Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 24
Svona gleðja þeir sína heittelskuðu í tilefni konudagsins Á sunnudaginn er konudagur og í tilefni af því spurðum við nokkar þjóðþekkta karlmenn sem kunnir eru fyrir að vera miklir gleðigjafar og hafa einstaklega gaman af því að koma sínu fólki á óvart hvort þeir haldi upp á konudaginn og færi sinni heittelskuðu gjöf í tilefni dagsins. sjofn@frettabladid.is Syngur um ástina Jón Jónsson er söngvari, laga­ höfundur og gleðigjafi með meiru. Jón er þekktur fyrir að vera rómantískur í söng sínum og lagagerð og á konudaginn er það engin undantekning. Þau eru ófá lögin sem hann hefur samið til konu sinnar, Hafdísar Bjarkar Jónsdóttur. „Ég held upp á konudaginn með henni Hafdísi minni. Þótt ég reyni að gera mitt besta dagsdaglega þá fagna ég líka þessum tyllidögum. Ég er nú meira grand á því á okkar eigin dögum, eins og á brúðkaupsaf­ mælinu eða sambandsaf­ mælinu, en omeletta í morgun­ mat og jafnvel blómvöndur er eitthvað sem ég veit að hún yrði ánægð með á konudaginn. Í ár get ég ekki boðið Hafdísi upp á eiginlegt stefnumót að kveldi til þar sem ég ætla í fyrsta sinn að vera með tónleika í tilefni konudagsins. Bara JJ einn og óstuddur í Bæjarbíói. Það er samt alveg rómó þannig lagað þar sem ástarlögin eru jú samin til konunnar minnar.“ Blóm og út að borða Guðmundur Birkir Pálmason/ Gummi Kíró, áhrifavaldur, kíró­ praktor og eigandi Kírópraktor­ stöðvar Reykjavíkur, kann svo sannarlega að njóta lífsins með sinni og á konudeginum er það engin undantekning. Hann nýtur þess að koma Línu Birgittu á óvart og er mikill rómantíker. „Já, við Lína höldum alltaf upp á konudaginn þar sem okkur finnst bæði gaman að koma hvort öðru á óvart og að gera eitthvað skemmtilegt saman. Lína fær alltaf blóm á konu­ daginn ásamt gjöf sem ég veit að hana langar í. Ég er svo alltaf búinn að skipuleggja eitthvað um kvöldið, annaðhvort út að borða eða ég elda hennar uppá­ haldsmat sem er grænmetis­ lasagna. Í ár er ég búinn að bóka frábæran veitingastað sem ég veit að hún á eftir að elska.“ Rómantísk ferð í Skógarböðin Kjartan Gíslason er súkkulaði­ gerðarmaður og einn eigenda súkkulaðigerðarinnar Omnom, sem er þekkt fyrir að framleiða ljúffengt súkkulaði, þar á meðal fyrir ástina. Hann er mikill mat­ gæðingur og hefur mjög gaman af því að koma ástinni sinni, Vilhelmínu Birgisdóttur, á óvart með gjöfum og kræsingum sem gleðja matarástina. „Það geri ég svo sannarlega. Mér finnst rosalega gaman að gleðja konuna á þessum degi. Oftar en ekki byrjar dagurinn á „late“ bröns heima hjá okkur, það hefur komið fyrir að við séum barnlaus á þessum tíma en ef ekki þá eru þau með. Þetta er kannski svolítið hefðbundið, smá gjöf og blóm, og svo bara rólegheit eftir því sem líður á daginn. Í ár verð ég fyrir norðan með pop­up á Lyst kaffihúsi með félögum mínum, Kára frá Nielsen restaurant og vertinum á LYST og fyrrum framleiðslu­ stjóra Omnom, Reyni Grétars­ syni. Þar sem þetta datt inn á þessa helgi, þá ákvað ég að bjóða konunni með, þannig þetta verður sambland af vinnu og gleði. Við stefnum á að sjá söngleikinn Chicago, þar sem hæfileikaríka bróðurdóttir mín, Aníta Rós Þorsteinsdóttir, fer með eitt hlutverkið. Vonandi náum við að kíkja eitthvað út að borða, ég er spenntastur að prufa North, systurstað Dill res­ taurant. Og svo að sjálfsögðu er efst á lista að kíkja í Skógar­ böðin á sjálfan konudaginn.