Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Side 10

Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Side 10
Þetta er ,,Efri-Prinsess'. Þarna era gljúfrin geysihá, eins og myndin sýnir. nefndur Mósi, má segja að Gilsbakka- eyrunum ljúki. Farvegur árinnar þrengist nú mjög. Hún rennur nú á milli brattra og hárra hlíða að sunnanverðu en aflíðandi hjalla að norðan. Við nálgumst nú óðum hina svo- nefndu heimahylji, en það eru veiði- staðirnir umhverfis Víghól. En áður en þangað er komið verður Wilson á leið okkar. Er hann undir hinum háu blá- grýtisskriðum rétt neðan við Eyrarn- ar. Veiðistaður þessi hefur í sumum sumrum þótt afbagðs góður, en mun nú síðustu árin hafa grynnkað veru- lega vegna frumburðar árinnar og breytinga á rennsli hennar, og má segja að veiðistaðirnir á Eyrunum séu yfirleitt undir sömu sök seldir, flestir hverjir frá ári til árs, og reynast því misjafnlega góðir. 8 Kaflinn frá Wilson og niður að „heimahyljunum“ er veiðistaðalaus. Á- in rennur þar mestmegnis á grynning- um. Efri-Johnstone er efstur „heimahylj- anna“ — fremur strengur en hylur. Fast við hann er Neðri-Johnstone, tví- skiptur ljómandi fluguhylur, talinn með beztu hyljum árinnar. Þá kemur Réttarhylur, einnig afbragðs veiðistað- ur. Næst er Stuart, stór og mikill hyl- ur en ekki að sama skapi veiðisæll. Heljargátt er neðan við Stuart, mikill hylur og djúpur, en leiðinlegur og ljót- ur. Þvínæst er Spegillinn og þá Langi- dráttur, en þar veiddi Björn Ólafsson, fjármálaráðherra 35 lbs. hæng .1940 og hefur Veiðimaðurinn áður birt mynd af Birni með „þann stóra“. Neðan við Langadrátt eru Efri-Pottur og Neðri- Pottur, fallegir hyljir og svo loks Víg- hólakvörnin, öðru nafni Hut-pool, sem jafnan reynist prýðilega þegar lax er í göngu. Þessir eru þá heimahyljirnir svo- nefndu, en á milli þeirra allra eru ótal strengir og pollar, sem gefa góða veiði. Yfirleitt má segja að á svæði þessu sé veiðistaður við veiðistað. En það sem meira er um vert er það, að hvergi er eins fallegt og vinalegt við Þverá sem einmitt á þessum kafla. Áin fellur þarna um falleg gljúfur þar sem brekkur víði- og lyngivaxnar teygja sig frá efstu brún milli hamranna niður að seytlandi kristallstæru vatni árinn- ar. En nú finnst Brún gamla hann vera kominn heim, því að Víghóll stendur á hæðinni rétt ofan við „Kvörnina". Það rýkur, svo að kaffið hlýtur að vera heitt á könnunni. Og ekki verður þú fyrir vonbrigðum. Endurnærðir leggj- um við aftur af stað niður með Þverá.

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.