Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 14
Þótt maður sé að keyra sömu sýninguna aftur og aftur þá er orku- stigið mismunandi. Um helgina | Við mælUm með | bjork@frettabladid.is Við þurf- um að tala um þetta, og líka það sem á eftir kemur, úrvinnsl- una, sem er mikilvæg- ari en margur hefur talið sér trú um. birnadrofn@frettabladid.is Í kvöld fer fram 27. sýning uppi- standsins „Kynslóðir“ með Bergi Ebba. Sýningin fer fram í Tjarnar- bíói og segist Bergur Ebbi alltaf jafn spenntur þrátt fyrir margar sýningar. „Þetta er búið að ganga mjög vel og mér finnst þetta alltaf jafn gaman,“ segir hann. „Það eru ekki mjög margar sýningar eftir núna, ég á eftir að sakna þess að fara í Tjarn- arbíó og gera þetta,“ bætir hann við en aðeins fjórar sýningar eru eftir. Bergur Ebbi segir Íslendinga spennta fyrir uppistandi og að fólk sé duglegt að fara á slíkar sýningar. „Ég er búinn að vera í þessu síðan í kringum árið 2009, það eru orðin fjórtán ár,“ segir hann. „Og maður finnur að það er góður stígandi í þessu núna,“ bætir hann við. Spurður hvort að áhorfendur skelli alltaf upp úr á sömu stöðum í sýningunni segir Bergur svo ekki vera. „Ég get svo svarið það að ég Íslendingar sólgnir í uppistand Bergur Ebbi segist afar spenntur fyrir sýningunni sem fram fer í kvöld. Mynd/aðsend finn alveg mun eftir því sem er í gangi á hverjum tíma,“ segir hann. „Ef það er búinn að vera hrika- legur stormur úti, eins og er búið að vera mikið núna upp á síðkastið, þá finn ég alveg að það er eitthvað svona ákveðið ástand í gangi sem maður getur tekið utan um,“ segir hann. „Ég eyði oft fyrstu mínútunum í eitthvað óplanað, þá tala ég um það sem er að gerast hverju sinni. Svo fer maður á mismunandi hátt inn í þetta og þótt maður sé að keyra sömu sýninguna aftur og aftur þá er orkustigið mismunandi,“ segir Bergur. „Þess vegna verður niðurstaðan sú að hláturinn er mismunandi á mismunandi stöðum, það er það sem heldur manni svolítið spennt- um,“ segir hann að lokum. n Í dag, laugardag og svo aftur í byrjun mars, gefst leik- húsunnendum kostur á að sjá sýninguna Manndýr í Tjarnarbíói. Manndýr er sýning fyrir börn og full- orðna þar sem þeim er boðið að taka þátt og leika saman. bjork@frettabladid.is Það er Aude Busson sem er höfundur verksins Mann- dýr og leikur auk þess eina hlutverk sýningarinnar. Aude er sviðslistakona sem flutti hingað til lands árið 2005 frá Frakklandi. „Ég kom til Íslands því mig lang- aði að ferðast og upplifa eitthvað nýtt,“ segir Aude sem hafði heillast af íslensku tónlistarfólki og döns- urum. „Ég ákvað að vera hér í tíu mán- uði, sem urðu svo 18 ár. Ég á ein- mitt Íslands-afmæli í dag, þann 18. febrúar.“ Til hvers er barn? Aude fékk hugmyndina að sýn- ingunni Manndýr út frá bókinni Barnið eftir Colas Gutman. „Við létum einmitt þýða bókina í tengslum við sýninguna í samstarfi við bókaútgáfuna Litli sæhesturinn. Í bókinni týnist barn í skóginum og hittir dýr sem spyrja hann til hvers hann er. Ég varð forvitin um þessa spurningu: „Til hvers er barn?“ Og ákvað að mig langaði að spyrja börn þessarar spurningar og svo koll af kolli varð til umsókn, sem varð að styrk, svo urðu til samstarfsmenn og loks falleg sýning,“ segir hún og stoltið leynir sér ekki. Manndýr er auglýst sem þátt- tökusýning og segist Aude hafa fengið þá hugmynd þegar hún vann með hópi barna úr Landakotsskóla og spurði þau spurninga um hlut- verk mannsins og barnanna. „Svör þeirra og vangaveltur eru í dag hljóðmynd verksins ásamt fal- legu tónunum hans Borko, Björns Kristjánssonar úr FM Belfast,“ segir Aude. „Ég hef alltaf haft áhuga á að búa til sýningar sem eru tilboð til leiks, þar sem áhorfendur, börn og for- eldrar, fá að leika sér líka í nýjum aðstæðum.