Fréttablaðið - 10.02.2023, Qupperneq 12
Þegar ég var í námi, vann ég ýmiss
konar verkamannavinnu á sumrin,
fyrst í Reykjavík, en síðan í Hafnar
firði. Í Reykjavík greiddi ég félags
gjöld í Dagsbrún, en í Hafnarfirði
í Hlíf. Var ekki alveg að skilja af
hverju, hefði ætlað að hagsmunir
verkamanna í Reykjavík og Hafn
arfirði væru þeir sömu og raunar
á landinu öllu. Var ekkert að spá í
þetta frekar, en í núverandi samn
ingalotu má helst skilja að félags
mönnum í einu stéttarfélagi í
Reykjavík beri að fá betri kjör en
þjáningarbræður og systur t.d. á
Akranesi. Kann að vera, hef ekki
forsendur til að sannreyna það. En
forvitni mín var vakin, mig langaði
til að fræðast meira um stéttarfélög
og starfsemi þeirra.
Við lauslega yfirferð telst mér til
að það séu eitthvað á annað hundr
að stéttarfélög á Íslandi, mörg hver
svæðisbundin eins og t.d. verkalýðs
og sjómannafélög. Þannig virðist
ekki vera sama hvort þú ert sjómaður
í Ólafsfirði eða Grindavík, svo dæmi
sé tekið. Semja Ólafsfirðingar betur
fyrir sína félagsmenn en Grindvík
ingar, eða öfugt? Sum félög eru stofn
uð í kringum ákveðið verkefni, t.d.
eins og að aka bíl. Þannig er a.m.k. 3
stéttarfélög bifreiðarstjóra: Frami,
Sleipnir og Átak og svo eru nokkrir
flutningabílstjórar í Eflingu. Sýnist
að þeir sem eru í Sleipni séu aðallega
rútubílstjórar, en leigubílstjórar í
Frama. Allir félagsmenn þessara
félaga með meirapróf, en ökutækið
virðist ráða því í hvaða stéttarfélagi
menn lenda. Velti fyrir mér, í þessu
samhengi, að ef flutningabílstjóri í
Eflingu ákveður að söðla um og fara
að keyra rútu, þarf hann þá að skipta
um stéttarfélag? Hvað ef hann keyrir
rútu á daginn og leigubíl á kvöldin?
Hjó líka eftir því að það er til Félag
íslenskra leikara og Félag leikstjóra
á Íslandi. Ef leikstjóri leikur jafn
framt í verkinu sem hann leikstýrir,
er hann þá í tveimur stéttarfélögum?
Væntanlega ekki, hér ríkir jú félaga
frelsi, eða hvað?
Mörg stéttarfélög hafa kosið
að mynda samband, sbr. Starfs
greinasambandið (19 félög), Raf
iðnaðarsamband Íslands (8 félög),
Landssamband íslenskra verslunar
Stéttarfélög
Virk þátttaka Íslands í alþjóðasam
starfi er mikilvæg og þar er til mikils
að vinna. Við tökum þar þátt í að
leysa alþjóðleg úrlausnarefni sem
krefjast alþjóðlegrar samvinnu. Og
þar getum við látið gott af okkur
leiða með því að liðsinna í málum
sem við höfum sérþekkingu á. Auk
þess nýtist þátttakan til stuðnings
íslenskum útflutningi.
Aðild Íslands að EFTA (Fríversl
unarsamtökum Evrópu) er vett
vangur þar sem mikilvægt er að
við leggjum okkar af mörkum.
Frá stofnun hafa samtökin gert 29
fríverslunarsamninga við 40 ríki
utan ESB. Þingmannanefnd EFTA
fundaði í vikunni í Brussel og Genf
og sóttu fjórir alþingismenn fund
inn. Á fundinum fóru nefndar
menn frá Íslandi, Liechtenstein,
Noregi og Sviss yfir starfsemi EFTA
og stöðu og þróun fríverslunar
samninga og alþjóðaviðskipta í
víðu samhengi.
