Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Qupperneq 12

Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Qupperneq 12
streng á miðjum Norðtungueyrunum, sem heitir Klapparstrengur. Magnús Andrésson, fulltrúi, sem þekkja mun manna bezt alla veiðistaðina í Þverá, ekki síður þá smærri en þá stærri, benti mér einu sinni á þennan stað, og hann gefur alltaf lax, þegar rennt er þar. Eg geri ráð fyrir að þér finnist þetta vera orðið all langt og strangt ferða- lag, enda er nú dagur að kveldi kom- inn og því mál að hvíla sig. Þú hefur nú skoðað flesta hyljina í ánni, en minna höfum við hirt um strengina og pyttina, enda væri fráleitt að reyna að hugsa sér að skoða þá alla á einum degi. Þeir eru svo að segja allstaðar í ánni. Rétt áður en við ríðum í hlað á Norð- tungu, verður Túnhylur á leið vorri, en við látum öðrum eftir að lýsa Neðri- ánni svo nefndri. Já, góður var nú blessaður maturinn og kaffið hjá Norðtungufrúnni og þökk sé öll hennar rausn fyrr og síðar. En áður en við göngum til náða, lang- ar mig til að spyrja þig, hvert álit þitt sé á þessari löngu, löngu á. Ja, nú er „vandi að vara sig“, því að þetta getur verið samvizkuspurning. En þó held ég að niðurstöðurnar geti orð- ið þessar: Þverá er óvanalega rík af veiðistöð- um og jafnframt ákaflega fiskisæl. Þverá er lítil með tilliti til vatns- magns og því mjög auðvelt að veiða hyljina og strengina. Þverá er ákaflega löng og erfitt að ferðast með henni, því að vegir eru ill- ir yfirferðar og lítt hirtir. Þverá er mjög viðkvæm fyrir veðr- um. Hún getur á örskammri stundu orðið kolmórauð í rigningu eða norðan roki. En þótt þetta megi teljast mikill galli, þá upphefja kostirnir hann marg- sinnis. Þverárlaxinn tekur betur en laxar í öðrum ám. Hann er yfirleitt ekki vænn, þó að meðalþyngd hans muni vera meiri en í öðrum ám í Borgar- firði, að jafnaði sennilega í kring um 7 til 8 pund. Þverá er fluguá, og ætti að varast að nota maðkinn of mikið, því að hyljirn- ir eru viðkvæmir, en maðkurinn stygg- ir, svo sem kunnugt er. Flugustærðin er bezt No. 8,7,6 og 5 — einkum ljósar. Þú átt að nota litla og létta stöng í Þverá. Það gefur þér margfalda gleði. Þv.erá á rétt á því að vel sé með hana farið, því að hún er góð við gesti sína. Enda mun það einsdæmi að veiði- maður á Víghól renni í ána án þess að koma heim með veiði. Svo að lokum þetta: Brúnn gamli á þakkir skyldar fyrir góða leiðsögn og ég get búizt við að hann myndi vilja segja okkur álit sitt á Þverá ef hann mætti mæla, hvort sem það yrði í samræmi við það, sem hér að framan er sagt, eða ekki. Hitt er ég alveg viss um, að hann myndi leggja áherzlu á þetta: „Ef þú veiðir vegna íþróttarinnar og gleðinnar, og hefur hemil á veiðigræðgi þinni, þá láttu maðkinn skríða í moldu sinni en leyfðu lónbúanum að leika sér við fluguna þína. Þú veizt, að góða veiði færðu í Þverá, hvort sem er“. ^ t'cf cpt eé/ftíeccfc’cf VEIÐIMANNINN 10

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.