Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 56
Það er alveg ótrúlegt og kemur gríðarlega á óvart að sjá hversu mikla útbreiðslu þetta verk hefur. Ólöf Kristín Sig- urðardóttir, safnstjóri Lista- safns Reykja- víkur Tveir listamenn í poka. John og Yoko. Friðarsúlan í Viðey verður tendruð í dag á afmæli Yoko Ono, framúrstefnulistakon- unnar sem alltaf vill virkja áhorfandann og gera hluta af verkum sínum. Aldursforsetinn í Bítlafjölskyldunni er níutíu ára í dag. Íslandsvinurinn og framúrstefnu- listamaðurinn Yoko Ono fæddist í Tókýó í Japan á þessum degi fyrir níutíu árum. Yoko steig ung sín fyrstu spor á listasviðinu og byrjaði að skapa sér nafn þegar á sjötta áratug síðustu aldar. Var hún  einn svokallaðra Fluxus-listamanna. Síðast hélt Yoko sýningu hér á landi í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur veturinn 2016 til 2017 undir nafninu Ein saga enn. Kom þá fram í kynningu á listamannninum á heimasíðu safnsins að hún  sé leiðandi myndlistarmaður á sviði tilrauna og framúrstefnu. „Fyrst og fremst hefur hún þó verið frumkvöðull í að endurskoða listhugtakið, draga listaverkið sem hlut í efa og aukinheldur að brjóta niður hefðbundna múra milli ólíkra listgreina. Með verkum sínum hefur Yoko Ono myndað nýstárleg tengsl við áhorfendur þar sem hún býður þeim að taka þátt í sköpun þeirra. Þá sameinar hún tvo heima – hinn austræna og hinn vestræna – sem virka ef landi og styrkjandi fyrir hvor annan í samfelldri nýsköpun,“ sagði á vefsíðu Listasafns Reykja- víkur á þessum tíma. Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safn- stjóri Listasafns Reykjavíkur, segir stað Yoko vera í hugmyndalistinni. Á sýningunni í Hafnarhúsinu hafi afstaða Yoko til listarinnar kristall- ast. „Það er að segja að listaverk sé ekki endilega hlutur heldur athöfn eða þátttaka byggð á einhvers konar ferli. Fyrir þá sýningu fluttum við til dæmis ekkert til landsins annað en stafræn skjöl og síðan söfnuðum við saman dóti eftir hennar fyrirmæl- um til notkunar á sýningunni. Hún er alltaf að velta fyrir sér þátttöku áhorfandans og virkni hlutarins umfram hlutinn sjálfan,“ útskýrir Ólöf. Yoko Ono efndi einnig til sýning- ar hér á landi árið 1991. Var sú sýn- ing á Kjarvalsstöðum. „Jafnframt því sem verk listakonunnar hafa til að bera ákveðinn jákvæðan boð- skap, þá ögra þau áhorfendum og hvetja þá til að hugsa,“ sagði í grein sem Eiríkur Þorláksson skrifaði um sýninguna í Morgunblaðið 28. maí 1991. „Jafnframt því sem myndlistin bregður spegli hins nöturlega raun- veruleika upp fyrir samfélagið, þá heldur hún í vonina um betri heim, og verk Yoko Ono bera þá von svo sannarlega með sér. Það væri auð- velt að láta kaldhæðnina ná yfir- ráðunum, en það væri líka uppgjöf,“ sagði Eiríkur áfram í grein sinni. „Yoko notar listina til að vinna að Yoko Ono níræð og hugurinn enn sterkur sínum hugsjónum,“ segir Ólöf. Hún nefnir að í raun hafi Yoko tekið eitt af fyrstu skrefunum í átt að MeToo- byltingunni með verkinu Upp- risunni frá árinu 2013 sem taki á ofbeldi gegn konum. „Í því verki kallar hún eftir sögum þar sem konur eru að segja frá reynslu sinni af of beldi. Með þessum litlu sögum fylgja myndir af augum þessara kvenna,“ segir Ólöf. Þetta verk hafi meðal annars verið á fyrrnefndri sýningu í Hafnarhúsinu og þá hafi verið kallað eftir sögum kvenna þaðan. Sögur bárust þá víða að úr heiminum. Yoko Ono lét ekki síður taka til sín á tónlistarsviðinu. Hún er meðal annars meðhöfundur eiginmanns síns, Johns Lennon heitins, að lag- inu Imagine. Er það einn alfrægasti friðarsöngur í heimi og ákveðinn grundvöllur Friðarsúlunnar í Viðey sem Yoko lét reisa í Viðey til minn- ingar um Lennon sem myrtur var í New York í desember 1980. Þess utan hefur Yoko sent frá sér margar plötur, sumar í samstarfi við Lenn- on og aðrar sem hún gerði í eigin nafni eftir andlát hans. Um þessar mundir er opin í Hafn- arhúsinu sýningin Kviksjá þar sem sýnd eru verk  úr safni Listasafns Reykjavíkur sem eru eftir erlenda listamenn. Þar á meðal eru fimm verk eftir Yoko Ono. Nú í kvöld, á laugardagskvöldi, verður Friðarsúlan tendruð á afmælisdegi Yoko sem fyrr. Verða ljósin kveikt um sólsetursbil. „Þau er mikils virði fyrir Reykja- vík,“ segir Ólöf um þessi sérstöku tengsl Yoko Ono við Ísland. Á hverju ári þegar Friðarsúlan sé tendruð sé athöfn á samskiptamiðlum Yoko. Þar sé hægt að sjá hvar í heiminum fólk sé að fylgjast með þessum við- burði. „Það er alveg ótrúlegt og kemur gríðarlega á óvart að sjá hversu mikla útbreiðslu þetta verk hefur og hversu mikla merkingu það hefur fyrir fólk úti um allan heim.“ Í tilefni afmælisins hefur Sean, sonur þeirra Yoko og Johns Lennon, útbúið stafrænt óskatré þar sem fólk getur skráð óskir sínar. Slóð á óska- tréð má finna á vefsvæði Listasafns Reykjavíkur. Þótt Yoko standi nú á níræðu og sé ekki eins mikið á faraldsfæti og áður fyrr segir Ólöf hana enn virka. „Hugurinn er sterkur,“ segir safn- stjórinn um listakonuna merku. n Garðar Örn Úlfarsson gar @frettabladid.is Listaverkið Friðarsúlan sem Yoko Ono lét reisa til minningar um eigin- mann sinn, Bítilinn John Lennon heitinn, mun lýsa í kvöld í tilefni afmælis þessa góða Íslandsvinar. 32 menning FRÉTTABLAÐIÐ 18. FeBRúAR 2023 LAUgARDAgUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.