Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 38
Við bjóðum einnig
upp á Unaðsvernd
Hermosa sem þýðir að ef
þér líkar ekki tæki sem
þú keyptir hjá okkur, þá
getur þú skilað því innan
30 daga og skipt í aðra
sambærilega vöru.
Þröstur Marel Valsson
Heimakynningar
eru sniðnar að
hverjum hópi fyrir sig,
en við erum mikið að
heimsækja vinkonu- og
vinahópa, vinnustaða-
hópa, gæsapartí og
steggjapartí.
María Dís Gunnarsdóttir
Við höfum
oft tekið
eftir því að
fólk er að
velta fyrir
sér hvernig
best sé að
opna á
umræðuna
um að
bæta
kynlífs-
tækjum
inn í sam-
bandið.
Gott úrval af unaðsvörum
og framúrskarandi þjónusta
einkennir vefverslunina
Hermosa.is. Heimakynn-
ingar Hermosa eru mjög
vinsælar og í febrúarmánuði
fylgir frítt sett af undirfötum
að eigin vali með öllum
pöntunum.
Hermosa.is er vefverslun sem sér-
hæfir sig ekki bara í sölu á unaðs-
vörum heldur einnig framúrskar-
andi þjónustu til viðskiptavina. „Á
þessum flotta samkeppnismarkaði
kynlífsleikfanga í dag skiptir
það okkur miklu máli að okkar
viðskiptavinir séu ánægðir með
vörur og þjónustu, að þeir tali vel
um okkur og velji að versla hjá
okkur aftur og aftur,“ segir María
Dís Gunnarsdóttir, annar eigenda
Hermosa, en hún og Þröstur Marel
Valsson keyptu fyrirtækið í lok
sumars 2022.
Þau segja Hermosa.is bjóða sem
dæmi upp á 30 daga skilafrest
á öllum vörum. „Svo gerum við
einnig enn betur en aðrir,“ bætir
Þröstur við. „Því við bjóðum einnig
upp á Unaðsvernd Hermosa sem
þýðir að ef þér líkar ekki tæki sem
þú keyptir hjá okkur, þá getur þú
skilað því innan 30 daga og skipt í
aðra sambærilega vöru.“
Geggjað kynningartilboð í
febrúar
Þau segjast velja vörurnar sínar af
kostgæfni. „Við bjóðum eingöngu
upp á tæki sem eru að fá góðar
umsagnir og reynast vel. Það
er okkur mikilvægt að fólk geti
prófað og fundið tæki sem hentar
án mikillar áhættu eða gríðarlegs
kostnaðar.“
Sogtækin hafa lengi verið mest
selda kynlífstækið hjá Hermosa
en múffurnar hafa verið að sækja
mikið í sig veðrið og segir María
gaman að sjá aukningu í sölu á
þeim. „Síðan tókum við inn undir-
föt í sölu fyrir skömmu sem hafa
vakið mikla lukku. Við erum með
geggjað kynningartilboð á þeim
einmitt núna en það fylgir frítt sett
af undirfötum að eigin vali með
pöntunum í febrúar.“
Kynningar mjög vinsælar
Heimakynningar og kynningar á
stærri viðburðum eins og konu-
kvöldum er stór hluti af starfsemi
Hermosa. „Við erum reglulega
bókuð á slíka viðburði við mikinn
fögnuð viðstaddra. Heimakynn-
ingar eru sniðnar að hverjum hópi
fyrir sig, en við erum mikið að
heimsækja vinkonu- og vinahópa,
vinnustaðahópa, gæsapartí og
steggjapartí. Um þessar mundir er
til dæmis skipulagning á gæsa- og
steggjapartíum að fara á fullt og
því gott að hafa í huga að bóka
okkur tímanlega,“ segir María
en best er að senda henni póst á
netfangið maria@hermosa.is. „Við
mætum frítt í slíkar kynningar á
svæðinu Akranesi og Borgarnesi,
Reykjanesi, Selfoss, Hveragerði,
Þorlákshöfn og öllu stórhöfuð-
borgarsvæðinu og erum alltaf til í
að skoða þann möguleika að mæta
í heimsókn út fyrir okkar hefð-
bundna svæði,“ bætir Þröstur við.
Traust skiptir miklu máli
Að þeirra sögn skapast oft frábær
umræða milli viðstaddra á svona
kynningum og stemningin er
alltaf mjög góð. „Við höfum oft
tekið eftir því að fólk er að velta
fyrir sér hvernig best sé að opna
á umræðuna um að bæta kynlífs-
tækjum inn í sambandið. Margir
virðast vera óhræddir við að nýta
sér kynlífstæki í einleiknum en
eiga erfiðara með að bæta þeim
inn í samleik með öðrum, en það
getur einmitt gert nándina mun
meiri, aukið traustið og styrkt
sambandið að fá að kynnast betur
því sem makinn eða mótleikarinn
fílar og upplifa nýja hluti saman í
kynlífinu,“ segir María.
Þau segja það vera hollt öllum
samböndum, hvort sem það eru
ný eða eldri sambönd, fríðinda-
sambönd, hjónabönd eða hvað
eina, að opna á samtalið um þessa
hluti. Báðir aðilar þurfa að vera
óhræddir við að ræða saman og
deila fantasíum og löngunum með
hvor öðrum. „Þá er mikilvægt að
passa vel upp á það að dæma ekki
hvort annað og skapa umhverfi þar
sem fullkomið traust getur ríkt,“
segir Þröstur.
Góð kvöldstund mikils virði
Þá er til dæmis upplagt að taka
góða kvöldstund yfir kertaljósum
og rauðvínsglasi, skoða saman
vefverslunina Hermosa.is og ræða
mismunandi unaðsvörur, hvernig
þær eru notaðar og hvort það sé
eitthvað sem heilli. „Flestir, sem
fikra sig áfram í að bæta unaðs-
vörum inn í samleikinn, gefa sér
tíma til að kynnast löngunum og
þrám hvort annars á forvitinn og
fordómalausan máta, upplifa að
kynlífið verður spennuþrungnara
og meiri unaður heldur en „bara“
kynlíf,“ segja þau að lokum.
Nánari upplýsingar á hermosa.is.
Gott úrval unaðsvara við allra hæfi
María Dís
Gunnarsdóttir
og Þröstur
Marel Valsson
eru eigendur
Hermosa . is
en þau keyptu
verslunina í lok
sumars 2022.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Tenga flip orb
múffa, Satis-
fyer Mono Flex
titrari, Satis-
fyer Endless
Fun paratæki,
Satisfyer High
Fly fingratitrari
og Satisfyer
Lovw Triangle
sogtæki.
Þrjár tegundir af Satisfyer sleipiefnum. Fremst er Satisfyer Dual Love sog-
tæki, Fun Factory Bootie butt plug og Satisfyer Sexy secret nærbuxnatitrari.
6 kynningarblað 18. febrúar 2023 LAUGARDAGURunaðsvörur