Fréttablaðið - 14.02.2023, Page 2
Einu sinni kom kona
og gaf mér konfekt-
kassa.
Allir að fylla á tankinn
Mikil örtröð hefur skapast á bensínstöðvum víða um landið vegna fyrirhugaðs verkfalls olíuökumanna sem fer á stað á miðvikudag. Verkfallið mun fyrst og
fremst hafa áhrif innan höfuðborgarsvæðisins, en mögulega gætu afleiðingarnar teygt sig á landsbyggðina. Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, segir að
fólk verði að tryggja að bensíntankurinn sé fullur þegar verkfallið brestur á, en hann segist hafa meiri áhyggjur af atvinnulífinu. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Guðmundur á ferð sinni um Laugarnesið, en grannar hans dást að dugnaði
hans. Sjálfur er hann lítillætið uppmálað og þverneitaði að sitja fyrir á mynd í
tilefni umfjöllunarinnar. MyND/aðSeND.
Íbúar í Laugarnesi bera
mikinn hlýhug til gamla
loftskeytamannsins í hverf-
inu sem heldur því hreinu
með gönguferðum sínum
um hverfið, vopnaður rusla-
pokum og griptöng.
ser@frettabladid.is
samfélag Guðmundur Daníelsson
hangir ekki inni í sófa á gamals aldri,
en þessi aldni loftskeytamaður, sem
búið hefur í Laugarnesinu í Reykja-
vík um langt árabil, fer svo til daglega
út að tína upp draslið í hverfinu.
„Ætli ég hafi ekki verið að dunda
við þetta í fimmtán ár, sem sýnir
hvað maður er að verða hundgam-
all,“ segir Guðmundur í samtali við
Fréttablaðið en hann er fyrir löngu
orðinn að samfélagshetju í hverfinu
sínu fyrir þennan starfa.
„Fólk stoppar og þakkar mér fyrir.
Það er nóg fyrir mig,“ segir Guð-
mundur og vill sjálfur gera lítið úr
því sem hann er að gera á tíðum ferð-
um sínum með ruslapokann. „Einu
sinni kom kona og gaf mér konfekt-
kassa, svo þakklát kvaðst hún vera í
minn garð,“ rifjar hann upp.
En hann lætur ekki Laugarnesið
nægja í hreinsunarstarfinu, því ef
þokkalega viðrar fer hann líka dag-
lega út á hafnarsvæðið á Granda og
tínir þar upp allt það rusl sem hann
kemur auga á. „Þar er líka þúfan
mín,“ segir hann bókstaflega, enda
hreinsar hann listaverkið Þúfuna í
þessum ferðum sínum út á Granda.
Höfnin er honum nefnilega hug-
leikin eftir langa starfsævi sem loft-
skeytamaður til sjós, fyrst á síðutog-
urum en seinna meir á farskipum
Sambandsins, svo sem á olíuflutn-
ingaskipinu Hamrafelli.
Hann kveðst lengi hafa þráast
við að f lytja í bæinn, enda borinn
og barnfæddur Borgfirðingur sem
ól manninn lengst af á Hreðavatni,
og það sé erfitt fyrir náttúrubarn að
slíta tengslin við sveitina, já og roll-
urnar.
En hann hefur heldur betur fund-
ið fjölina á mölinni og þrífur hana
eins oft og veður leyfir. Og finnur
svo til allt á ferðum sínum með
ruslapokann í hendi. „Já, blessaður
vertu. Mest er þetta þó plastdrasl, en
svo er óttalega mikið af sígarettu-
stubbum og tóbakspúðum innan
um sprautunálar og annan óþverra.
En ég tíni þetta samt allt upp,“ segir
hann.
Eitt það óvenjulegasta sem hann
hefur fundið er ómerkt umslag með
300 dollurum sem hann fór með á
lögreglustöðina. Hann grennslaðist
fyrir um það seinna hvort eigandi
fjárins hefði fundist, en löggan sagði
svo ekki vera. „Hvað verður þá um
peninginn? spurði ég, og komst að
því að löggan ætlaði bara að halda
honum eftir. Ég er því ekkert viss
hvað ég geri næst þegar ég finn
ómerkt umslag með fullt af seðlum,“
segir Guðmundur Daníelsson. n
Finnur ótrúlegustu hluti í
hreinsunarferðum sínumser@frettabladid.is
fiskeldi Jón Kaldal, talsmaður
Íslenska náttúruverndarsjóðsins,
segir að skýrslan um sjókvíaeldi
sé svo afgerandi að ekki sé annað
hægt en að hafa trú á því að staðan
breytist.
„Helstu hagsmunaaðilar hafa
tekið undir að það þurfi að breyt-
ast,“ segir Jón í samtali við Frétta-
vaktina á Hringbraut. Jón bætir því
við að meginorsök núverandi stöðu
felist í andvaraleysi þingsins og fram-
kvæmdavaldsins.
„Eitt dæmi, sem sýnir að þetta er
ekki bara vandi núverandi stjórnar-
flokka, er löggjöf sem var samþykkt
haustið 2018. Þá hafði úrskurðar-
nefnd umhverfismála numið úr gildi
tiltekin sjókvíaeldisleyfi fyrir vestan
vegna þess að þau voru ekki veitt
með lögmætum hætti,“ segir Jón.
„Á Alþingi voru samþykkt sérstök
lög á tveimur sólarhringum sem
tóku úrskurðinn úr sambandi og
fólu Kristjáni Þór Júlíussyni heimild
til að gefa út bráðabirgðaleyfi þvert
á þennan úrskurð.“ n
Trúir því að staðan í laxeldi breytist
Jón segir að sér heyrist að fólk sé sam-
mála um að staðan sé óviðunandi.
helgisteinar@frettabladid.is
samfélag „Ég var þarna í skjóli fyrir
aftan hvítan bíl sem var beint fyrir
aftan þennan sem sprakk og það var
eiginlega hann sem bjargaði því að
bíllinn minn stórskemmdist ekki. En
það skaust einhver skrúfa eða hlutur,
sem ég veit ekki alveg hvað var, en
það var bara eins og byssukúla hefði
farið í framrúðuna hjá mér,“ segir
Hörður Harðarson, eigandi Verslun-
ar Guðsteins Eyjólfssonar, en hann
var að taka bensín og tala við konu
sína í símanum þegar sprengingin
átti sér stað á Olís í Álfheimum.
Tveir voru f luttir á bráðadeild
Landspítalans eftir að gaskútur í
svörtum Land Cruiser sprakk við
bensínstöðina. Bíllinn stóð við met-
andælu bensínstöðvarinnar við hlið
tveggja annarra bíla þegar kúturinn
í honum sprakk. Sprengingin er til
rannsóknar hjá lögreglu og Vinnu-
eftirlitinu.
„Það var óhugnanlegur kraftur
í þessu. Ég sat inni í bíl og var með
tónlist á og að tala í símann en ég er
samt enn með suð í eyranu. Ég fékk
líka bara höggbylgju á mig. Þetta var
svakalegt,“ segir Hörður. n
Líkt og byssukúla
hafi farið í rúðuna
Einn vegfarandi sagði Glæsibæ hafa
nötrað. Fréttablaðið/Sigtryggur
2 FréTTir FRÉTTABLAÐIÐ 14. FeBRúAR 2023
ÞriÐJUDAGUr