Fréttablaðið - 10.02.2023, Side 30
Í byrjun
hélt ég að
maður
kæmist
kannski
áfram
svona einu
sinni,
tvisvar og
ætlaði bara
að sjá til
hvað
myndi
gerast.
Saga
Ég ákvað
bara að
prufa að
sækja um
og vissi
ekkert við
hverju ég
ætti að
búast.
Kjalar
Í HELGARBLAÐINU
Þetta hefur
verið hark
Vivian Didriksen Ólafsdóttir fer
mikinn á hvíta tjaldinu þessa dag-
ana í aðalhlutverki í Napóleóns-
skjölunum sem byggð er á sam-
nefndri bók Arnaldar Indriðasonar.
Vivian fór ekki hefðbundna leið að
markmiðinu enda einstæð fjögurra
barna móðir sem stendur á fertugu
þegar stóra tækifærið kemur.
Mikilvægt að
staldra við
Vestmannaeyingurinn Unnar Gísli
Sigurmundsson, betur þekktur sem
Júníus Meyvant, var kominn um
þrítugt þegar fyrsta lag hans sló í
gegn. Hann segist þakklátur fyrir
að starfa við tónlistina í dag en
þó sé enginn botn á græðginni og
markmiðin séu alltaf sett hærra.
Kyn þátttakenda ekki
það sem skipti máli
Nóam Óli varð í fyrra fyrsta trans manneskjan til að
keppa fyrir Íslands hönd á alþjóðlegu íþróttamóti.
Hann segist helst fá hrós frekar en fordóma og segir
umræðu um þátttökurétt trans fólks oft þröngsýna.
Ný Idolstjarna Íslands verður
krýnd í kvöld þegar stjörnu-
leit Stöðvar 2 lýkur með
úrslitakeppni milli þeirra
tveggja sem eftir standa; Sögu
Matthildar og Kjalars. Bæði
eru þau komin mun lengra en
þau sáu fyrir sér og eru sérlega
ánægð með að valið skuli að
lokum standa milli þeirra.
toti@frettabladid.is
Stjörnuleit Stöðvar 2 lýkur í kvöld
þegar Saga Matthildur Árnadóttir
og Kjalar Martinsson Kollmar
keppa til úrslita í Idolinu. Þau segj-
ast bæði vera í góðum fíling og full
eftirvæntingar.
Stjörnuleit lýkur með vingjarnlegu einvígi
Sögu og Kjalars
„Ég get ekki beðið,“ segir Kjalar og
bætir aðspurður við að hann hafi
alls ekki séð fyrir sér að hann myndi
ná þetta langt. Hann hafi ekki einu
sinni búist við því að komast í beinu
útsendingarnar.
„Ég ákvað bara að prufa að sækja
um og vissi ekkert við hverju ég ætti
að búast og svo bara komst maður
einhvern veginn alltaf áfram. En ég
er ógeðslega ánægður með að vera
kominn svona langt og sérstaklega
með Sögu líka. Mér finnst frábært
að hafa hana með mér í úrslitunum.“
Fjör á æfingum
Saga Matthildur er á svipuðum
nótum. „Bara rosa spennt og þreytt.
Maður er bara að njóta,“ segir hún
og hlær en hún gengur með laumu-
keppanda sem er orðinn það
umfangsmikill að hún hefur þurft
að leggja gítarinn frá sér í bili.
„Ég á ekki að eiga fyrr en í maí
og hef ekki fundið fyrir barninu í
útsendingu en á æfingum er þetta
stundum svolítið bras. Svona: „Get-
urðu aðeins tjillað hérna?“ Það var
ekki draumurinn að þetta yrði sam-
ferða en fyrst þetta er svona þá bara
erum við að njóta.“
Góðir vinir
Rétt eins og Kjalar segist Saga Matt-
hildur ekki hafa búist við að komast
alla leið í úrslitin. „Ég get nú ekki
sagt það og svona í byrjun hélt ég
að maður kæmist kannski áfram
svona einu sinni, tvisvar og ætlaði
bara að sjá til hvað myndi gerast. Og
svo bara fór ég ekkert heim.“
Saga Matthildur tekur loka-
andstæðingi sínum einn-
ig fagnandi og ljóst að
enginn rígur er
milli þessara
keppinaut a .
„Við urðum
s vo gó ði r
vinir í gegn-
u m þ e t t a
ferli, sérstak-
lega þessi átta
sem komust í beinu útsendingarnar,
þannig að það varð þannig lagað
aldrei einhver svona samkeppni.
Ég er löngu orðin sátt við minn
árangur og Kjalar er náttúrlega bara
sjúklega góður tónlistarmaður og ég
er ánægð alveg sama á hvorn veginn
þetta fer.“
Allt að gerast
Það er ekki nóg með að Kjalar keppi
nú til úrslita í Idolinu þar sem hann
mun einnig blanda sér í Söngva-
keppnina 2023 á næstu vikum
ásamt tónlistarkonunni og lagahöf-
undinum Silju Rós sem fékk hann til
þess að syngja framlag hennar með
sér.
„Það var bara örugglega viku
eftir síðustu prufurnar í Idolinu og
ég fékk að vita að ég hefði komist
áfram í beinu útsendingarnar sem
Silja hefur samband við mig og
býður mér að koma með. Þann-
ig að þetta alveg kom mér mjög á
óvart vegna þess að ég sendi ekki
einu sinni lag í keppnina. En mjög
gaman. Ég segi ekki nei við Söngva-
keppninni.“
Þannig að sama hvernig fer þá er
ljóst að árið 2023 ætlar svolítið að
verða árið þitt í þessum efnum?
„Já, allavegana fram í mars,“ segir
Kjalar og hlær.
Britney og Iris
Saga og Kjalar syngja þrjú lög, hvort
um sig, fyrir framan dómnefndina
og áhorfendur, en þeim var meðal
annars uppálagt að velja lag frá
fæðingarári sínu. „Ég syng Hit Me
Baby One More Time, með Britney
Spears, frá 1999,“ segir Kjalar.
„Það er aðeins öðruvísi en ég
hef gert hingað til en ég er ógeðs-
lega spenntur yfir því. Þetta er svo
skemmtilegt lag og það hafa bara
allir einhvern veginn gaman af
því. Og líka bara gaman að prufa
aðeins þennan popp-
stjörnukarakter með
þessu lagi,“ segir
Kjalar. „Ég mun
syngja Iris með Goo Goo Dolls,“
segir Saga sem hafði úr lögum frá
1998 að velja.
Syngja sama lagið
Þau fengu einnig að velja sér eitt lag
alveg að eigin vali og þar segist Saga
hafa ákveðið að fara langt aftur í
tímann með A Change Is Gonna
Come, eftir Sam Cooke. Kjalar ætlar
hins vegar að vera á Háa C með
uppáhalds hljómsveitinni sinni,
Moses Hightower.
„Svo syngjum við Saga bæði, sitt
í hvoru lagi, lag sem var samið fyrir
keppnina og úrslitakeppendurna
sem myndu flytja það og gera svona
aðeins að sínu. Þannig að þetta verð-
ur í mismunandi útgáfum hjá okkur.
En sama lagið,“ segir Kjalar. n
22 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 10. FeBRúAR 2023
fÖSTUDAGUR