Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Side 18

Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Side 18
laxgeng, nema þá í aftaka þurrkum, en sá hængur er á, að skammt neðan við Sveinatungu er 2—3 metra hár foss — Króksfoss —, er algerlega hindrar fiskgöngu, og er það vissulega mikill bagi, þar sem fjöldi fagurra hylja og veiðilegra strengja eru hér á ca. 20 km. langri straumleið Norðurár. Von- andi verður að því unnið að ryðja lax- inum braut á einhvern hátt, er hagfelld- astur reynist og öruggastur fyrir fram- tíðina. II. Frá Króksfossi að Glanna. Að vestanverðu á svæðinu frá Króks- fossi að Glanna falla eftirtaldar ár í Norðurá: 1. Sanddalsá. Hún fellur um Sand- dalinn og mætir Norðurá, þar sem hún brýzt fram úr Króksgljúfrunum skammt fyrir neðan Sveinatungu. Sanddalsá er að vatnsmagni nokkuð svipuð Hellisá, þó ef til vill heldur lygnari neðantil og rennur um slétt- ar eyrar neðst í Sanddalnum, en framar eru góðir laxahyljir 1 ánni. í seinni tíð hefur lítils- háttar orðið vart við lax í ánni síðari hluta sumars, en ekki mun þó ennþá vera mikil brögð að því. 2. Litlaá. Hún fellur í Norður- á rétt fyrir framan Hvamm. Það er lítil spræna. 3. Dýrastaðaá. Hún fellur fast norðan við bæinn Dýrastaði, beint í Norðurá. Hún er sömuleiðis lítil venjulega. í sumarþurrkum er hún alveg þurr en vex oft fljótt. 4. Búðardalsá. Hún er örlítil spræna rétt fyrir framan Klettsstíu. Ekki er mér kunnugt um, að lax hafi veiðzt í þessum 3 síðasttöldu ám. 5. Bjarnadalsá. Hún fellur um Bjarnadal og brýst fram úr djúpu ár- gljúfri skammt fyrir neðan Dalsmynni og greinist í þrjár hvíslar, sem falla um sléttlendi Norðurárdalsins. Vestasta læn- an fellur vestur með Hvassafelli og vestur undir bæinn Hraunsnef og fell- ur þar í Norðurá. Hinar hvíslarnar eru vatnsmeiri, einkanlega sú í miðið, og falla þær þvert í Norðurá. Eitthvað mun hafa orðið vart við lax í ánni í seinni tíð og má búast við, að lax gæti orðið talsverður í henni í framtíðinni, því að víða eru fallegir hyljir í ánni fram í 16

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.