Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 17
Ég fæ einhverja skrítna tilfinningu, eins og eitt- hvað sé að, það var eitt- hvað að naga mig. Þröstur bjóst alls ekki við að komast inn í Leiklistar- skólann þegar hann sótti þar um. Fréttablaðið/Valli Þröstur Leó segir það að tala um slysið hafa hjálpað sér að ná tökum á kvíðanum. Fréttablaðið/ Valli Slysið sem hann vísar til varð þann 20. júlí árið 1982 þegar lítil Piper PA-23 einkaf lugvél fórst í hlíðum Kistufells í Esju. Fimm voru um borð sem öll létu lífið. Þröstur fékk ekki mörg verkefni eftir útskrift, það átti þó eftir að breytast og er hann nú einn vin- sælasti leikari þjóðarinnar. „Það voru allir sem útskrifuðust með mér komnir með einhverja vinnu. Ég fékk svo hlutverk í bíómyndinni Eins og skepnan deyr, eftir Hilmar Oddsson, en fór svo bara vestur á sjóinn að veiða hörpuskel,“ segir hann en Þröstur fer nú með aðal- hlutverkið í kvikmyndinni Á ferð með mömmu sem einnig er í leik- stjórn Hilmars. Kvikmyndin fer í almenna sýningu næsta föstudag og hefur nú þegar hlotið mikið lof ásamt því að hún var valin besta myndin á kvikmyndahátíðinni PÖFF í Tallin. „Ég held að það hafi kannski haft áhrif að ég var ekki héðan og ég var með lítið barn þegar ég var í skólanum. Ég þekkti ekki marga og var ekki í öllum partíunum, þess vegna fékk ég kannski færri verk- efni og mér var einhvern veginn alveg sama, ég var bara til í að fara á sjóinn, safna pening og svona,“ segir Þröstur. Hann var þó f ljótt kallaður í bæinn og fékk hlutverk í leikhúsi. „Kjartan Ragnarsson hringir í mömmu og spyr um mig, hún segir að ég sé úti á sjó og hann spyr hvort hún haldi ekki að ég sé til í hlutverk í leikriti sem heitir Land míns föður. Hún hélt það nú og þegar ég kom í land var hún búin að pakka fyrir mig og sagði mér að ég væri að fara suður,“ segir hann og hlær. Umrædd leiksýning var sýnd 218 sinnum í Þjóðleikhúsinu. Þröstur hefur leikið í fjölda leikrita, meðal annars Hamlet, Dýrunum í Hálsa- skógi, Jólaboðinu, Þetta er allt að koma og Hafinu. Þá hefur hann einnig leikið í fjölda kvikmynda og er einna þekktastur fyrir hlutverk sín í Nóa albinóa, Tár úr steini og Veiðiferðarmyndunum. Skrítin tilfinning Með fram leiklistarferlinum hefur Þröstur Leó alltaf verið sjómaður. Árið 2015 lenti hann í slysi þar sem litlu munaði að hann léti lífið. Þann 7. júlí árið 2015 sökk bát- urinn Jón Hákon á Rit út af Aðal- vík í Ísafjarðardjúpi. Í bátnum var Þröstur ásamt Birni Magnússyni skipstjóra, Gunnari Rúnari Ævars- syni stýrimanni og Magnúsi Krist- jáni Björnssyni. Bátnum hvolfdi skyndilega og Þröstur komst með herkjum upp á kjölinn. Hann náði svo að hífa Björn og Gunnar upp til sín þar sem þeir biðu í rúma klukku- stund eftir aðstoð. Afar litlu mátti muna og þegar aðstoð barst var báturinn nánast sokkinn. Magnús lést í slysinu. „Þetta var mjög mikið áfall og það var margt skrítið við þetta allt saman, það var eins og þetta væri ákveðið og mér finnst þetta allt svo spes eftir á,“ segir Þröstur. Hann hafði haft hug á því lengi að fara vestur á sjóinn eftir fjöldamörg hlutverk í leikhúsi og kvikmyndum. Hann hafði samband við Björn, eig- anda bátsins, en stuttu áður hafði ungur maður sem átti pláss á Jóni Hákoni látist og því var laust pláss um borð. „Ég segi Bjössa að ég sé tilbúinn að fara á sjóinn og hann segist ætla að láta mig vita fljótlega, sem hann svo gerir, og ég var svo glaður að fá þetta pláss,“ segir hann. „Hann ræður annan mann með okkur og þetta var svo ógeðslega næs og gaman og ég var svo spennt- ur. Mér leið bara eins og ég væri tíu ára aftur, við vorum þarna vinirnir saman að fara á sjó og ég var að gera upp húsið. Ætlaði að ná mér í fínar tekjur og koma mér út úr fjárhags- vandræðum eftir hrunið. Ég var þarna að berjast fyrir því að halda húsinu og þrælaði mér út öll kvöld og helgar í leikhúsinu,“ segir Þröstur. „Við byrjum að róa og allt gengur vel en ég fæ einhverja skrítna til- finningu, eins og eitthvað sé að, það var eitthvað að naga mig,“ segir Þröstur. Hann segist aldrei hafa verið hræddur á sjó en þarna var hann með áhyggjur. „Mér leið eitthvað skringilega og ég segi við konuna mína: ég er með á tilfinningunni að eitthvað komi fyrir og ef það kemur eitthvað fyrir þá hef ég áhyggjur af Magga. Ég vissi ekki hvað það var og maður spáir ekkert í neinu svona fyrr en eftir á.