Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Blaðsíða 26
>■Yngsti veiðima8urinn“ og Kristján Sólmundsson,
stangavi8ger8arma8ur, róa upp StetytjarfljótiS.
Hábrekknavaðið er svonefndur Munað-
arstrengur, en það er talsvert fyrir
framan Munaðarnes. í seinni tíð hefur
veiðst þar dálítið og niðurmeð bökkun-
um fyrir neðan. Áin fellur um leirur
úr þessu og er mjög misdjúp og breyti-
leg. Neðan við Munaðarnes tekur við
stór og mikill hylur, er Haugahylur
er nefndur. Ádráttarveiði hefur verið
stunduð þar til skamms tíma. Þegar
áin hefur verið mjög lítil svo að hún
hefur vart verið laxgeng ofan við Mun-
aðarnesstrenginn, hefur oft safnazt
mikið af laxi í Haugahyl. Norðurábrú
liggur yfir hylinn. Til forna var vað
neðan við Haugahylinn, en var alltaf
nokkuð djúpt. Áin er mjög lygn úr
þessu, enda alldjúp yfirleitt. Var um
tíma, meðan vegakerfið var lélegt, far-
ið á smá-mótorbátum úr Borgarnesi
alla leið upp að Munaðarnesi.
Einn hylur, allstór, er undan Staf-
holti við svonefndan Stafholtskastala,
sem Kastalahylur er nefndur. Þar sést
oft ógrynni af laxi. Silungur er einnig
: nokkur neðan til í ánni og er oft
veitt talsvert af honum upp um ís að
vetri til. Annars er lax um alla ána
þar neðra. Dregið hef ég 4 laxa á spoon
af báti skammt neðan Flóðatanga.
V.
Hér að framan hefur verið reynt að
draga upp mynd af laxveiðiánni Norð-
urá. Reynt hefur verið að lýsa veiði-
stöðum, þannig að veiðifús lesandi
hefði eitthvert gagn af, er á hólminn
kæmi.
Því miður mun ekki vera hægt að
birta skýrslur yfir árlega veiði í Norð-
urá undanfarin ár, en nokkra hugmynd
munu þó kunnugir geta skapað sér um
það.
Ég hef um 7 ára bil verið við Norð-
urá við laxveiði, frá því í byrjun júní
til ágústloka. Laxveiðisvæðið var frá
Glanna niður fyrir Kálfhyl, eða aðal-
laxveiðisvæðið. Aðallega var veitt á
tvær stengur og má telja, að árleg
veiði hafi verið frá 300 til 800 laxar.
Auk þessa var veitt talsvert af öðrum,
bæði í Hreðavatnsveiðum, ofan og neð-
an Glanna, og eins fram um alla á.
Þetta gefur því nokkra hugmynd um
hvílík auðæfi Norðurá flytur. Allmik-
il áraskipti eru á stærð laxins í Norð-
urá eins og í öðrum ám. Eitt árið var
meðal laxaþunginn 6—7 libs, annað ár-
ið var meðalþunginn 10—11 libs.
Stærsti lax, sem veiddist meðan ég var
við Norðurá, var veiddur í Myrkhyl
og var 36 libs.
Það má ljóst vera, að mikið mætti
auka laxagengdina í Norðurá. í fyrstu
lagi með auknu klaki. í öðru lagi með
umbótum á fossunum frá því sem er og
þá sérstaklega með laxastiga í Króks-
fossi. í þriðja lagi, og það ef til vill ekki
24