Fréttablaðið - 10.02.2023, Page 27
Það er byrjað að gerast
að vinnustaðir eru
byrjaðir að panta sér
hópeflisferðir á þetta,
sem er svolítið
skemmtilegt.
Þóra Karítas Árnadóttir
Kvikmyndahátíðin
Stockfish Film Festival
& Industry Days verður
haldin í níunda sinn
23. mars til 2. apríl.
Leikkonurnar Þórunn Lárus-
dóttir og Íris Tanja Flygenring
takast á sem yfirmaður og
undirmaður í leikritinu Sam-
drættir í Tjarnarbíói.
Leikkonan Þóra Karítas Árnadóttir
þreytir frumraun sína sem leik-
stjóri með leikritinu Samdrættir
sem frumsýnt er í Tjarnarbíói í dag,
10. febrúar. Verkið er skrifað af einu
þekktasta leikskáldi og handrits-
höfundi Bretlands, Mike Bartlett, og
í aðalhlutverkum eru leikkonurnar
Þórunn Lárusdóttir og Íris Tanja
Flygenring.
„Þetta er mjög sérstakt verk, það
er svolítið háðskt í rauninni. Það
er verið að pota í ýmsa þætti sam-
félagsins og þetta er sett inn í sam-
hengi fyrirtækjamenningar. Það er
verið að nota fyrirtækjaorðaforða
sem við könnumst öll við, árangur,
þægindi og svoleiðis,“ segir Þóra.
Fara óhefðbundna leið
Verkið gerist á vinnustað þar sem
gilda strangar reglur um að starfs-
menn megi ekki eiga í kynferðisleg-
um eða rómantískum samböndum
sín á milli án þess að láta yfirmenn
sína vita. Þegar skrifstofukonan
Emma verður ástfangin af sam-
starfsmanni sínum Darren sakar
yfirmaður hennar hana um brot á
starfsmannareglum og kallar hana
á fund sinn.
„Ég myndi segja að þetta væri að
einhverju leyti um valdamisnotkun
en þetta er í rauninni svolítið eins
og málverk. Þetta er marglaga verk
sem er svolítið túlkandans að setja
í samhengi,“ segir Þóra.
Verkið var upphaflega sett upp í
Royal Court-leikhúsinu í London í
óhefðbundnu rými til að líkja eftir
skrifstofu.
„Við förum pínu óhefðbundna
leið að þessu, erum með skrifstofu-
stóla og bjóðum áhorfendum að
vera inni í sameiginlegu vinnu-
rými á þessum vinnustað í salnum
í Tjarnarbíói. Það eru allir á sviðinu,
líka áhorfendur.“
Að sögn Þóru myndast mjög náin
stemning með því að hafa áhorfend-
ur á sviðinu með leikurunum sem
getur þó orðið allt að því óþægileg.
Misbeiting valds
Verkið fjallar um eitraða vinnu-
staðamenningu og að sögn Þóru
fékk það nýtt samhengi eftir
MeToo-byltinguna sem skók leik-
listarheiminn f y rir nok k r um
árum. Yfirmaðurinn, sem Þórunn
Lárusdóttir leikur, stjórnar vinnu-
staðnum harðri hendi.
„Það er regla að þú mátt ekki eiga í
rómantísku eða kynferðislegu sam-
Fyndið og óþægilegt verk
um eitraða vinnustaðamenningu
Þóra Karítas
Árnadóttir, leik-
stjóri verksins,
ásamt Þórunni
Lárusdóttur
leikkonu. Fyrir
aftan þær glittir
í andlit Írisar
Tönju leikkonu á
plakati.
Fréttablaðið/
Valli
bandi við vinnufélaga og ef það ger-
ist þá ber þér skylda til að tilkynna
það. Svo þegar Emma, starfsmaður-
inn á skrifstofunni, tilkynnir að það
sé staðan, þá byrjar bara að rúlla
endalaus vitleysa og vandræði sem
yfirmaðurinn setur reglurnar um
hvernig hún leysir úr, hvað það þýði
að hún sé búin að brjóta þessa reglu.
