Fréttablaðið - 14.02.2023, Page 27

Fréttablaðið - 14.02.2023, Page 27
Maður skellti upp úr hvað eftir annað. Útkoman var hreint út sagt ógleymanleg skemmtun.TónlisT Don Pasquale Sviðslistahópurinn Óður Höfundur: Gaetano Donizetti Leikstjórn: Tómas Helgi Baldursson Tónlistarstjórn og píanóleikur: Sigurður Helgi Leikarar: Ragnar Pétur Jóhannsson, Áslákur Ingvarsson, Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason Þjóðleikhúskjallarinn laugardagur 11. febrúar Jónas Sen Síðast þegar ég vissi var hraðmælt­ asti maður heims John Moschitta yngri. Á YouTube má sjá hann og heyra fara með texta úr heilu lagi eftir Michael Jackson á 20 sekúnd­ um. Hann er þó ekki hraðmæltari en tveir söngvarar úr uppfærslu á Don Pasquale eftir Donizetti sem sviðslistahópurinn Óður frum­ sýndi í Þjóðleikhúskjallaranum á laugardagskvöldið. Söngvararnir Áslákur Ingvarsson og Ragnar Pétur Jóhannsson sungu dúett, og í snilldarlegri þýðingu Sólveigar Sig­ urðardóttur voru orðin svo mörg að það þurfti nánast að skjóta þeim út úr vélbyssu. Það gerðu söngvar­ arnir með glæsibrag, og samt ótrú­ lega skýrt. Áhorfendur veltust um af hlátri. Illgjarn karlskarfur Don Pasquale er gamanópera og fjallar um karlfausk sem ætlar að gera frænda sinn arf lausan vegna þess að honum líkar ekki við unn­ ustu hans. Læknir karlsins, sem er með frændanum í liði, setur þá af stað farsakennda atburðarás sem stigmagnast upp í ærandi hápunkt. Búktal kemur þar mjög við sögu. Nú kann einhver að spy rja hvernig hægt sé að koma upp heilli óperu með hljómsveit í þröngu rými Þjóðleikhúskjallarans. Svarið er að hljómsveitin var aðeins lítill píanógarmur, ekki einu sinni f lyg­ ill. Sigurður Helgi lék á píanóið, og var jafnframt tónlistarstjóri. Hann hélt vel um alla þræði. Píanóleik­ urinn var í senn tær og glitrandi, stórbrotinn og ástríðuþrunginn, allt eftir því hvað við átti hverju sinni. Prýðilegt f læði var jafnframt í söngnum. Auðvitað er smágert píanó ekki jafnoki stórrar sinfóníuhljómsveit­ ar, en það gerði ekkert til. Venjuleg óperuuppfærsla getur ekki boðið upp á aðra eins nálægð og maður upplifði hér. Það var eins og að vera þátttakandi í sögunni sem var svo sannarlega ómetanlegt. Góður leikur og söngur Eins og áður sagði þýddi Sólveig Sigurðardóttir óperuna y f ir á íslensku. Textinn var drepfyndinn og búktalið var stórkostlegt. Leikur allra undir stjórn Tómasar Helga Baldurssonar var sannfærandi, ofleikurinn á réttu stöðunum sem hæfði grínóperu var afar skemmti­ legur án þess að fara yfir strikið. Söngurinn var líka heilt yfir góður. Ragnar Pétur Jóhannsson var í hlutverki karlfausksins Don Pasquale, söngur hans var þéttur og áreynslulaus. Áslákur Ingvars­ son var einnig framúrskarandi, mjög öruggur og með blæbrigða­ ríka raddbeitingu. Þórhallur Auður Helgason var frændinn forsmáði og söng oftast vel, átti marga f lotta spretti. Og Sólveig Sigurðardóttir, þýðandinn sjálfur, var dálítið óör­ ugg fyrst, en svo héldu henni engin bönd. Á heimasíðu Þjóðleikhússins má lesa að sviðslistahópurinn Óður neitar að geyma óperur í glerköss­ um. Hann vill nálægð við áhorfend­ ur og að þeir skilji um hvað er verið að syngja án þess að píra augun á textavél einhvers staðar uppi í rjáfri. Nálægðin á laugardagskvöldið gerði að verkum að söngur allra var auð­ skiljanlegur, og maður skellti upp úr hvað eftir annað. Útkoman var hreint út sagt ógleymanleg skemmt­ un. n niðursTaða: Drepfyndin ópera. Búktalandi óperusöngvari og farsakennd atburðarás Gamanóperan Don Pasquale eftir Gaetano Donizetti er sett upp af sviðslistahópnum Óður í