Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 6
Íslensk stjórnvöld kusu árið 2012 að mótmæla ekki þegar losunar- gjöld í ETS voru fyrst tekin upp. Við setjum samband við samstarfsþjóðir okkar innan EES, Norðmenn og Sviss, líka í uppnám ef við beitum neitunarvald- inu. Jón Steindór Valdimarsson, formaður Evr- ópuhreyfingar- innar Vænta má fækkunar farþega í samræmi við markmið ESB um aðgerðir gegn losun. Íslensk stjórnvöld létu hjá líða að mótmæla álögum árið 2012. bth@frettabladid.is NeyteNdur Hærri kostnaður flug- félaga vegna hækkandi kolefnis- skatts af losun mun ekki aðeins leiða til vendinga í samkeppni í f lugrekstri heldur gæti tími lágra fargjalda í f lugi verið liðinn. Þetta er mat erlendra  f lugrek- enda sem hafa tjáð sig um hækkun gjalda vegna losunar frá flugi. Fréttablaðið hefur fjallað um að hrun gæti blasað við í f lugumferð um Keflavík ef Ísland fær ekki ríku- legar undanþágur frá losunargjöld- um. ESB er að breyta reglum. Los- unarskattar vegna flugs yfir Evrópu munu að líkindum hækka verulega. Áhrif breytinganna gætu orðið margvísleg á efnahag Íslendinga. Ein sviðsmyndin er að Kef lavík víki sem viðkomustaður í flugi milli Bandaríkjanna og Evrópu. ESB vill með aðgerðum sínum þvinga kol- efnisfrekan iðnað til að borga meira fyrir mengun. Financial Times spáir að fyrstu á h r i f b r e y t i n g a n n a g æ t u orðið  1.500-2.000 krónur sem my ndu bæta ofan á kostnað við hvert f lug.  Spurn eftir f lugi gæti  orðið minni í samræmi við markmið breytinganna hjá ESB. Financial Times hefur eftir Mic- hael O'Leary, forstjóra Ryanair, að tími „fáránlegra lágra“ fargjalda sé liðinn. Forstjórar stóru íslensku f lug- félaganna sögðu í Fréttablaðinu í gær að breytingarnar muni að óbreyttu bitna mjög illa á Íslandi. Tengif lug og millilendingar eru stór þáttur í rekstri  Icelandair og Play og halda í raun að nokkru uppi íslenskri ferðaþjónustu. Hvorki liggur nákvæmlega fyrir hvenær má vænta þess að samstaða náist um breytingarnar né hve mikið losunargjöldin muni hækka. Íslensk stjórnvöld kusu árið 2012 að mótmæla ekki þegar los- unargjöld í ETS voru fyrst tekin upp. Malta og Kýpur náðu þá ávinningi með því að vísa til sambærilegra raka og Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra og félagar í ríkis- stjórninni flagga nú. Sva nd ís Svava r sdót t ir va r umhver f isráðher ra á þessum tíma. Svandís segist ekki geta svar- að því án frekari athugunar hvaða samskipti hafi orðið milli hennar og ESB þegar losun flugs var komið á í alþjóðlegu kerfi. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, vill ekki tjá sig að sinni um hvort íslensk stjórnvöld hafi verið andvaralaus með því að leita ekki  eftir undanþágum árið 2012. „Ég held að á þessum tíma hafi engan grunað að f lug myndi falla undir ETS í jafn miklum mæli og nú er að verða. Fókusinn áður var algjörlega á hagsmuni stóriðjunnar,“ segir Árni Finnsson, formaður Nátt- úruverndarsamtaka Íslands. Bandaríkin og Kína neituðu að ganga inn í losunargjaldakerfið á sínum tíma. Horfir í mikinn rekstr- arlegan aðstöðumun  milli f lug- félaga. Sum félög munu menga án gjalds og hraða með því  hnatt- rænum loftslagsbreytingum og ógn af þeirra völdum. Önnur f lugfélög verða skylduð til að sæta ábyrgð vegna eigin mengunar. n Tími hræódýrra fargjalda í flugi verði senn úr sögunni bth@frettabladid.is StjórNmál Jón Steindór Valdi- marsson, formaður Evrópuhreyf- ingarinnar, segir að deila Íslands við ESB vegna losunargjalda af flugi sýni kostnað þess að Ísland sé ekki í ESB. „Þetta mál er hrópandi dæmi um hvað það kostar að við erum ekki þátttakendur að fullu í ESB. Við þurfum að láta duga að sitja frammi á gangi og mótmæla eftir að önnur ríki hafa tekið ákvarðanir,“ segir Jón Steindór. Nýjar reglur innan Evrópusam- bandsins um losun frá f lugi munu hafa mikil áhrif.  Er um alvarlegt efnahagslegt mál að ræða að hans sögn. „Þarna birtist grundvallarmun- urinn á að vera með eða standa utan, hvort Ísland er með í að móta reglur frá upphafi,“ segir Jón Stein- dór. „Ef við hefðum setið við borðið þegar málið var kynnt þá réttirðu sem íslenskur fulltrúi strax upp hönd og segir: Ég vil minna á að Ísland er eyja langt úti í hafi. Það verður að sníða reglurnar þann- ig að þær komi ekki verst niður á okkur. Og þá myndu menn strax finna lausn.“ Auk áhrifanna á f lugið, ferða- þjónustuna og efnahag Íslendinga ef ekki fást undanþágur, bendir Jón Steindór á að Ísland hafi hótað að beita neitunarvaldi innan sameigin- legrar EES-nefndar. „ESB getur beitt gagnaðgerðum og sagt: Þið hafið neitunarvaldið en ef þið beitið því getum við einn- ig gripið til okkar aðgerða,“ segir Jón Steindór. Önnur hlið sé einnig á málinu. „Við setjum samband við samstarfs- þjóðir okkar innan EES, Norðmenn og Sviss, líka í uppnám ef við beitum neitunarvaldinu. Við erum komin í mjög erfiðar aðstæður.