Emma heldur að hún sé laus bara
með því að tilkynna það og segja að
þetta sé staðan en þá bregður yfir-
maðurinn á alls kyns ráð. Þau eru
f lutt sitt á hvorn vinnustaðinn og
Emma heldur að það sé nóg en svo
verður hún ólétt og þessi yfirkona
heldur bara endalaust áfram að mis-
beita valdi sínu,“ segir Þóra.
Að sögn Þóru er um að ræða
ádeilu á vinnualkamenningu og
metorðagirni nútímasamfélagsins
þar sem fólk hugsar ekki um annað
en vinnuna.
„Hún er vélræn þessi yfirkona
og það er kannski ádeila á það að
vélmennin séu að taka yfir ýmis-
legt sem við erum að gera. Þá fyrir
vikið víkur þetta manneskjulega og
hlýja. Svo eru alls kyns aðrir punkt-
ar í þessu. Þegar fólk er að ganga í
gegnum erfiðleika í einkalífinu og
á þá helst bara að drífa sig í vinnuna
og halda áfram. Hvað verður um
börnin í þessu samfélagi þar sem
allir eru bara að hugsa um ferilinn?
Hvað verður um fjölskyldulífið og
einkalífið? Er það bara í þriðja eða
tíunda sæti og ferillinn í fyrsta til
tíunda sæti?“
Fullkomin sýning fyrir fyrirtæki
Þóra segir verkið eiga sér margar
samsvaranir í okkar samfélagi og
hvetur hún fyrirtæki til að gera sér
ferð með starfsfólkið til að sjá sýn-
inguna í Tjarnarbíói.
„Ég er eiginlega bara að vonast til
þess og það er byrjað að gerast að
vinnustaðir eru byrjaðir að panta
sér hópef lisferðir á þetta, sem er
svolítið skemmtilegt. Það eru 40
sæti á sýningu, vanalega eru 180
sæti í Tjarnarbíói, en það eru bara
40 sæti og þess vegna sýnum við
tvær sýningar á kvöldi. Þá getur í
rauninni stór vinnustaður bara átt
sýninguna, þannig að þetta er svo-
lítið eins og að fara í hópeflishelgi.
Þetta er algjörlega verk til að flissa
yfir en er líka óþægilegt. Maður veit
ekki hvort maður eigi að hlæja en
stundum hlær maður af því þetta er
bara of fáránlegt þegar þetta er sett í
svona ýkt samhengi,“ segir hún.
Þá segir hún samstarfið við þær
Þórunni og Írisi Tönju hafa verið
einkar gjöfult.
„Leikkonurnar eru að standa
sig mjög vel og það er búið að vera
ógeðslega gaman hjá okkur í þessu
ferli,“ segir Þóra og bætir því við að
ljós og hljóð sýningarinnar myndi
einnig sterka heild en Valgeir Sig-
urðsson sér um tónlist og Ólafur
Ágúst Stefánsson sér um lýsingu. n
tsh@frettabladid.is
Stockfisk-kvikmyndahátíðin óskar
eftir innsendum tillögum að verk-
um í vinnslu fyrir svokallaða Stock-
fish Industry Days.
Í tilkynningu frá Stockfish segir:
„Með þátttöku gefst aðstand-
endum kvikmyndaverka sem ekki
eru tilbúin til sýningar einstakt
tækifæri til að kynna verkefnin sín
fyrir innlendum og erlendum fjöl-
miðlum, framleiðendum sem og
öðrum áhugasömum.“
Þá kemur fram að verkefnin sem
verði fyrir valinu geti átt þess kost
að fá aukna dreifingar- og kynn-
ingarmöguleika bæði hérlendis sem
og erlendis.
Þeir sem verða valdir til þátttöku
munu sýna 3 til 7 mínútna mynd-
brot úr verkum sínum og taka við
spurningum úr sal um verk sín að
því loknu.