Áskoranir í alþjóðlegu samstarfi
um utanríkisviðskipti eru marg
víslegar um þessar mundir og fara
Saman á útivelli
Diljá Mist
Einarsdóttir
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins og
situr í þingmanna-
nefnd EFTA
síst minnkandi. Þar má nefna afleið
ingar innrásar Rússlands í Úkraínu,
hækkandi orku og matvælaverð,
alþjóðlega verðbólgu og viðbrögð
seðlabanka, sem sé með hækkun
stýrivaxta. Að auki hefur heims
faraldur og aðgerðir vegna hans,
einkum í Kína, enn áhrif á aðfanga
keðjuna. Þessi viðfangsefni hafa
opnað augu Evrópubúa fyrir stöðu
frumframleiðslu innan álfunnar,
eða öllu heldur skorti á henni, þótt
ekki séu allir sammála um hvort eða
hvernig bregðast eigi við.
Þegar fulltrúar Íslands taka þátt
í alþjóðasamstarfi er markmiðið
auðvitað að standa vörð um hags
muni lands og þjóðar. Það er því
mikilvægt fyrir okkur sem störfum
á vettvangi stjórnmálanna, oft á
tíðum á öndverðum meiði, að snúa
þar bökum saman. Við ættum að
skilja innanlandsdeilur og pólit
ískar þrætur eftir heima fyrir og
vinna saman sem eitt lið á útivelli.
Það mættu f leiri útverðir í hags
munagæslu fyrir Íslands hönd hafa
í huga. n
manna (3 félög), Samiðn, samband
iðnfélaga (6 félög) og Sjómannasam
band Íslands (3 félög). Ekki rugla
Sjómannasambandinu saman við
Sjómannafélag Íslands! Og öll sam
böndin hafa samningsrétt fyrir sín
aðildarfélög, ef ég skil þetta rétt, en
samt eru aðildarfélögin ekki bund
in af því, sbr. Ef lingu í núverandi
samningalotu, og mörg stéttarfélög
kjósa að starfa utan sambanda. Öll
þessi sambönd eru svo aðilar að
yfirsambandi, Alþýðusambandi
Íslands, auk 5 félaga utan sambanda,
e.k. sambandi sambandanna. Ég get
ómögulega áttað mig á því hvað er
unnið með því, nema ef vera skyldi
aðgangur að hagfræðingi og verð
lagseftirliti? Sumir verkalýðsforkólf
ar hafa líka verið að velta þessu fyrir
sér, ef marka má fréttir. ASÍ hefur
jú ekkert samningsumboð, en þar
vinna 22 starfsmenn við „fjölbreytt
verkefni og margháttaða þjónustu“.
Forystumaður ASÍ kallast forseti, en
örvæntið ekki þótt hann forfallist,
því ASÍ er með 3 varaforseta!
Og þau eru fleiri samböndin, t.d.
Bandalag háskólamanna (á ekki að
breyta nafninu í Bandalag háskóla
manneskja í samræmi við tíðarand
ann?). Það eru 27 stéttarfélög aðilar
að BHM. Það vekur athygli að þar
eru fjögur félög háskólakennara:
Félag akademískra starfsmanna
við Háskólann í Reykjavík, Félag
háskólakennara (við HÍ), Félag
háskólakennara á Akureyri og
Félag prófessora við ríkisháskóla. Í
hvaða félagi ætli kennarar á Bifröst
og Hólum séu? Fræðagarði, stéttar
félagi háskólamenntaðra óháð
starfsvettvangi eða sérhæfingu? Ég
er ekki að plata, þetta stéttarfélag
er til. Að öllu gamni slepptu, er ekki
hægt að sameina þessi félög? Skil
s.s. að prófessor vilji hærri laun en
dósent eða lektor, en eru ekki verk
stjórar með hærri laun en verka
menn, sem undir þá heyra, en samt
í sama stéttarfélagi?