“ Hélt að hann myndi deyja Þegar kom að því að sigla átti norður á Rit magnaðist ónotatilfinningin í Þresti og hann vildi ekki fara. „Ég man að það var svo gott veður, sól og blíða, en ég var samt með þessa tilfinningu en auðvitað fór ég,“ segir hann. „Við vorum svo sóttir og þetta gerist þann 07. 07. klukkan 07, það er allt í sjöum hjá mér,“ segir hann en Þröstur á sjö börn og sjö barna- börn. ,,Þegar ég kaupi lottómiða þá vel ég bara allt með sjö,“ segir hann og hlær. Eftir að bátnum hvolfdi leið, eins og fyrr segir, rúmur klukkutími þar til aðstoð barst. „Við vorum með sólina í bakið þegar báturinn sem bjargar okkur kemur og fyrst sjá þeir okkur ekki. Svo loksins þegar þeir sjá okkur segir einn að það hafi verið eins og þrír menn hafi staðið á hafinu, þetta var stór bátur en hann var eiginlega alveg sokkinn og það mátti ekki miklu muna, við hefðum ekki enst lengi í sjónum,“ segir Þröstur. „Ég var alveg viss um að ég myndi deyja þarna,“ segir hann. „Ég var aldrei hræddur en um leið og bátur- inn er að fara yfir um þá kom eitt- hvað yfir mig, ég varð mjög rólegur og hafði bara nokkrar sekúndur til að hlaupa og það var eins og það hefði verið ýtt undir rassinn á mér og mér væri hjálpað upp á kjölinn. Ég veit að ef ég hefði ekki komist upp þá hefðum við allir drukknað,“ segir Þröstur. Berst við kvíðann Strax eftir slysið gaf Þröstur afleið- ingum þess ekki mikinn gaum, rúmum sex vikum síðar fékk hann svo sitt fyrsta kvíðakast. Hann skildi ekki hvað var að gerast og var sendur með sjúkrabíl á sjúkrahús þar sem hann var skoðaður. Ekkert fannst og hann fékk að fara heim. Stuttu seinna hóf Þröstur að vinna í Þjóðleikhúsinu en kvíðinn hélt áfram. Eitt sinn fékk hann kvíða- kast rétt fyrir sýningu á verkinu Hafinu er þar fór Þröstur með eitt aðalhlutverkanna. ,,Ég sat í sminki og allt í einu spyr sminkan mig hvort það sé í lagi, ég gat ekki talað en hún sagði að ég hefði orðið grár á þremur sekúnd- um,“ segir hann. Þröstur hefur síðan áttað sig á kvíðanum og segir sér líða mun betur núna þegar sjö ár eru liðin frá slysinu. ,,Enn ein sjöan,“ segir hann. Hann segir það hafa hjálpað sér mikið að tala um það sem gerðist. ,,Þarna strax eftir fyrsta kvíðakast- ið fór ég til Rúdólfs á Landspítalan- um og hann fór í gegnum þetta með mér sekúndu fyrir sekúndu og það hjálpaði mér mikið,“ segir hann og vísar til Rúdólfs Adolfssonar geð- hjúkrunarfræðings. „Svo hef ég talað um þetta víðar og þegar ég er spurður um þetta gerist það stundum að það er eins og kveikt sé á plötu, ég verð að segja allt, ég áttaði mig ekki á því, en einu sinni var ég í partíi að segja frá þessu og þá voru bara nokkrir farnir að gráta. Núna get ég sagt styttri útgáfu af þessari sögu og hún heltekur mig ekki svona, ég get bara rifjað hana upp og tekið mér svo pásu,“ segir Þröstur. „Kvíði er samt eins og sjálfstæð lífvera og það er magnað hvað hann getur platað mann, jafn- vel þótt maður viti að um kvíða sé að ræða getur maður farið að efast og hugsað: nei, núna er þetta hjartaáfall, ekki kvíði. Maður þarf að reyna að ná fókus einhvern veg- inn,“ segir hann. „En mér líður miklu betur núna, fyrst á eftir mundi ég ekkert en þetta er allt að koma,“ bætir hann við. Eftir slysið hefur Þröstur lítið sem ekkert farið á sjóinn, hann fær enn ónotatilfinningu. „Þeir eru báðir enn á sjónum en ég fæ enn hnút í magann,“ segir Þröstur, sem hyggst halda ótrauður áfram í leik- listinni. n Fréttablaðið helgin 1718. Febrúar 2023 lAUgARDAgUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.