Veiðimaðurinn - 01.12.1943, Blaðsíða 27
Yngsti
veiöimaöurinn
Magnús Valdimar Ármann, sonur
hins víðfræga „laxapabba“, Sigbjörns
Ármanns, kaupmanns, veiddi 6 punda
hrygnu í Hvararhyl í Norðurá hinn
30. ágúst í sumar. Hann er ekki nema
10 ára gamall. „Snemma beygist krók-
urinn“ segir máltækið, og það virðist
ætla að sannast á þessum unga veiði-
manni. En skyldi hann samt sem áður Yngsti veiSimaSurinn.
nokkurntíma verða eins æstur í laxinn Magnús Valdimar Ármann.
eins og „pabbinn?“
þýðingarminnst, með því að netaveiði
væri lögð niður í Borgafirðinum og
Hvítá, og er það mál, sem þyrfti nánari
rannsókn og athugun á.
Hvað beita er bezt í Norðurá? Þetta
er spurning, sem margur veiðimaður
setur fram, þegar um veiðivatn er að
ræða. Telja verður að fluga sé jafn-
bezta beita fyrir Norðurá. Straumur er
yfirleitt ákjósanlegur fyrir hana. Blue
charm, Blue doctor, Chrossfield, Dusty
Miller og Silver Wilkinson (tvær síð-
astnefndar sérstaklega í björtu) eru al-
gengustu flugur og þær er bezt reynd-
ust í minni tíð við ána. Þegar áin er
í vatnavöxtum hefur ánamaðkur verið
drýgztur, einnig ýmiskonar tálbeita svo
sem minnow og spoonar.
Það mun mála sannast, að fáar veiði-
ár muni skemmtilegri en Norðurá.
Landslagið er víða hrikalegt en þó
ber meira á yndisþokka og fegurð.
Að norðanverðu er víðast skógarkjarr
og hér og þar fallegir hvammar og hlý-
legar hraunlautir, þar sem Brókarhraun
er, að ógleymdri fjallasýninni, sem er
víða mjög fögur. Þetta hjálpar til að
halda veiðimanninum í góðu skapi.
Þegar við bætist, að ágæt veiðihús eru
við ána, hér og hvar, þá er litlu við að
bæta, hvað ánægjuna og góða aðbúð
snertir.
Ég læt hér staðar numið. Vil aðems
taka það fram, að nöfnin á hyljunum
hef ég haft eftir bændunum á bæjunum
meðfram ánni og fest mér í minni er
ég dvaldi þar efra.
25