Að sögn Stockfish hefur mikill
áhugi myndast fyrir viðburðinum
undanfarin ár hjá erlendum blaða-
mönnum og listrænum stjórn-
endum annarra kvikmyndahátíða.
Þá er tekið fram að þetta sé kjörinn
vettvangur fyrir kvikmyndagerðar-
fólk víða að til að hittast og skapa
tengsl.
Opnað var fyrir innsendar til-
lögur 8. febrúar og er hægt að senda
inn verk til og með 1. mars á heima-
síðu Stockfish.
Kvikmyndahátíðin Stockfish
Film Festival & Industry Days verð-
ur haldin í níunda sinn 23. mars til
2. apríl. Um er að ræða kvikmynda-
og ráðstefnuhátíð fagfólks í kvik-
myndabransanum sem er haldin
árlega í Bíó Paradís í samvinnu við
íslensk fagfélög í kvikmyndaiðnað-
inum. n
Stockfish kalla
eftir verkum
Frá Stockfish-kvikmyndahátíðinni
árið 2020. Fréttablaðið/Valli
Með Inga Bjarna leikur skandinavískur kvintett skipaður tónlistarmönnum
sem hann kynntist í meistaranámi í Svíþjóð. Mynd/Kristian Millstein
tsh@frettabladid.is
Djasspíanistinn Ingi Bjarni Skúla-
son sendir í dag frá sér plötuna Far-
fuglar með nýjum frumsömdum
tónsmíðum. Með Inga á plötunni
leikur skandinavískur kvintett sem
spilaði einnig með Inga á plötunni
Tenging sem kom út 2019 og var til-
nefnd til fimm verðlauna á Íslensku
tónlistarverðlaununum 2020.
Titill nýju plötunnar, Farfuglar,
vísar bæði í ferðalag tónlistarmann-
anna fimm og í eiginlega farfugla.
„Það er vísun í að við erum fjöl-
þjóðlegur kvintett og líka að maður
getur einhvern veginn ferðast í
gegnum músíkina. Þó það sé langt
á milli þá getur maður samein-
ast í músíkinni og farið í ferðalag.
Titillagið samdi ég þegar ég heyrði
í fuglum úti í garði og spilaði með
þeim, það varð kveikjan að þessu,“
segir Ingi.
Með Inga spila á plötunni norski
trompetleikarinn Jakob Eri Myhre,
eistneski gítarleikarinn Merje Kägu,
sænski bassaleikarinn Daniel And-
ersson og norski trommarinn Tore
Ljøkelsøy.
„Ég var í mastersnámi í Svíþjóð og
þá kynntist ég þeim. Þetta er bandið
sem ég spilaði með á útskriftartón-
leikunum mínum,“ segir hann.
Platan var tekin upp í Þýskalandi
haustið 2021 og er gefin út á vegum
NXN Recordings sem er undirforlag
hinnar virtu þýsku útgáfu Naxos.
„Það stóð til að taka upp plötuna
2020 en það var bara mjög erfitt út
af Covid. Við vorum svo að túra í
Þýskalandi 2021 og þá var ákveðið
í kjölfarið að taka upp í Þýskalandi
beint eftir túrinn,“ segir Ingi.
Ingi Bjarni gerðist sjálfur farfugl
nýlega og skellti sér til Kúbu.
„Ég fór á námskeið í kúbanskri
tónlist og það var bara mjög gaman.
Áhugavert að koma líka til þessa
lands þar sem fólk er kannski bara
með 20 til 30 dollara í meðallaun á
mánuði. Það var líka mjög áhuga-
vert að fara í þessa tíma, maður þarf
náttúrlega að vinna aðeins úr þessu
núna, maður er ekkert orðinn ein-
hver Salsa-Bjarni strax,“ segir Ingi.
Farfuglar kemur út á geisladiski
auk þess sem hún er fáanleg á öllum
helstu streymisveitum frá og með
deginum í dag. n
Farfuglar himins og huga
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
Fréttablaðið menning 1910. Febrúar 2023
FÖSTUDAgUR