“ n Losunardeilan hrópi á inngöngu í ESB benediktboas@frettabladid.is reykjavík Af þeim tæplega fimm þúsund starfsmönnum Reykjavík- urborgar sem svöruðu könnun um Stofnun ársins höfðu 271 orðið fyrir einelti í vinnunni og nefndu 97 yfir- mann sinn sem sinn gerenda. Um 126 manns töldu sig með vissu hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni, þar af 20 manns sem nefndu yfir- mann sem sinn gerenda. Þá höfðu 464 orðið fyrir ofbeldi í vinnunni. Könnunin náði til 9.478 starfs- manna Reykjavíkurborgar og alls bárust 4.838 svör og var svarhlut- fallið því 51 prósent. Alls töldu 5,6 prósent starfsfólks sig hafa örugglega eða líklega orðið fyrir einelti síðastliðna 12 mánuði. Þegar spurt var hver hefði lagt við- komandi í einelti sögðu 55,7 prósent að gerandinn hefði verið vinnufé- lagi en 36,5 prósent sögðu gerand- ann hafa verið stjórnanda. Þá sagði 2,6 prósent starfsfólks sig örugglega eða líklega hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni á síðast- liðnum 12 mánuðum. Þegar spurt var nánar út í gerendur þá voru langf lestir eða 55,1 prósent, sem sögðust hafa orðið fyrir kynferðis- legri áreitni af hálfu viðskiptavinar eða notanda þjónustu. Alls sögðu 32,7 prósenta geranda vera vinnu- félaga eða samstarfsfólk. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins tóku málið upp í borgar- ráði í vikunni og sögðu það sláandi hversu margir verða fyrir of beldi í vinnunni. „Fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins vona og vænta að unnið verði betur með þær niðurstöður í þágu vellíðunar og öryggis starfs- fólks,“ segir í bókun flokksins. n Fimm prósent orðið fyrir einelti Yfirmenn í borginni leggja í einelti og áreita undirmenn sína. Margt bendir til breytinga á flugumferð, eyríki sem byggja á ferðaþjónustu eru hvað viðkvæmust. Ísland er í sér- stökum áhættuflokki ef ESB verður ekki við óskum um undanþágu. Fréttablaðið/Eyþór Svandís Svavars- dóttir, ráðherra Það hefði mátt vera ljóst í hvað stefndi. Þorbjörg Þor- valdsdóttir, odd- viti Garðabæjar- listans benediktboas@frettabladid.is Skólamál Bæði Flataskóli og Hofstaðaskóli voru tifandi tíma- sprengjur að mati Garðabæjarlist- ans en mygla hefur fundist í báðum skólum.  Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar í vikunni var hart tekist á um skólahúsnæði í bænum. Þor- björg Þorvaldsdóttir, oddviti Garða- bæjarlistans, benti á í bókun sinni að fram komi í ársskýrslu Flataskóla frá 2020-2021 að starfsfólk komi með margar ábendingar varðandi viðhald og ásigkomulag húsnæðis. „Vitað er að kallað var eftir úttekt á skólanum árið 2019 og að skýrsla um umfangsmikinn leka, rakaskemmdir og myglu kom fram þá,“ segir meðal annars í bókun hennar. Þá bendir hún á að í ársskýrslum Hofsstaðaskóla sé talað um aðkall- andi viðhaldsþörf meðal annars vegna leka á hverju ári frá árinu 2010. „Er sérstaklega talað um viðhalds- þörf ytra byrðis og það ítrekað í árs- skýrslu 2015-16, aftur árið 2016-17, 2017-18, 2018-19 og 2019-20,“ bendir Þorbjörg á og endar bókunina: „Það hefði mátt vera ljóst í hvað stefndi, og ég stend við orð mín sem voru tekin sérstaklega fyrir hér um daginn og endurtek að báðir þessir skólar voru tifandi tímasprengja.“ n Mygluðu skólarnir í Garðabæ voru orðnir að tifandi tímasprengjum kristinnhaukur@frettabladid.is Samfélag Rótarýklúbburinn Borgir í Kópavogi og Pósturinn tóku hönd- um saman og sendu í gær teppi og hlýjan fatnað til borgarinnar Khar- kív í Úkraínu. Það var í lok síðasta árs sem félagar í Rótarýklúbbnum ákváðu að hefja söfnun og senda til borgarinnar. Félagar í klúbbnum brugðust skjótt við og mikið safnaðist af skjólgóðum flíkum, lopapeysum og yfirhöfnum ásamt miklu magni af teppum. Þau Anna Stefánsdóttir og Jón Pétursson, forseti Borga, komu með sextán kassa, fulla af fatnaði, í póstmiðstöðina í vikunni. Með aðstoð Póstsins hafa kassarnir verið sendir til Kharkív. Kharkív er önnur fjölmennasta borg Úkraínu og liggur nálægt víg- línu stríðsátakanna. Lengi vel var hún nærri umkringd og sprengjum Rússa rigndi yfir hana dag og nótt. Snemma í september hófu Úkraínu- menn óvænta gagnsókn í Kharkív- héraði og náðu að hrekja Rússa að mestu á brott. Enn þá gera Rússar loftárásir á borgina, meðal annars á mikilvæga orkuinnviði. n Teppi og hlýr fatnaður til Kharkív Sendingin mun nýtast vel enda hefur verið kalt og erfitt í Kharkív. 6 FréTTir FRÉTTABLAÐIÐ 18. FeBRúAR 2023 LAUGArDAGUr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.