Vesturland - 01.12.1986, Blaðsíða 21
21
BARNAEFNI
Jólaórói:
Klippið út hjörtun eftir sniðinu úr rauðum kartonpappír, þræðið síðan hjörtun
á band, hafið um 5 cm bil á milli hjartanna.
Kartonpappír í ýmsum litum er klipptur út eftir sniðunum, síðan setjið þið
bandspotta í fuglana og hengið á jólatréð.
Sælgæti
Rjómakaramellur:
11/2 dl rjómi
3 dl sykur
11/2 dl sýróp
25 gr smjör
Allt sett í pott og soðið í loklausum
potti í ca 40 mín. Hellt á vel smurða
plötu, þegar massinn hefur kólnað dálit-
ið er hann teygður með höndunum í
fingurþykkar lengjur, sem síðan eru
klipptar í bita. Alveg kælt og pakkað inn
í glæran pappír eða álpappír.
☆ ☆☆☆☆☆☆☆
Súkkulaðikaramell-
ur:
3 dl rjómi
3 dl sykur
1 dl sýróp
2 msk kakó
1 tsk edikssýra
Blandið saman í pott rjóma, sykri, sýr-
ópi og kakói. Soðið í ca 30 mín í lok-
lausum potti. Setjið edikið út í á meðan
á suðu stendur. Smyrjið mót ca 20x25
cm, hellið massanum síðan í mótið og
kælið. Skorið í bita sem vafðir eru inni í
glæran pappír eða álpappír.
☆ ☆☆☆☆☆☆☆
Hrísbollur:
75 gr kókósfeiti
2 pl suðusúkkulaði
3 msk mjólk eða kaffi
3 msk sykur
2 stk egg
Bræðið súkkulaðið og kókosfeitina
saman í potti, á meðan það bráðnar þá
hrærið þið saman eggjunum og sykrin-
um, síðan bætið þið súkkulaðinu og
mjólkinni út í, að lokum látið þið hrísið
út í eftir því hvað þið viljið hafa mikið
súkkulaði í bollunum. Þegar þið eruð
búin að hræra hrísið saman við, látið þið
smá bollur á disk með skeið og látið
kólna í 1 klst í ísskáp.
☆ ☆☆☆☆☆☆☆
Kókosbollur:
Blanda saman;
1 dl af sykri
1 dl kókosmjöli
2 dl snöggsoðnum hafragrjónum
2 msk kakó
1 tsk vanillu
Þessu hnoðað saman með 2 msk
smjöri eða smjörlíki. Kælt síðan góða
stund og hnoðað síðan í lengjur sem
skornar eru í stykki. Úr stykkjunum eru
mótaðar kúlur sem velt er upp úr kók-
ósmjöli.
☆ ☆☆☆☆☆☆☆