Þjóðleikhúskjallaranum. Mynd/AðSend tsh@frettabladid.is Íslenski dansflokkurinn tilkynnti fyrir skemmstu að hin vinsæla danssýning BALL muni flytja yfir á stóra svið Borgarleikhússins í mars. „Við erum virkilega spennt að færa BALL yfir á stóra sviðið í Borg­ arleikhúsinu og halda áfram að leiða saman þennan hæfileikaríka og fjölbreytta hóp dansara,“ segir Ásrún Magnúsdóttir, einn af dans­ höfundum verksins. BALL er lýst sem einstökum dans­ viðburði sem býður dansunnendum á öllum aldri, með ólíka líkama, mismunandi bakgrunn og reynslu að stíga upp á svið og dansa saman. BALL hlaut fjórar tilnefningar til Grímuverðlaunanna 2022 og hefur verið mikil aðsókn á sýninguna. „Á BALL bjóðum við öllum að koma saman og fagna fegurð og krafti dansins,“ segir Erna Ómars­ dóttir, listdansstjóri Íslenska dans­ flokksins. „Þessi sýning hefur verið algjör „hittari“ fyrir okkur og er sannur vitnisburður um kraft dansins og getu hans til að leiða fólk saman.“ Í tilkynningu frá Íslenska dans­ f lokknum segir að á sýningunni komi fram atvinnudansarar sem og áhugadansarar. Breikdansari frá níunda áratugnum, ballerína á eftir­ launum, samkvæmisdansstjarna, freestyle­goðsögn, Bollywood­ dansari, street­dansari, dansarar Íslenska dansflokksins, gógódans­ ari, dansnemandi og nútímadansari sem elskar að dansa við Bob Marley. Það sem þau eiga öll sameiginlegt er ást þeirra á dansi. Í viðtali við Fréttablaðið í apríl 2022 sagði Ásrún að sýningin fylgdi ekki neinni sérstakri narratífu held­ ur tæki mið af mörgum ólíkum stíl­ um og dönsurum. „Við köllum þetta ball af því að alls konar dansar geta gerst á böllum, og alls konar getur gerst á böllum. Áhorfendur sitja síðan og horfa á þetta ball gerast fyrir framan sig.“ n Ball flytur á stóra sviðið Á sýningunni BALL koma fram atvinnudansarar og áhugadansarar, þar á meðal breikdansari frá 9. áratugnum. Mynd/Hörður SveinSSon Þessi sýning hefur verið algjör „hittari“ fyrir okkur og er sann- ur vitnisburður um kraft dansins Erna Ómarsdóttir tsh@frettabladid.is Vordagskrá Listasafns Sigurjóns Ólafssonar hefst í kvöld kl. 20.00 með tónleikum Hlífar Sigurjóns­ dóttur fiðluleikara og Povl Balslev orgel­ og píanóleikara, sem nefnast Hrosshár á strengi og holað innan tré − brot úr sögu klassísks fiðluleiks á Íslandi. Á tónleikunum verður meðal annars fjallað um Þórarin Guð­ mundsson (1896−1979) sem fyrstur Íslendinga hélt utan til að læra klassískan fiðluleik og hafði fiðlu­ leik og kennslu að aðalstarfi. Leikin verða lög frá hans tíð og eftir hann, sum hver á fiðlu sem Þórarinn lék sjálfur á. Samstarf Hlífar og Povls hófst fyrir sjö árum og hafa þau haldið tónleika á Íslandi og í Danmörku, bæði sem fiðlu­ og píanódúó og einnig með samleik fiðlu og orgels, nú síðast í Eyrarbakkakirkju og Grafarvogskirkju í febrúar. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar tók upp þá nýbreytni síðastliðið haust að standa fyrir reglulegum menningarviðburðum, svo sem tónleikum, f lutningi hljóðrita og kynningum á sögulegu efni, í sal safnsins á Laugarnesi. Fest voru kaup á vönduðum hljómf lutn­ ingstækjum og myndvarpa í þeim tilgangi. Viðburðirnir eru í anda sumartónleikanna, fara fram á þriðjudagskvöldum kl. 20.00 og eru um klukkustundarlangir. Boðið er upp á kaffi í kaffistofu safnsins á eftir þar sem rabba má við f lytj­ endur. n Hlíf og Povl koma fram í Listasafni Sigurjóns Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari kemur fram ásamt Povl Balslev, orgel- og píanóleikara. Mynd/AðSend FréttaBLaðið menning 2314. FeBrúar 2023 ÞRiÐJUDAgUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.