“ Frjáls leikur Síðasta sýning Aude var Ég elska Reykjavík, en í henni var farið með áhorfendur í göngutúr um bakgarða í Reykjavík þar sem þátttakendum var boðið að leika sér. „Í Manndýr erum við að leika okkur með hluti sem tengjast mannkynssögunni og hlutverk mannsins í sögu. Leikurinn er svo- kallaður frjáls leikur þar sem börn- in ráða för um hvernig þau leika sér.“ Sviðsmyndin, sem er mjög ævin- týraleg og falleg, var hönnuð af Sigríði Sunnu Reynisdóttur sem hannaði til dæmis barnarýmið Hljóðheima í Hörpu, og Steinunni Mörtu Önnudóttur myndlistar- konu. Aude segir sýninguna auglýsta fyrir fjögurra ára og eldri en þriggja ára börn hafi líka fengið að koma og ekki skemmt sér síður en þau sem eldri eru. n Tilboð til leiks í Tjarnarbíói Í sýningunni leikur Aude sér að spurningunni: Til hvers er barn? Og býður börnum og fullorðnum í leik. Mynd/aðsend Aude fékk hugmyndina að sýning- unni Manndýr út frá bókinni Barnið eftir Colas Gutman. Mynd/aðsendRjúkandi fargufu Við Skarfaklett, skammt frá aðsetri Viðeyjarferjunnar, er eitt best geymda leyndarmál höfuðborgar- innar, litríkt hjólhýsi, sem hýsir far- gufu og einstaka töfra. Þar er boðið upp á heilandi og endurnærandi upplifun nokkrum sinnum í viku og geta tíu manns notið í einu. Ilmgufa, tónlist, snarl og sjór í góðum félags- skap er uppskriftin að því að ná að klára þennan vetur við góða geð- heilsu. Nánari upplýsingar og tíma- pantanir er að finna inni á fargufa.is. Power Serum frá Bio Effect EGF droparnir frá Bio Effect hafa fyrir löngu slegið í gegn hér á landi sem víðar, en nú er komin á markað ný útgáfa sem byggir á sama góða grunni: Power Serum með enn meiri virkni fyrir eldri og þroskaðri húð. Droparnir eru með silkikenndri áferð og veita henni fallegan ljóma á meðan inni- haldsefnin vinna á hrukkum og litamis- fellum og auka raka hennar. Innihalds- efnin eru öll náttúruleg enda unnin úr byggi ræktuðu í vistvænu hátæknigróðurhúsi á Reykjanesi. n   Við vinnslu forsíðuviðtals þessa tölublaðs, við leikarann Þröst Leó Gunnarsson, vakti það athygli blaðamanns að 61 árs karlmaður að vestan væri til í að tala um tilfinningar. Það þótti henni hressandi nýbreytni: Sjómaður að vestan sem getur sagt frá erf- iðum tilfinningum eins og kvíða. Þröstur Leó gengur fram með frábæru fordæmi, því þó svo einhverjir kvarti í kommentakerfum yfir því að fólk opni sig um erfiða lífsreynslu og vilji jafnvel skeyta orðinu klám við tilfinningar, þá er allt betra en að bíta á jaxlinn og bera harm sinn í hljóði. Við sem þjóð erum búin að prófa það – og engum leið betur. Hér áður fyrr þótti það merki um styrk að láta engan bilbugá sér finna. Áfram skyldi haldið eins og ekkert hefði í skorist. Hvort sem foreldrar misstu barn, fólk lenti í slysi eða upplifði sjóskaða, rétt eins og Þröstur Leó gerði og horfði á eftir félaga sínum í hafið djúpa. Við þurfum að tala um þetta, og líka það sem á eftir kemur, úrvinnsluna, sem er mikilvægari en margur hefur talið sér trú um. Öll verðum við fyrir áföllum á lífsleiðinni, það er það sem eftir kemur sem skiptir svo miklu. Líka fyrir sjómenn að vestan. n Og engum leið betur 14 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 18. FeBRúAR 2023 lAUgARDAgUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.