæplega níu milljónir safnast á rúmum þremur sólarhringum. Þrjá- tíu milljóna króna fjárstuðningur verður sendur til mannúðarað- gerða Rauða hálfmánans og Alþjóða Rauða krossins. „Söfnunin hefur gengið gríðarlega vel og við höfum líka geta nýtt fé frá Mannvinum Rauða krossins, ásamt mjög góðum stuðningi frá utanrík- isráðuneytinu. Við erum virkilega þakklát fyrir stuðninginn.“ n Ástandið er gríðarlega erfitt Nýjustu tölur um fjölda látinna nálgast um 16 þúsund. Fréttablaðið/Getty. kristinnhaukur@frettabladid.is STjÓrnmáL Landsþing Viðreisnar hefst í dag á Reykjavík Natura Hotel og lýkur á morgun. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður f lokksins, segir mikla vinnu hafa átt sér stað fyrir þingið innan málefnanefnda og sprett- hópa. „Fólkið í f lokknum, gras- rótin, ræður nú stefnunni til næstu missera,“ segir hún. „Svo erum við líka að koma saman og hafa svolítið gaman.“ Evrópumálin verða á döfinni en  Þorgerður segir að efnahags- málin verði einnig fyrirferðarmikil. „Stöðugleikinn er ekki til staðar og ríkisstjórnin kyndir bálið með taumlausri útgjaldaþenslu,“ segir hún. „Það eru blikur á lofti, eins og við sjáum til dæmis á vinnu- markaðinum. Því er aumt að sjá að ríkisstjórnin horfist ekki í augu við eigin gjörðir og bendir á alla aðra en sjálfa sig.“ Þorgerður verður ein í framboði til formanns. Að formannskjörinu loknu verður varaformannskosn- ing. Þeirri stöðu gegnir nú Daði Már Kristófersson. Viðreisn ætlar hins vegar að bæta við sig embætti ritara sem verður þá þriðja embættið í forystunni og er ætlað að stækka flokkinn og efla grasrótina. „Við getum kallað hann stækkunarstjóra, eins og stækk- unarstjóra ESB,“ segir Þorgerður. n Fjölga í forystusveit á þingi Viðreisnar Í mörgum löndum OECD lækkaði þetta hlutfall milli áranna 2007 og 2019, þvert á það sem gerðist hér. helgisteinar@frettabladid.is efnahagSmáL Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnað- arins, óttast að stýrivaxtahækkun Seðlabankans muni leiða til sam- dráttar í framkvæmdum og segir að hækkunin muni koma illa við fyrirtæki og almenning í landinu. „Hættan er sú að hærri vextir dragi úr framkvæmdum sem er verulega slæmt mál. Rót verðbólg- unnar sem við glímum nú við og verðhækkanir á fasteignamarkaði eru vegna þess að það var ekki nógu mikið byggt. Það þýðir að ef illa fer þá erum við komin í vítahring sem gerir stöðuna verri.“ Hann segir það mikil vonbrigði að verðbólgan sé þrálátari en Seðla- bankinn áður taldi og að Seðla- bankinn sé í raun að boða aðra vaxtahækkun um leið og vextir eru hækkaðir núna. „Síðasta haust mátti skilja seðla- bankastjóra þannig að síðasta vaxtahækkunin væri komin. Skila- boðin eru þannig misvísandi sem er mjög slæmt vegna þess að í heimi seðlabanka þá skiptir trúverðug- leikinn öllu máli,“ segir Sigurður. Hann segist aftur á móti ekki áhyggjufullur og bendir á að þrátt fyrir samdrátt á fasteignamarkaði hafi hann verið á miklum yfir- snúningi seinustu tvö árin. Þar að auki hafi saga byggingariðnaðarins undanfarna áratugi einkennst af miklum sveiflum, en Sigurður segist fylgjast grannt með þróun mála. n Hækkun vaxta hindrar framkvæmdir Sigurður Hannesson, framkvæmda- stjóri SI Aðeins níu félagslegar íbúðir verið keyptar á þremur árum í Hafnarfirði 6 Fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 10. FeBRúAR 2023 FÖStUDAGUr

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.