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja er svo eitt sambandið enn.
Það rúmar 20 aðildarfélög. Þar vekja
m.a. athygli 3 félög starfsmanna
í almannaþjónustu: FOSS, Kjölur
og Sameyki. Hvað er málið? Eru
ekki lögreglu og slökkviliðsmenn
í almannaþjónustu? En þeir eru í
sitt hvoru stéttarfélaginu. Bíðum
við, svo er þar Félag starfsmanna
Stjórnarráðsins, en innan BHM er
Félag háskólamenntaðra starfs
manna Stjórnarráðsins. Metum
menntun til launa og allt það, en
þurfa starfsmenn Stjórnarráðsins
virkilega að vera í tveimur stéttar
félögum? Og þá eru ótalin öll félög
opinberra starfsmanna, nánast í
öllum landshlutum, og félög starfs
manna sveitarfélaganna. Og svo er
félagið sem ég giska á að allir laun
þegar vildu vera í, Samband lífeyris
þega ríkis og bæja.
Og ekki má gleyma Kennarasam
bandi Íslands með 4 aðildarfélög.
Allir kennarar eru háskólamennt
aðir. Ef félög þeirra vilja vera í sam
bandi, af hverju ekki BHM? Hjá KSÍ
vinna ríflega 30 manns fyrir 4 félög,
en bara 24 hjá BHM fyrir 27 félög.
Að lokum eru hér svo nokkur
félög til viðbótar, sem ég nennti
ekki að kanna nánar: Félag hár
snyrtisveina, Félag íslenskra fótaað
gerðafræðinga, Félag lykilmanna
(stéttarfélag stjórnenda og sér
fræðinga), Berg (félag stjórnenda á
Norðurlandi eystra), Brú (félag
stjórnenda), Félag íslenskra síma
manna og Póstmannafélag Íslands.
Velti óneitanlega fyrir mér, hvort
félög sem kenna sig við Ísland eða
íslenskt ríkisfang séu opin nýbúum?
Fær pólskur símamaður t.d. aðild að
Félagi íslenskra símamanna? Hvað
er símamaður?
Öll þessi félög eru með starfs
menn á skrifstofu, framkvæmda
stjóra og/eða formann, stjórn,
ráð og nefndir, að maður tali nú
ekki um aðstöðu og starfs
mannahald sambandanna.
Væri ekki ráð að hagræða,
sameina þau félög, sem eru að
berjast á sama vettvangi? Sameina
kraftana. Yfirbyggingin minnkar og
félagsmönnum fjölgar. Fleiri félags
menn og minna umfang, því lægri
félagsgjöld. Það ætti að kæta félags
menn. En hvað eiga forystu og
starfsmenn allra þessara félaga og
sambanda að taka sér fyrir hendur,
ef farið væri í sameiningar? Það er
nú það.
Nú segja sjálfsagt einhverjir að
mér vær nær að halda kjafti. Ég hafi
ekkert vit á kjarabaráttu og hags
munir félagsmanna í öllum þessum
stéttarfélögum séu svo mismunandi
að þeir rúmist alls ekki í samskonar
félögum í öðrum landshlutum,
hvað þá innan höfuðborgarsvæðis
ins. Kann að vera, en þá má á móti
benda á að mörg stéttarfélög starfa
á landsvísu og að Ef ling varð til
við sameiningu sex stéttarfélaga,
svo dæmi séu tekin. Reyndar var
ég stærstan hluta minnar starfs
ævi utan stéttarfélags og plumaði
mig ágætlega. Ég var sjálfstæður
atvinnurekandi lengst af, sk. auð
vald, og var með 10 manns í vinnu,
þegar best lét. Þessir 10 starfs
menn voru í fimm stéttarfélögum,
svo kjarabarátta er mér ekki alveg
ókunnug. n
Dr. Ari
Sæmundsen
líffræðingur
12 skoðun FRÉTTABLAÐIÐ 10. FeBRúAR 2023
FÖsTuDAGuR