“ Vill finna draumadísina Leifur Welding, hönnuður, athafnamaður og ævintýra­ maður með meiru, heldur upp á konudaginn en að þessu sinni mun hann gera það með óhefðbundnari hætti þar sem hann er laus og liðugur og engin kona til staðar. Rómantíkin er þó allt um kring. „Ég held alltaf upp á konu­ daginn og hef gert það í 27 ár. Pínu óhefðbundinn fögnuður núna þar sem það vantar konu til halda upp á daginn með. En læt það nú ekkert stoppa mig og ég held daginn hátíðlegan. Já, ég er búinn að plana konudaginn í ár, hann fer í það að finna konu til þess að halda upp á daginn með, hver veit hvað gerist. Mögu­ lega endar maður í róman­ tískum dinner fljótandi um í Sky Lagoon eða löns uppi á miðjum Langjökli. Hver veit hvað gerist á þessum fallega degi, aldrei að gefa upp vonina, kannski dettur draumadísin inn á síðustu mínútunni,“ segir Leifur og brosir sínu blíðasta. Rómantíkin vex og hjartað stækkar Einar Bárðarson, athafnamaður, textahöfundur og eigandi hlað­ varps, er einstaklega róman­ tískur og elskar að gleðja konu sína, Áslaugu Thelmu Einars­ dóttur, á konudaginn sem fleiri daga. „Árin safnast saman og vel kvæntir menn velta því fyrir sér hvort hægt sé að elska meira. En hjartað stækkar sem betur fer með árunum þannig að það að elska með öllu hjarta leyfir ástinni að vaxa. En með árunum vaxa skynsemin og skyldur okkar við ávexti ástarinnar þannig að ungæðislegar og yfirgengilegar ástarjátningar unga mannsins verða að mæta skynsemi lífs­ reynda mannsins á seinni árum. Svo liggja þessir tveir dagar ástarinnar alltaf mjög nálægt hvor öðrum hérna á Íslandi, Valentínusardagur og konudag­ urinn. Þannig að á seinni árum reynir maður kannski að brjóta daginn upp með því að gera eitthvað á báðum dögunum. Fallegur Espiflatar­blómvöndur, úr sömu mold og nærðu blómin í brúðarvendinum hennar á Valentínusardag, sem lifa fram yfir konudag, eru hlutir sem kannski eru hversdagslegir við fyrstu sýn en er beint að rótum hjartans. Það er ekkert í heim­ inum sem getur að fullu þakkað fyrir tuttugu og fimm ár í blíðu og stríðu. En maður reynir. Ef allt um þrýtur þá syngur maður bara viðlag úr einu af bestu lögum Björgvins Halldórssonar sem vill bara þannig til að ég samdi til hennar.“ Dekrar við frúna Eyjólfur Kristjánsson, tónlistar­ maður og lagahöfundur, hefur samið ófá ástarlög sem hafa ómað í eyrum landsmanna gegnum árin. Hann elskar að dekra við frúna, Söndru Lárusdóttur, og þá sérstaklega bragðlaukana. „Ég hef lagt það í vana að gera eitthvað fyrir hana. Þar sem þetta er sunnudagur þá skröllum við nú ekkert, en ég hef oft boðið henni í dögurð, yfirleitt á Jómfrúnni. Það vill svo til að ég verð þennan dag á heimleið frá Borgarfirði eystra þar sem ég verð með tónleika þann 18. febrúar. Mig grunar að í staðinn fyrir dögurðinn muni ég skella í dýrindis kvöld­ verðarveislu á heimili okkar og dekra við bragðlauka Söndru minnar, jafnvel setja eitthvað á grillið.“ Alltaf gjöf á þessum degi Karl Viggó Vigfússon, veit­ ingamaður, bakari, konditori og annar stofnenda veitinga­ staðarins Héðinn Kitchen & Bar, er rómantískur að eðlisfari og heldur ávallt upp á konudaginn. Hann nostrar við sína konu, Erlu Sylvíu Guðjónsdóttur, og óvæntur glaðningur fylgir ævinlega deginum. „Ég held alltaf upp á konu­ daginn, fer út að borða eða elda eitthvað sem þarf að nostra við og við höfum gott kvöld saman og konan fær yfirleitt smá pakka. Í tilefni konudagsins í ár er ég búinn að plana daginn fyrir okkur en við verðum erlendis svo það verður út að borða og svo fær hún auðvitað pakka, ávallt óvæntur glaðningur.“ 4 kynningarblað A L LT 18. febrúar 2023 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.